Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 4
Gætið hófs í
matarinnkaupum
Oftast er óþarfi að kaupa svona mikið af matvöru
og sælgæti. Gerðu innkaupalista og farðu vel yfir
hann. Er í raun og veru þörf fyrir allt þetta gotterí?
Rifjaðu upp hvað varð afgangs síðustu jól og lenti í
ruslinu? Mundu líka að gjarnan hefst heilsuátak
skömmu eftir áramót, og því ekki gott að vera með
fulla skápa af konfekti. Ef þú sérð um matarboð á
jólum getur þú beðið gesti að borga í matnum, skaffa
drykki, meðlæti eða eftir-
rétti.
áfram, í stað þess að kaupa sérstök spariföt sem eingöngu
verða notuð í örfáum jólaboðum. Ekki gleyma notuðum fötum
af systkinum, frænkum og frændum. Einnig má kaupa fínasta
sparifatnað á nytjamörkuðum og sölusíðum á netinu.
Samvera þarf ekki
að kosta neitt
Jólatónleikar, hlaðborð og tíðar kaffihúsaferðir geta kostað sitt.
Mestu máli skiptir að eyða tíma með fjölskyldu og vinum, en
ekki peningum. Það kostar til dæmis ekkert að grípa í
spil á aðventunni, auk þess sem lítill kostnaður fylgir
því að hittast og baka saman smákökur eða gera
konfekt. Munið bara að skella jólatónlist á fón-
inn og skemmta ykkur.
Kostnaðaráætlun
Það að setja saman kostnaðaráætlun er ekki nóg eitt og sér, því
nauðsynlegt er að fara eftir henni. Ekki plana hin fullkomnu jól,
skoðaðu frekar hverju þú hefur efni á og hugleiddu í hvað þú
ert tilbúin/n að spandera. Jólin eru nefnilega bara í
nokkra daga, ekki setja nýja árið í uppnám með
óþarfa bruðli.
Færri og ódýrari gjafir
Jólagjafakaup geta auðveldlega farið út í vitleysu.
Gott er að skrifa niður lista yfir þá aðila sem þú ætl-
ar að gefa jólagjöf, og ákveða svo hversu miklu þú
vilt eyða í hvern pakka. Tilkynntu vinum og ætt-
ingjum tímanlega að þú ætlir að gefa færri eða
ódýrari gjafir í ár. Það getur einnig dregið úr
pressu á þá.
Notaðu hyggjuvitið
Gjafir þurfa alls ekki að vera dýrar. Þeir sem eru sniðugir geta
vel föndrað gjafir sjálfir en hægt er að fá fullt af hugmyndum á
Pinterest eða öðrum síðum á netinu. Þá má til dæmis kaupa
hluti á nytjamörkuðum og gera upp, búa til konfekt, baka dýr-
indis smákökur eða prjóna trefil. Þeir sem ekki eru flinkir í
höndunum, eða góðir að baka, geta gefið heimatilbúnar ávís-
anir. Boð í dögurð eða barnapössun gæti til dæmis slegið í
gegn.
Verslaðu á útsölum
Þeir sem sýna fyrirhyggju geta að sjálfsögðu byrjað að kaupa
gjafir löngu fyrir jól. Gott er að notast við útsölur, auk þess sem
bókamarkaðir standa ávallt fyrir sínu. Með þessu móti má einn-
ig dreifa kostnaðinum yfir lengra tímabil í stað þess að strauja
kortið óheyrilega í desember.
Umhverfisvænt og ódýrt
Gjafapappír er kannski ekki dýr, en safnast þegar saman kem-
ur. Kjörið er að nota það sem til fellur á heimilinu eins og dag-
blöð og auglýsingabæklinga sem hrúgast inn um lúguna. Sumir
geyma einnig pappír eða gjafaöskjur utan af eigin gjöfum og
nota að ári. Þá má vel nota afganga af garni eða tína köngla til
að skreyta gjafirnar með. Þarna má spara svolítinn aur, auk
þess sem endurvinnslan kemur sér vel fyrir náttúruna.
Ansi margir vakna við vondan draum þegar Visa-
reikningurinn dettur í hús eftir jól. Eyðslupúkinn
gerir nefnilega gjarnan vart við sig á aðventunni.
Svona þarf þetta þó alls ekki að vera, enda má yf-
irleitt vel draga úr útgjöldunum án þess að það
komi niður á jólastemningunni. Hér að neðan eru
nokkur ráð sem auðvelt er að tileinka sér.
Ellen Ragnarsdóttir | ellen@mbl.is
Ekki fara
á hausinn
um jólin
Gjafalaus jól
Þeir allra hörðustu kjósa hugsanlega að tileinka sér
gjafalaus jól og sleppa hreinlega öllu pakkastandi
og gjafakaupum.
Ekki spandera í skraut
Jólaskraut er rándýrt, það má því bæði notast
við gamla góða skrautið í stað þess að fjár-
festa í glænýju prjáli eftir nýjustu tísku-
straumum. Einnig má gera góð kaup á nytja-
mörkuðum og útsölum eftir jól. Þá er sniðugra
að kaupa frekar vandað skraut, sem endist, í
stað þess að eyða í muni sem lenda líklegast í
ruslinu eftir jól.
Jólakötturinn
er löngu dauður
Það er alger óþarfi að kaupa nýtt jóladress á hverju ári.
Bæði er gáfulegra, hagstæðara fyrir pyngjuna og betra fyrir
jörðina að notast við það sem finna má í skápnum. Ef krakkana
vantar ný föt er gott að fjárfesta í fötum sem þau geta notað
Getty Images
Falleg og
ódýr jólaföt
má til dæm-
is fá á ýms-
um sölusíð-
um á netinu.
Getty Images
Það er óþarfi að
fara á hausinn
um jólin.
Jólaskraut þarf ekki
að vera dýrt, til
dæmis má nota
greni úr garðinum.
Getty Images
Heimatilbúið
konfekt er gjöf
sem gleður.
Prjónaðar flík-
ur eru góð gjöf
sem gleður.
Getty Images
Getty Images
4 Jólablað Morgunblaðsins