Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 108
Ert þú þessi umhverfivæna
jólatýpa? Ef svo er þá er bara
eitt í stöðunni og það er að
reyna að endurnýta eins og
hægt er. Til þess að vera sér-
lega umhverfisvænn má al-
veg endilega pakka jólagjöf-
unum inn í Morgunblaðið.
Það er að segja ef þú ert
ennþá á þeim stað að gefa
jólagjafir.
Þykktin á pappírnum hentar
vel en það þarf bara að passa
að líma pakkann vel saman
þegar pakkað er inn. Glært
hefðbundið límband smell-
passar inn í þennan gjörning.
Þegar búið er að pakka
pakkanum inn í Morgunblaðið
er fallegt að setja slaufu utan
um pakkann. Ef þú átt ekki
safn af gömlum borðum sem
þú getur endurnýtt þá fást
ódýrir og góðir borðar í Sö-
strene Grene. Þessi þykki
svarti smellpassar svona líka
fínt við pappírinn sjálfan.
martamaria@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Umhverfisvæna
jólatýpan
Sparaðu og
pakkaðu jóla-
gjöfunum inn í
Morgunblaðið.
Pakkarnir sem
pakkaðir eru inn
í Morgunblaðið
verða svo fal-
legir og fínir ef
þeir eru skreyttir
með flottum
borðum.
108 Jólablað Morgunblaðsins
F yrsti jólasnjórinn kemur mér íjólaskap. Ef hann kemur í sept-ember þá er eins gott að haldaaftur af sér en „It is beginning tolook a lot like Christmas“ ferbara ósjálfrátt að spilast í koll-
inum. Púrtvínstár á aðventunni er einfaldlega
jól í glasi og piparkökur með gráðaosti
með … namminamm, segir Ólöf aðspurð hvað
komi henni í jólaskap.
Ólöf er alin upp á Akureyri og segir að þar sé
laufabrauðshefðin rík.
„Mínar kærustu æskuminningar eru frá því
að stórfjölskyldan kom saman og skar út laufa-
brauðskökur sennilega í hundraða tali. Amma
stóð í eldhúsinu og flatti út sitt eigið deig, eitt-
hvað sem ég hef aldrei prófað af því að mér þyk-
ir alveg nóg að skera út og metnaðurinn hjá fjöl-
skyldunni er alveg á þeim stað að fæstir nota
hjól til að skera munstrið. Síðan má segja að við
komumst í almennilegt jólaskap þegar við höf-
um fengið nánustu fjölskyldu og vini í afmæl-
iskaffi af því að tvíburarnir okkar eiga afmæli
19. desember. Við höfum því oft náð fólki í súpu
og köku beint úr jólainnkaupum og þá erum við
oftast búin að skreyta húsið og jólastemningin í
algleymingi,“ segir hún.
Hvenær hefst jólaundirbúningur hjá þér?
„Oftast fyrstu helgina í aðventu. Þá er kveikt
á útiseríum, kransinn settur á útidyrnar og jóla-
tónlistin fær að læðast á fóninn inn á milli. Síðan
fer það nú alveg eftir því hvað er í gangi hverju
sinni hvað ég næ að gera af því sem skiptir mig
máli. Eitt af því sem mér þykir dýrmætt að
finna tíma til að gera eru heimalagaðar mat-
argjafir. Það er gaman að færa góðum vinkon-
um gjafir af þessu tagi korter fyrir jól. Þar hef-
ur verið að finna allt frá smákökum,
súkkulaðiplötum með einhverju gúmmelaði of-
an á, heimalöguðum vanilludropum, jólalíkjör
og íssósu svo eitthvað sé nefnt. En í rauninni er
ekkert sem segir að maður þurfi að standa á
haus í einhverju föndri, gott súrdeigsbrauð með
rauðri jólaslaufu er ljómandi flott gjöf.“
Hvað ertu með í jólamatinn?
„Þegar við hjónin héldum okkar fyrstu jól
með litlu tvíbbana okkar ákváðum við að vera
með eitthvað sem hvorugt okkar hefði alist upp
við og varð hreindýr fyrir valinu. Það er í dag al-
gjört jólajóla.“
Hvað er best við jólin?
„Samveran með nánustu ættingjum, allur
góði maturinn og jólakortin. Já blessuð jóla-
kortin sem eru dálítið hverfandi hefð en sú heil-
aga stund þegar kortin eru opnuð er engu lík.
Annaðhvort seint á aðfangadagskvöld eða í
kyrrðinni á jóladagsmorgun. Þá finn ég ein-
hverja tengingu við ættingja og vini og hug-
urinn reikar aftur í tíma og minningarnar
streyma fram. Mig langar helst að fara að
hringja í alla og spjalla meira um leið og ég er
búin að lesa kortin,“ segir hún.
Aðspurð hvað er ómissandi um jólin nefnir
Ólöf heimagert rauðkál.
„Ég hef oft hamast við að laga það á síðustu
stundu af því mér þykir það einfaldlega svo gott.
Komst hins vegar að því fyrir nokkrum árum
þegar fjölskyldan dvaldi erlendis yfir jólahátíð-
ina að enginn saknaði þess – ég í alvörunni hélt
að ég væri búin að skapa hefð og að einhver
segði að nú væru ekki alvörujól af því að heima-
lagaða rauðkálið hennar mömmu væri ekki með!
Nei nei, enginn minntist á það … en ég geri það
nú ennþá bara fyrir mig,“ segir hún og hlær.
Ólöf hefur tvívegis lent í því að dvelja á
sjúkrahúsi um jólin og segir hún að það sé afar
sérstök upplifun.
„Í seinna skiptið var ég með nýfædda tví-
burana á fæðingardeildinni og fékk að skreppa
heim til tengdafjölskyldunnar í jólamatinn en
þurfti að skilja krílin eftir. Það var mjög sérstök
upplifun og eins og mér þótti gott að komast
heim í jólamatinn var svo gott að komast aftur
til barnanna á spítalann um kvöldið. Þetta var
mjög sérstakt og mér verður oft hugsað til
þeirra sem þurfa að dvelja að heiman yfir hátíð-
arnar vegna veikinda. Tilveran er svo sann-
arlega önnur á svoleiðis tímum,“ segir hún.
Jólakortin skipa sér-
stakan stað í hjartanu
Ólöf Birna Garðarsdóttir, grafískur hönnuður og annar stofnenda
Reykjavík Letterpress, elskar jólakort og heimagert rauðkál. Það
kom henni mikið á óvart ein jólin þegar fjölskyldan dvaldi erlendis
að enginn minntist á heimagerða rauðkálið sem ekki var í boði.
Marta María | martamaria@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Ólöf Birna
Garðarsdóttir
elskar heima-
gert rauðkál
um jólin.
Gítarinn ehf
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • S: 552-2125
gitarinn@gitarinn.is • www.gitarinn.is
Rafmagnsgítar Kassagítar Rafmagnsbassi KassabassiKlassískur gítar
HeyrnartólÞráðlaus míkrafónn
Míkrafónar
í úrvali
Ukulele
Söngkerfi
Rafmagnsfiðla
Hljómborð í úrvali
Gítarpakki
Listaverð: 33.900,-
Okkar verð: 23.900,-
Gítar, poki, ól, stillitæki, auka
strengjasett og kennsluforrit.
Kajun tromma
Jólagjafir
í úrvali