Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 173
ELDJÁRNSÞÁTTUR
um aldamótin 1800 og lengi síðan en nú, tveim öldum síðar,
eru fræðingar loksins að lyfta Eiríki á stall sem frumkvöðli ís-
lenskrar skáldsagnaritunar á síðari öldum.76 Sannast svo enn að
hugsanir okkar um heiminn og mennina eru skuggamyndir,
þokusýnir dómgjarnra sem fara villir á heiðum tilverunnar.
Líf skólapilta var lengst af viðburðasnautt, mótaðist af bæn-
um og latínusöng í kaldri dómkirkjunni morgna og kvölds, fá-
tæklegum máltíðum, tímasókn og lestri. Helst gat borið til
tíðinda að einn og einn þeirra freistaðist til þess að fara með
galdrastafi og annað þess háttar, einkum ef það mætti verða til
þess að hann kæmist yfir kvenmann. Stöku sinnum kom líka
fyrir að þeir kræfustu brúkuðu tóbak eða dreyptu á brennivíni
en annars var helsta tilbreytingin að glíma og tuskast. Heim-
ildum um Eldjárn ber saman um að hann hafi verið „karl-
mannlega vaxinn, hraustur að afli og frækinn" og er líklegast
að það orð hafi lagst á hann á skólaárum hans.
Eins og að líkum lætur bar sitthvað til tíðinda í landssög-
unni á skólaárum Eldjárns. Heklugos varð í apríl 1766 með
landskjálftum og dynkjum og svo miklu öskufalli að hallæri
varð norðanlands og víðar, því að „hestar, ásauður og jafnvel
nautpeningur í húsum missti lífíð“.77 Fyrr sama ár „sálaðist úr
langsömum veikleika vor sannkallaði allranáðugasti kongur og
herra, Fridrich 5. (sem Islandi vildi allt gott, hvað hann sýndi
með sinni margfaldri geðgæsku og gjafmildi)".78 Sonur hans,
hinn geðsjúki Kristján 7., settist í hásætið aðeins 16 ára og í
hönd fóru miklir umbótatímar í danska ríkinu. Prestar og aðrir
embættismenn úr austurhluta Hólastiftis, Þingeyjar- og Eyja-
fjarðarsýslum, sóru kónginum unga hollustu sína í Glæsibæ
þann 15. september og embættismenn úr vesturhluta stiftisins
gerðu slíkt hið sama þrem dögum síðar á Flugumýri. „Tók
herra lögmaður Sveinn sem amtmanns fullmegtugur alla þessa
hyllingareiða norðan lands.“79
Móðurbræður Eldjárns, Þórður og Jón frá Völlum, yngri
hálfbræður Halldórs dómkirkjuprests, voru sem fyrr segir eldri
171