Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 10
Á Þorláksmessu árið 2009 rölti GuðrúnMaría kasólétt um bæinn, búin að skipu-leggja aðfangadagskvöld með fjölskyldusinni og Páli Þór manni sínum. Planiðbreyttist hins vegar þegar Guðrún Maríamissti vatnið á aðfangadagsmorgun. Guð-
rún María og Páll Þór bjuggust reyndar alveg eins við því
að stúlkan léti sjá sig á jólunum enda átti hún að fæðast 13.
desember. „Ég var oft búin að gera grín að því á meðgöng-
unni að hún kæmi á jólunum. Pabbi er náttúrulega jólabarn
líka, hann fæddist á jóladag nokkrum mínútum eftir mið-
nætti,“ segir Guðrún María.
Það er eins og það hafi verið skrifað í stjörnurnar að Dag-
björt Hanna ætti að koma í heiminn á jólunum enda komið
langt fram yfir settan dag og búið að bjóða móður hennar í
gangsetningu rétt fyrir jól sem hún afþakkaði. „Ég
vildi leyfa mér að klára þessa daga sem má fara
framyfir,“ sagði Guðrún María sem átti tíma í
gangsetningu eftir jól.
„Ég átti hana á Landspítalanum, það var
rosalega róleg stemning. Það var skreytt
með jólaskrauti og boðið upp á jólamat.
Ég held að það hafi verið hamborg-
arhryggur eða eitthvað svoleiðis,“ segir
Guðrún María sem hafði ekki mikinn
tíma til að borða kvöldmat þar sem Dag-
björt Hanna fæddist korter yfir sjö um
kvöldið. Móðir Guðrúnar Maríu kom þó með
afganga fyrir nýbökuðu foreldrana seinna um
kvöldið.
„Við gerum oft grín að því að við séum alveg
svakalega trúuð,“ segir Guðrún María og hlær en yngri
dóttir þeirra hjóna, María Bjarney fæddist á páskadag fyrir
rúmum tveimur árum. Guðrún María hefur því upplifað að
eiga barn bæði um jól og páska og mælir eindregið með því
að eiga barn á jólunum. „Það var miklu rólegri stemning á
aðfangadag. Það var alveg mun meira að gera í apríl þegar
ég átti seinni stelpuna og við þurftum að bíða eftir því að
læknir gæti komi til þess útskrifa hana og eitthvað svona.
Það var einhvern veginn ekkert svoleiðis með hina. Ég fékk
ljósmóður til þess að sitja hjá mér klukkutímum saman til
þess að ræða við mig um brjóstagjöf þannig þjónustan var í
rauninni miklu betri á aðfangadag af því ljósmæðurnar
höfðu svo góðan tíma.“
„Það er ekkert sem toppar þessi jól og örugglega ekkert
sem mun geta það bæði hjá okkur foreldrunum og ömm-
unum og öfunum og öllum,“ segir Guðrún María um þessi
óvenjulegu jól. Í dag passa þau vel upp á að afmæli Dag-
bjartar Hönnu týnist ekki í öllum jólaæsingnum. Oft halda
þau fjölskylduafmæli milli jóla og nýárs og vinaafmæli fyrir
jól. „Foreldrum finnst það bara geggjað að fá að skila
barninu af sér í nokkra tíma rétt fyrir jól og fá tvo tíma í
friði til að versla og svona,“ segir Guðrún María og segir
Dagbjörtu Hönnu jafnvel fá fleiri afmælisgjafir en aðrir. Alls
staðar þar sem hún kemur yfir jólin fær hún afmælispakka,
meira segja frá fólki sem er ekki boðið í afmæli til hennar.
Dagbjört er mikið jólabarn og segir móðir hennar að
henni finnist eins og allir séu að halda upp á afmælið sitt á
jólunum. „Hún byrjar að tala um hvernig hún ætlar að hafa
afmælið sitt í september og hvenær hún getur byrjað að
skreyta fyrir jólin og hvort það sé nú ekki að fara koma vet-
ur. Þegar snjórinn kom í nóvember langaði hana að fara
skreyta og rífa upp jólatréð,“ segir Guðrún María um litla
jólabarnið sitt.
Ekkert sem toppar
það að fá barn í jólagjöf
Morgunblaðið/Eggert
Guðrún María og Páll
Þór eignuðust þær
Dagbjörtu Hönnu á
aðfangadag og Maríu
Bjarney á páskadag.
Á meðan flestir landsmenn sátu við matarborðið og gæddu sér á jólasteikinni jólin 2009 buðu þau Guðrún
María Magnúsdóttir og Páll Þór Vilhelmsson frumburð sinn, Dagbjörtu Hönnu, velkominn í heiminn.
Stúlkan lét bíða eftir sér en móðir hennar mælir með því að eiga barn á aðfangadag.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir | gudrunselma@mbl.is
Dagbjört Hanna
er mikið jólabarn.
Dagbjört
Hanna kom í
heiminn korter
yfir sjö á
aðfangadags-
kvöld. Dagbjört er mikið jólabarn
og segir móðir hennar að
henni finnist eins og allir
séu að halda upp á af-
mælið sitt á jólunum
❄
10 Jólablað Morgunblaðsins