Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 132
SKAGFIRÐINGABÓK
slóst jeg í förina, og hefi aldrei síðan sjeð eptir því. Okkur þótti sá
munur á landinu, að við staðrjeðum, þá þegar, að flytja hingað.
Svo flutti jeg suður hingað sama sumar. Við vorum 4, jeg,
kona mín og drengir okkar, Barði á 10. ári og Skúli Guðmund-
ur á 3. Stúlkur mínar vóru kyrrar í Winnipeg. Við komum suð-
ur hingað seint í ágústm[ánuði] og settumst að hjá Benidikt Ólafs-
syni (sem var í Breiðargerði) og vorum hjá honum fram á
haustið, þar til jeg gat komið upp skýli handa okkur yfir vetur-
inn. Ekki var það stásslegt, en það var hlýtt, og þar á reið mest
því opt er kalt hjer að vetrinum.
Sjera Páll sál. Þorláksson stofnaði þessa Dakota nýlendu og
honum var það að þakka að menn liðu ekki tilfinnanlegan
skort fyrstu árin, því flestir komu hingað fjelausir að kalla, að
sönnu kom stöku maður með nokkra nautgripi frá N[ýja]
I[slandi] en þeir voru fáir í samanburði við hina, en hann
hjálpaði mönnum með dæmafáum dugnaði bæði með að útvega
nautgripi og matvæli til að bæta úr bráðustu þörfinni.
Jeg var einn af þeim fjelausu, að sönnu kom jeg með 70
dollars í vasanum, en það var nærri því sem ekki neitt, til að
byrja með á eiði landi, þar sem enginn bjargræðis vegur var
opinn. Fyrir þessa dali keypti jeg kú um haustið og nokkurn
vetrarforða og þá voru þeir farnir sína leið. Svo fjekk jeg eina
kú hjá Sjera Páli, en ekki bar hún fyrr en undir sumarmál, og
sú sem jeg keypti varð veik svo jeg varð að skera hana, svo
átum við hana með mestu rólegheitum. Samt höfðum við
dálitla mjólk um veturinn því jeg gat tekið 3 kýr til fóðurs af
manni sem rak nokkra nautgripi suður um haustið og varð að
koma þeim fyrir, en jeg aflaði mjer þó nokkurs af heyji það
sem eptir var sumarsins svo jeg átti hægt með að fóðra kýrnar.
Síðan keypti jeg eina af þessum kúm um vorið, fýrir peninga
frá dætrum mínum, en fjekk aðra til leigu hjá sama manni 1 ár
og þetta kom fótum undir gripastofn svo í því tilliti var jeg
sloppinn.
En nú stóð jeg uppi alls laus í því tilliti, að geta unnið land-
130
J