Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 82
SKAGFIRÐINGABÓK
dóttur. Hún hafði búið þar um langa hríð með Odd digra bróð-
ur sinn sem ráðsmann. Gröf hafði hún fengið til framfærslu
ásamt átta öðrum jörðum er maður hennar, Gísli Þorláksson
biskup á Hólum, lést árið 1684. Ragnheiður var vel gjörð, ytra
sem innra, annáluð hannyrðakona og talin einn besti kvenkost-
ur landsins. Skagfirðingum fannst Ragnheiður vera „kona full-
komin á vöxt“, og fullyrtu að brókarlindi Odds digra bróður
hennar næði 11 sinnum (sumir sögðu 13 sinnum) utan um
mitti hennar. En mjótt mitti var mjög að fegurðarsmekk þeirra
tíma. Ragnheiður ól aldrei barn á ævi sinni, en þó að Gísli Þor-
láksson yrði þríkvæntur voru öll hjónaböndin barnlaus, þar
með talinn 10 ára hjúskapur með Ragnheiði. Slík myndarkona
sem Ragnheiður, gat varla eytt ævinni í ekkjustandi. Svo fór að
annar Hólabiskup, Einar Þorsteinsson, reið í hennar garð með
bónorð á vörum, en hann var þá sjálfur ekkjumaður og nokkuð
aldraður. Ragnheiður játaði og fór því aftur heim að Hólum
sem biskupsbrúður. Sú sæla varð skammvinn því eftir rúma tvo
mánuði í hjónabandi varð Einar biskup bráðkvaddur. Fór þar
síðasti af hinum mikilhæfu Hólabiskupum og tók að halla nið-
ur í móti fyrir Hólastað síðan. Þannig varð frú Ragnheiður
Jónsdóttir tvöföld biskupaekkja og þurfti að fara út Hjaltadal-
inn og flytja að Gröf í annað skipti. Hún giftist aldrei síðan og
dó í hárri elli. Vegur Ragnheiðar er ennþá nokkur, því nú prýð-
ir hún framhlið 5.000 króna seðilsins íslenska.
Skúli var ókvæntur er hann kom í Skagafjörð, en það kom á
daginn að enginn skortur var á húsfreyjum til þess að sjá um
húshaldið í Gröf. Sama vor og Skúli settist þar að bárust þær
fréttir úr Skaftafellssýslu að tvær konur hefðu þar alið barn og
kenndu báðar honum. Höfðu þær báðar verið hjá prestinum í
Bjarnanesi, þar sem Skúli dvaldist meðan hann var sýslumaður
austur þar. Hét önnur Steinunn, dóttir Bjarnar prófasts Thor-
lacius í Görðum. Hún var komin af Steinunni laundóttur Guð-
brands sem Skúli sjálfur. Svo fór að Skúli kvæntist henni, en
sór fyrir faðerni hins barnsins sem reyndar fæddist andvana.
80