Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 225
NOKKRIR ELDJÁRNSNIÐJA
3c Ásmundur Gíslason, £21. ágúst 1872 á Þverá, d. 4. febrúar
1947, prófastur á Hálsi í Fnjóskadal (Guðfræðingaral, 34—35; ísl.
æviskrár V:283). K. 21. júní 1896: Anna Pétursdóttir, f. 12.
nóvember 1871, d. 25. febrúar 1936, húsmóðir. For.: Ólöf Bjarna-
dóttir húsmóðir og m.h. Pétur Sveinsson bóndi í Vestdal í Seyðis-
firði. Synir þeirra: Ólafur verkamaður í Reykjavík, Gt'sli kennari í
Reykjavík, Einar hæstaréttarlögmaður í Reykjavík.
3d Ingólfur Gíslason, f. 17. júlí 1874 á Þverá, d. 14. maí 1951,
héraðslæknir á Vopnafirði og í Borgarnesi, vel ritfær og hagorður
(Borgf. æviskrár V:83-84; Læknar á íslandi, 316—317). K.: 12.
febrúar 1903, Oddný Ólöf Vigfúsdóttir, f. 6. desember 1877, d.
18. nóvember 1952, hóteleigandi. For.: Herdís María Þorvalds-
dóttir húsmóðir - og m.h. Vigfús Sigfússon kaupmaður á Vopna-
firði. Börn þeirra: Karl Grönvold verslunarmaður í Reykjavík,
Ágústa húsmóðir í New York (kona Thors Thors sendiherra) og
Þorbjörg húsmóðir í New York.
3e Garðar Gíslason, f. 14. júní 1876 á Þverá, d. 11. febrúar 1959,
stórkaupmaður í Reykjavík og víðar; stofnaði umboðsverslun í
Leith 1901, stofnaði verslun í Reykjavík 1906, rak jafnframt fé-
lagsverslun sína í Leith til 1921 og eftir það eingöngu á eigin
nafni í Hull á Englandi um nokkurt skeið, fluttist til New York
1940 og rak þar umboðsverslun, fluttist aftur til Reykjavíkur
1956, einn athafnamesti kaupsýslumaður landsins um langt skeið
(Ættir Þingeyinga 11:320: ísl. æviskrár VI:136-137). K. 1: 13.
ágúst 1902, Þóra Sigfúsdóttir, f. 1. október 1874, d. 9. október
1937, húsmóðir. For.: Margrét Kristjánsdóttir húsmóðir og m.h.
Sigfús Guðmundsson bóndi á Syðri-Varðgjá. K. 2: 1943, Pina
Rosell, f. 28. maí 1905 í Bandaríkjunum. Börn Garðars og Þóru:
Þóra Briem húsmóðir í Reykjavík (kona Gunnlaugs Briem ráðu-
neytisstjóra), Bergur framkvæmdastjóri, Kristján stórkaupmaður í
Reykjavík og Margrét húsmóðir í Reykjavík (kona Halldórs H.
Jónssonar arkitekts og stjórnarformanns Eimskipafélagsins).
3f Haukur Gíslason, f. 14. júlí 1878 á Þverá, d. 14. janúar 1952,
prestur í Kaupmannahöfn. K.: Anna Louise Jörgensen.
223