Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 210
SKAGFIRÐINGABÓK
aðardal. M.: 6. október 1857, Jón Jónsson, f. 21. mars 1831 í
Gröf í Svarfaðardal, d. 24. september 1901 á Jarðbrú, bóndi
í Brekku í Hvalvatnsfirði 1859—1862 og á Jarðbrú frá 1862 til
æviloka (Svarfdælingar 11:197). For.: Sigríður Bjarnadóttir hús-
móðir og m.h. Jón Jónsson „stúfur“ bóndi á Sælu í Skíðadal
(Svarfdælingar 1:218—219). Afkomendur eru frá tveimur barna
þeirra: Valdimar bjó á Syðri-Másstöðum og víðar í Svarfaðardal
(langafi Arna Kolbeinssonar hæstaréttardómara og Sigríðar Önnu
Þórðardóttur alþingismanns). Kristín bjó á Bakka í Svarfaðardal og
víðar (amma Sigrúnar Magnúsdóttur borgarfulltrúa og langamma
Magnúsar Schevings þolfimleikamanns).
3g Margrét Sveinsdóttir, f. 1836 í Sundi, er þar ekki 1845.
3i Baldvin Sveinsson, f. 1838 í Sundi, er þar hjá móður sinni
1845.
3j Halldór Sveinsson, f. 1840 í Sundi, er þar hjá móður sinni
1845, bóndi í Keflavík við Gjögur. K.: 18. júlí 1868, Sesselja
Gunnlaugsdóttir, f. 19. maí 1836, húsmóðir. For.: Kristín
Kristjánsdóttir húsmóðir og m.h. Gunnlaugur Kristjánsson bóndi
á Ytrafjalli í Reykjadal. Börn þeirra sem höfundi er kunnugt um
voru Halldóra húsmóðir á Skagaströnd, Eniilía húsmóðir á Bárðar-
tjörn og Jakobína Sigrtður húsmóðir á Hverhóli í Skíðadal, móðir
Tryggva Guðlaugssonar bónda í Lónkoti í Sléttuhlíð.
2c Sigríður Jónsdóttir, f. 1798 í Laufássókn, er ekki með for-
eldrum sínum í Laufási 1801 og ekkert frekar um hana vitað.
2d Sigurður Jónsson, f. 1802 í Kolgerði, er í Hvammi í Höfða-
hverfi 1816, sagður „léttingur af hrepp"; örlög hans eru höfundi
að öðru leyti ókunn.
2e Jón Jónsson, f. 1806 í Kolgerði, d. 11. desember 1823, varð
úti í Gönguskarði, ólst upp í Nesi í Höfðahverfi og er þar 9 ára
niðursetningur 1816.
2f Kristján Jónsson, f. 1808 á Skeri, d. 1872 í Pálsgerði, niður-
setningur í Grímsnesi í Grýtubakkahreppi 1816, fatlaður maður,
haltur og skakkur, einkennilegur en greindur vel. Ókvæntur og
barnlaus.
208