Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 170
SKAGFIRÐINGABÓK
brennioffur skulu mér þakknæmar vera á mínu altari".69 Bisk-
upi til aðstoðar var dómkirkjupresturinn og prófasturinn, séra
Halldór Jónsson frá Völlum, móðurbróðir Eldjárns Hallgríms-
sonar nýsveins.
Eldjárni hefur að líkindum orðið starsýnt á skrautlega milli-
gerðina, róðukrossinn með frelsaranum blæðandi, og listilega
útskorna altaristöfluna, með tveim hliðarvængjum, gjöf Jóns
biskups Arasonar. A predikunarstólinn voru máluð fegurstu
bílæti af guðspjallamönnunum og upp af þeim gnæfði biskup
mikilúðlegur.
Fremstu bekkir, næst milligerðinni, voru í læstum stúkum
og höfuðdyggðirnar málaðar í kvennalíki á þilið, til áminning-
ar og umhugsunar. Þarna sat meðal annarra Hálfdan Einarsson
rektor, hægri hönd biskups og átti nokkrum árum síðar Krist-
ínu dóttur hans, vitur maður og góðgjarn en ófríður og hégóm-
legur í sumu, þóttist rammur að afli, en var í raun óstyrkur og
lítill vexti.70 Við hlið hans sat að líkindum konrektorinn, Jón
Egilsson, vel lærður, góður kennari, lipur, þolinmóður og vin-
sæll af nemendum, mikill söngmaður og heppinn læknir og í
flestu hinn mætasti maður, komst síðar í góð efni. Systurdóttir
hans, Ragnhildur Tómasdóttir, kemur brátt við Eldjárnssögu.
Margir klerkar í Skagafirði voru viðstaddir, þar á meðal lík-
lega Þorvaldur Jónsson í Hvammi, Grímólfur Illugason gamli
í Glaumbæ, Jón Sveinsson í Goðdölum, Jón Jónsson, þá á
Flugumýri en síðar prófastur á Hjaltastöðum, Þorvarður Bárð-
arson í Felli og Eyjólfur Sigurðsson á Hofi og síðar á Brúar-
landi. Prófastar stiftisins, auk Halldórs Jónssonar, voru Þor-
steinn Pétursson á Staðarbakka, Jón Vídalín í Laufási og Hall-
grímur Eldjárnsson.
Jón Snorrason fyrrnefndur var sýslumaður Skagfirðinga, tók
við embættinu 1757. Hann átti Guðrúnu Skúladóttur fógeta
Magnússonar og bjó við nokkra rausn á Ökrum, sem Skúli
hafði látið húsa af miklum stórhug; naut þó ekki álits, drykk-
felldur og ráðlxtill.
168