Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 224
SKAGFIRÐINGABÓK
lj Guðrún Eldjárnsdóttir yngri, f. 1799 í Enni, d. 28. sept-
ember 1871 á Þverá í Dalsmynni, húsmóðir á Þverá. M.: 25. maí
1840, Ásmundur Gíslason, f. 19. apríl 1800 í Nesi í Höfða-
hverfi, d. 8. október 1876 á Þverá, bóndi á Þverá og víðar, um
skeið hreppstjóri, „vel efnaður, grandvar og dulur í skapi, ... ætt-
og sögufróður“ (Ættir Þingeyinga 11:314—315). For.: Halldóra
húsmóðir Jónsdóttir prests á Hálsi Þorgrímssonar og m.h. Gísli
Ásmundsson bóndi í Nesi. Börn Ásmundar af fyrra hjónabandi:
Einar alþingismaður í Nesi, Halldóra, Guðrún og Anna. Synir
Guðrúnar og Ásmundar: a) Gísli Jóhannes, b) Eldjárn Folmer.
2a Gísli Jóhannes Ásmundsson, f. 17. júlí 1841 í Rauðuskriðu,
d. 28. janúar 1898 á Bergsstöðum í Svartárdal hjá Ásmundi syni
sínum, bóndi og hreppstjóri á Þverá; lærði bókband á Akureyri hjá
Jóni Borgfirðingi og fékk sveinsbréf hjá honum 1860, bjó á Þverá
1868—98, hreppstjóri f aldarfjóðung, fulltrúi á Þingvallafundi
1873, gáfumaður, vel hagmæltur og ritaði nokkuð um þjóðmál,
merkisbóndi (Stéttartal bókagerðarmanna 1:211—212; Isl. æviskrár
11:40—41; Ættir Þingeyinga 11:313—314). K.: 8. október 1866,
Þorbjörg Olgeirsdóttir, f. 12. júlí 1842 í Garði í Fnjóskadal, d.
5. febrúar 1923 í Reykjavík, húsmóðir. For.: Ingibjörg Einars-
dóttir húsmóðir og m.h. Olgeir Árnason bóndi í Garði. Börn
þeirra: a) Olgeir, b) Auður, c) Ásmundur, d) Ingólfur, e) Garðar, f)
Haukur.
3a Olgeir Gíslason, f. 10. júlí 1867 á Þverá, d. 29. maí 1868.
3b Auður Gísladóttir, f. 1. mars 1869 á Þverá, d. 27. júlí 1962,
húsmóðir á Skútustöðum í Mývatnssveit og síðar í Reykjavík.
M.: 17. mars 1896, Árni Jónsson, f. 9- júlí 1849 á Litlu-Strönd
í Mývatnssveit, d. 27. febrúar 1916 á Hólmum í Reyðarfirði,
prófastur og alþingismaður (Guðfræðingatal, 24—25; Alþingis-
mannatal 1845-1975, 41; ísl. æviskrár 1:57-58). For.: Þuríður
Helgadóttir húsmóðir og m.h. Jón Árnason bóndi á Skútustöðum
við Mývatn. Börn þeirra voru Dýrleif húsmóðir í Reykjavík,
Gunnar prestur í Kópavogi, Ólöf húsmóðir í Reykjavík og Inga
húsmóðir í Reykjavík (kona Vilhjálms Þ. Gíslasonar útvarpsstjóra).
222