Skagfirðingabók - 01.01.2002, Page 64
SKAGFIRÐINGABÓK
um sem höllum fæti stóðu, jafnvel svo mánuðum skipti og
greiðsla fyrir þetta var oftar en ekki víxlar sem hann seldi í
Búnaðarbankanum og varð síðan oft fyrir því að þurfa að leysa
þá til sín þegar séð var að þeir greiddust ekki.“
Árið 1973, 27. apríl, fékk Sigurður útgefið leyfi til heild-
verslunar og flutti inn um nokkurt skeið og seldi byggingar-
efni, m.a. húðaðar þilplötur til innanhússklæðningar, og mun
hafa verið einn þeirra fyrstu sem höndlaði með þær.
Fljótt eftir komuna til Reykjavíkur yfirgaf Sigurður Fram-
sóknarflokkinn, sem honum þótti hafa brugðist sér þegar mest
á reið. Hann gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og sat þar í
fulltrúaráði um langt árabil. Ekki slitnuðu þó vináttubönd við
fyrri félaga úr hans gamla flokki og nokkrir af gömlum vinum
hans í Skagafirði sóttu hann heim er þeir áttu leið til Reykja-
víkur, m.a. Oddur bóndi í Flatatungu Einarsson, sem gisti
jafnan heima hjá þeim hjónum.
Fjölskylduhagir og cevilok
Svo sem fram hefur komið var Sigurður Sigfússon þríkvæntur.
Fyrsta kona hans var Helga Guðrún Baldvinsdóttir, f. 28.05.
1918, d. 13.12.1978. Sonur þeirra er:
Freyr Baldvin, f. 1943, rafvirkjameistari, búsettur á Siglu-
firði. Eiginkona hans er Steinunn Jónsdóttir bankastarfs-
maður.
Önnur kona Sigurðar var Geirlaug Helga Þorkelsdóttir, f.
2O.ll.i922. Börn þeirra eru:
1) Una, f. 1948, rekstrarstjóri þjónustusviðs Atlanta, ensku-
og stærðfræðikennari. Eiginmaður hennar er Ólafur Gísla-
son blaðamaður.
2) Sigfús Jón, f. 1951, byggingariðnfræðingur í Reykjavík,
fagstjóri hjá Vinnueftirlitinu. Eiginkona hans er Ragnheið-
ur Einarsdóttir deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu.
3) Zophanías Þorkell, f. 1955, rafvirkjameistari. Tæknistjóri
62