Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 219
NOKKRIR ELDJÁRNSNIÐJA
aldrei kaup, en var þó verkmaður góður og húsbændunum trúr. í
ellinni var hann á framfæri Hvassafellsbænda. I Hvassafelli lést
Sigurður Einarsson á níræðisaldri“ (Eyfirskar ættir IV: 109).
Ih Sigfús Eldjárnsson, f. 15. mars 1797 1 Enni, d. 3. febrúar
1871 á Arnarstöðum í Eyjafirði; vinnumaður hjá Hannesi Lárus-
syni Scheving á Grenjaðarstað 1816, var eftir það í Miklagarði,
ásamt föður sínum og Solveigu systur sinni, síðan lengi bóndi og
hreppstjóri á Arnarstöðum, meðhjálpari í Hólakirkju í Eyjafirði,
hagyrðingur og orti talsvert af einkennilegum vísum (Eyfirskar
ættir IV:103—124). K. 1: 16. maí 1826 í Miklagarði, Sigríður
Árnadóttir, f. 1793 í Grímsey, d. 4. mars 1859, áður vinnukona í
Hvassafelli, hálfsystir Jóns Árnasonar þjóðsagnasafnara. For.:
Guðrún Grfmsdóttir húsmóðir og m.h. Árni Illugason prestur á
Hofi á Skagaströnd (Isl. æviskrár 1:51). Þau áttu eitt barn sem
fæddist andvana. Uppeldisbörn þeirra: Eldjárn Sveinsson frændi
Sigfúsar, sbr. hér fyrr, og Sigríður Sveinsdóttir sem varð barns-
móðir Sigfúsar, sbr. hér á eftir. K. 2: 1. júlí 1859, Helga Jóhann-
esdóttir, f. 4. ágúst 1822 í Helgárseli í Garðsárdal, ekkja Rand-
vers Sigurðssonar á Jökli. For.: Rósa Bjarnadóttir og m.h. Jó-
hannes Halldórsson bóndi í Helgárseli og síðar á Þremi í Garðs-
árdal. Dóttir þeirra: c) Helga Sigríður. Dætur Helgu og Randvers,
stjúp- og uppeldisdætur Sigfúsar: Guðrún Rósa, Þórunn og
Sigríður. Barnsmóðir Sigfúsar: Sigríður Sveinsdóttir, f. 20. febr-
úar 1830 á Bessahlöðum í Öxnadal, d. 18. apríl 1886 í Auðbrekku
í Hörgárdal; ólst upp á Arnarstöðum frá 8 ára aldri, enda var
Sigríður Árnadóttir ömmusystir hennar. Fékk fermingarvitnis-
burðinn „kann og skilur ágætlega vel, skikkanleg og vel upp alin“.
For.: Sigríður Guðmundsdóttir assistents Sveinssonar og m.h.
Sveinn Kristjánsson bóndi í Geirhildargörðum og á Bessahlöðum.
Sonur þeirra: b) Sigfús. Árið eftir að hann fæddist fluttist Sigríður
frá Arnarstöðum og var í vistum á nokkrum bæjum í hreppnum
en um 1860 giftist hún Friðbirni Benediktssyni. Hann átti lengi
við vanheilsu að stríða. Sonur þeirra var Jóhannes bóndi í Stóra-
Holti í Fljótum og víðar, faðir Ólafs forsætisráðherra.
2a Andvana barn.
217
L