Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 209
NOKKRIR ELDJÁRNSNIÐJA
Flóventsson bónda hins sterka á Jórunnarstöðum og víðar í
Eyjafirði Jónssonar.
3a Eldjárn Sveinsson, f. 22. september 1824 í Laufássókn, d.
1. febrúar 1857 í Austur-Húnavatnssýslu; ólst upp hjá ömmu-
bróður sínum, Sigfúsi Eldjárnssyni á Arnarstöðum, fór til móður
sinnar í Sundi 1845, þegar faðir hans lést, og varð fyrirvinna
hennar um skeið, barst síðan vestur í Húnvatnssýslu. Kona hans,
gift þar vestra 29- nóvember 1850, var Guðbjörg Pétursdóttir
og áttu þau a.m.k. þrjár dætur, á árunum 1850-1852. Rétt áður
en Eldjárn dó átti hann einnig son með Guðrúnu Jónsdóttur
nokkurri.
3b Guðrún Sveinsdóttir, f. 1825 í Laufássókn, er ekki hjá móð-
ur sinni í Sundi 1845.
3c Jón Sveinsson, f. 1827 í Höfðasókn, er hjá móður sinni í
Sundi1845.
3d Rósa Sveinsdóttir, f. 1832 í Höfðasókn, var hjá móður
sinni í Sundi 1845, húsmóðir í Bandagerði í Kræklingahlíð. M.:
20. október 1858, Guðmundur Pálsson, f. 17. desember 1829,
bóndi í Bandagerði. For.: Sigríður Stefánsdóttir og Páll Pálsson
bóndi á Brattavöllum, áður vinnumaður á Önundarstöðum. Rósa
og Guðmundur voru víða í Eyjafirði og áttu a.m.k. fimm börn á
árunum 1859—68.
3e Sigurbjörn Sveinsson, f. 18. september 1833 í Sundi, er þar
hjá móður sinni 1845, varð trésmiður á Akureyri. K.: 17. október
1872, Hólmfríður Jóhannsdóttir, f. 22. janúar 1846 í Bolla-
görðum á Seltjarnarnesi, d. 6. september 1879, húsmóðir. For.:
Hólmfríður Guðmundsdóttir og m.h. Jóhann Guðmundsson
bóndi á Varmalæk í Borgarfirði, í Bollagörðum og víðar (Borgf.
æviskrár V:157). Börn þeirra, sem höfundi er kunnugt um:
Benedikt bóndi á Jarlsstöðum í Höfðahverfi, faðir Sigurbjörns
oddvita í Ártúni; Sigurbjörg húsmóðir á Bakka á Skaga (Ættir
Þingeyinga 11:232—240).
3f Solveig Sveinsdóttir, f. 9- desember 1834 í Sundi, d. 24.
janúar 1905 á Bakka í Svarfaðardal, húsmóðir á Jarðbrú í Svarf-
207