Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 222
SKAGFIRÐINGABÓK
2e Guðrún Jónsdóttir, f. 11. nóvember 1837 í Grafarseli í Deild-
ardal, d. 13. desember 1886 á Þönglaskála á Höfðaströnd. Guðrún
var ógift vinnukona á Hjaltastöðum í Blönduhlíð 1865 en átti
Svein son sinn á Skuggabjörgum, í skjóli foreldra sinna sem voru
þar þá í húsmennsku hjá Jóni Jónssyni og Þorgerði Jóns-
dóttur (dóttur Guðrúnar Eldjárnsdóttur eldri). Hún var vinnu-
kona hjá vandalausum á Spáná í Unadal 1873 og á Ysta-Mói í
Flókadal 1880. Þaðan fór hún vistferlum að Fjalli í Sléttuhlíð og
þótt nokkru skeiki um aldur hlýtur hún að vera sú Guðrún Jóns-
dóttir sem er vinnukona á Fjalli 1881—83 og á Höfða á Höfða-
strönd 1883—85. Hún hefur misst heilsuna skömmu síðar því að
hún er sögð niðurseta, 59 ára, þegar hún deyr á Þönglaskála.
Barnsfaðir: Magnús Sveinsson „halti“, f. 27. apríl 1828 í Enni í
Viðvíkursveit, d. 18. september 1878 í Brimnesi í Viðvíkursveit,
lærður smiður, vinnumaður víða í Skagafirði og Húnavatnssýslu,
bóndi á Syðri-Brekkum í Blönduhlíð 1858—59, í Þúfum í Ós-
landshlíð 1859—60, Grafarseli í Deildardal 1874—75 og á Akri á
Skaga 1875—76 (Skagf. æviskrár 1850—1890 11:234—236). For.:
Solveig Magnúsdóttir húsmóðir og m.h. Sveinn Jónsson bóndi í
Enni. Sonur þeirra: a) Sveinn.
3a Sveinn Magnússon, f. 7. janúar 1866 á Skuggabjörgum í
Deildardal, d. 2. nóvember 1947 á Sauðárkróki, útvegsbóndi og
formaður; bóndi f Efra-Nesi á Skaga 1894—1907 og í Ketu
1907—1919 en síðan sjómaður á Sauðárkróki (Skagf. æviskrár
1890—1910 11:318—319). K.: 1889, Sigurlaug Guðvarðardótt-
ir, f. 12. maí 1867 á Krákustöðum í Hrolleifsdal, d. 9- apríl 1927
á Sauðárkróki, húsmóðir (Krákustaðaætt, 174—175). For.: Sigur-
björg Margrétardóttir húsmóðir og m.h. Guðvarður Þorsteinsson
bóndi á Krákustöðum. Börn Sveins og Sigurlaugar: Sigurbjörg hús-
móðir í Ketu, Ásta húsmóðir á Skagaströnd, Hólmfríður verkakona
á Siglufirði, Sveinn netagerðarmeistari í Reykjavík og Rafn bóndi í
Áshildarholti.
2f Jón Jónsson, f. 1840 í Grafarseli, d. 1927 í Þúfum í Óslands-
hlíð, um skeið bóndi á Hrafnsá í Deildardal og Teigi í Óslandshlíð
en lengst vinnumaður í Þúfum (Skagf. æviskrár 1850—1890
11:182—183). K.: 1862, Sigríður Jónsdóttir, f. 1829 í Hamrakoti
220