Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 218
SKAGFIRÐINGABÓK
sínum í Pottagerði til 1919, bóndi í Hátúni á Langholti 1919—28
og í Miklagarði á Langholti, fláningsmaður í sláturhúsinu á
Sauðárkróki mörg haust, vaskleikamaður til vinnu, „bráðgreindur,
svo sem hann átti kyn til, glaðvær í framgöngu og djarfmann-
legur“ (Skagf. æviskrár 1910—1950 1:55). Ókvæntur og barnlaus.
3e Anna Sigfúsdóttir, f. 5. maí 1895 á Krithóli á Neðribyggð,
ráðskona á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki, bjó síðast í Reykjavík.
2c Friðrik Eyjólfsson, f. 1851 í Smiðsgerði, d. 1941 á Reykjum í
Hjaltadal, bóndi og vinnumaður; vinnumaður á Brúnastöðum í
Fljótum 1874—82, bóndi á Kvíabekk í Ólafsfirði og í Stóru-
Brekku í Fljótum 1883—86, vinnumaður á Skúfsstöðum í Hjalta-
dal 1886—87 og síðan á Reykjum í Hjaltadal (Skagf. æviskrár
1850—1890 11:46—47). K.: 1881, Anna Filippía Guðmundsdótt-
ir, f. 1857 á Hraunum í Fljótum, d. 1888 á Reykjum, húsmóðir.
For.: Anna Filippusdóttir húsmóðir og m.h. Guðmundur Sölva-
son þilskipaformaður á Hraunum og og síðar bóndi á Minna-
Grindli í Fljótum og víðar. Dóttir þeirra: a) Þórleif Valgerður.
3a Þórleif Valgerður Friðriksdóttir, f. 1882, lausakona á Reykj-
um í Hjaltadal 1901, kann að hafa farið til Ameríku.
2d Soffía Eyjólfsdóttir, f. 1866 í Smiðsgerði, d. 1. nóvember 1868.
lg Solveig Eldjárnsdóttir, f. um 1795 í Enni á Höfðaströnd, d.
18. desember 1841, vinnukona í Miklagarði í Eyjafirði. M.: 1820,
Einar Jónsson, f. 1789, ráðsmaður og meðhjálpari í Miklagarði
og síðar bóndi í Ölvesgerði; giftist aftur í elli sinni Margréti
Jónsdóttur (Ábúendatal í Inn-Eyjafirði, 1062—63; Eyfirskar ættir
IV:109—110). For.: Margrét Sigurðardóttir húsmóðir og m.h. Jón
Þorkelsson bóndi á Sandhólum. Sonur þeirra: a) Sigurður.
2a Sigurður Einarsson, f. 7. ágúst 1820 í Miklagarði, ólst upp
hjá afa sínum og ömmu í Sandhólum. „Hann giftist ekki og átti
ekki afkvæmi. Hann var vinnumaður frá fermingu og lengst af í
Hvassafelli, fyrst hjá Þorsteini Hallgrímssyni, bróður Jónasar
skálds. Lengst var hann hjá Benedikt Jóhannssyni, eða allan hans
búskap í Hvassafelli. Síðan hjá Jóni Davíðssyni. Sigurður tók
216