Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 56
Djúpsteikti
kalkúnninn
hefur slegið
í gegn
Jólakræsingarnar eru flestum ofarlega í huga
um þessar mundir. Það má þó ekki gleyma
blessuðum áramótunum, enda ekki síður
skemmtileg. Í dag eru margir farnir að bjóða
upp á hátíðarkalkún að bandarískum sið á
gamlársdag, enda herramannsmatur.
Ellen Ragnarsdóttir | ellen@mbl.is
Berglind er snill-
ingur þegar kem-
ur að köku-
skreytingum.B erglind Hreiðars-dóttir, sem heldurúti heimasíðunniGotterí og gersemarbjó um tíma íBandaríkjunum þar
sem hún komst upp á lagið með að
matreiða djúpsteiktan kalkún sem
hefur verið á boðstólum á gamlárs-
kvöld undanfarin ár.
Þegar Berglind er spurð að því
hvað henni þyki skemmtilegast við
áramótin nefnir hún tilhlökkunina,
auk þess sem henni þyki gaman að
setja sér ný og fersk markmið fyrir
hvert ár. Hún játar að fjölskyldan
haldi ekki fast í ákveðnar áramóta-
hefðir, fyrir utan að borða góðan
mat og hafa gaman.
„Jólin eru meira heilög hvað slíkt
varðar á þessu heimili,“ segir Berg-
lind, sem býður þó að jafnaði upp á
það sama á áramótunum.
„Eftir að við fluttum heim frá
Bandaríkjunum tókum við með
okkur þá hefð að djúpsteikja kal-
kún með öllu tilheyrandi og hefur
það alveg slegið í gegn. Þar sem
við erum svo mörg höfum við haft
tvo kalkúna, en í fyrra vorum við
til dæmis með einn kalkún og svo
innbakaða nautalund þar sem sama
meðlætið passaði vel við hvort
tveggja. Við erum þó alveg opin
fyrir nýjungum hvað þetta varðar
svo það er aldrei að vita hvað verð-
ur í matinn þetta árið,“ bætir
Berglind við.
Eins og áður sagði er Berglind
sérlega lunkin þegar kemur að
kökuskreytingum, en hún hefur
meðal annars haldið námskeið í nú-
tímalegum kökuskreytingum. Hún
gerði sér lítið fyrir og skellti í gull-
fallega áramótabombu.
„Ég hef verið að prófa mig
áfram með þetta útlit á kökum síð-
an ég byrjaði með námskeiðin. Ég
skoða alltaf myndir á veraldar-
vefnum til að fá hugmyndir og út-
færi síðan í bland við mínar eigin
hugmyndir og úr varð þessi ára-
mótakaka, sem án efa verður bök-
uð að nýju um áramótin, enda svo
gaman að skreyta hana.“
Áhugasamir geta reynt að leika
listirnar eftir heima, því Berglind
lét ítarlegar leiðbeiningar fylgja.
Getty Images
56 Jólablað Morgunblaðsins
Sölutímabil 6. – 20. desember
S TYRK TAR F É LAG LAMAÐRA OG FAT LAÐRA
Askasleikir
Íslensk hönnun og smíði síðan 1924
Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is
GULL- OG SILFURSMIÐJA
Fallega jólaskeiðin
frá ERNU
Smíðuð á Íslandi úr 925 sterling silfri
Hönnuð af
Ragnhildi Sif Reynisdóttur
gullsmið og hönnuði Verð 21.500,-
❄ SJÁ SÍÐU 58