Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 38
38 Jólablað Morgunblaðsins
Þótt Nanna sé lítið jólabarn á hún ekki í erfið-
leikum með að galdra fram girnilega jólaupp-
skrift fyrir lesendur. Hún gerði sér lítið fyrir og
reiddi fram hátíðlega önd, sem er tilvalin á jól-
unum eða öðrum tyllidögum. Nanna segir að
gott geti verið að hafa einhverskonar rækju-
eða humarrétt í forrétt, og jafnvel heimagerðan
súkkulaðiís í eftirrétt.
„Þetta kallar svo sem ekki á neitt sérstakt.
Mér finnst bara um að gera að hafa ekki eitt-
hvað allt of þungt og salt í matinn,“ segir
Nanna.
Fyrir 3-4
Þessi uppskrift er úr bókinni Pottur, panna
og Nanna, en hér er öndin þó fyllt og meðlætið
annað. Mér finnst best að brúna öndina bæði í
upphafi og í lokin en hafa hægan millikafla.
1 aliönd
pipar og salt
2 perur (eða epli)
100 g gráfíkjur (eða apríkósur)
2 laukar
2-3 gulrætur
2 sellerístönglar
2 rósmaríngreinar (einnig má nota timían)
1-2 lárviðarlauf
250 ml vatn, sjóðandi
sósujafnari eða hveiti til þykkingar
Hitaðu ofninn í 230°C. Taktu innmatinn úr
öndinni og skerðu hann í bita. Þerraðu öndina
vel með eldhúspappír. Gott er að skera kross-
mynstur í fitulagið á bringunni – en ekki niður í
kjötið – til að feitin sem bráðnar af öndinni geti
auðveldlega runnið niður. Kryddaðu öndina að
innan og utan með pipar og salti. Flysjaðu per-
urnar og skerðu þær í fjórðunga og skerðu grá-
fíkjurnar í tvennt. Fylltu öndina með ávöxt-
unum.
Skerðu lauk, gulrætur og sellerí niður og
dreifðu á botninn á stórum steypujárnspotti
eða eldföstu móti með þéttu loki. Dreifðu inn-
matnum yfir, ásamt kryddjurtunum, og krydd-
aðu með pipar og salti. Settu öndina ofan á með
bringuna upp og steiktu hana í um 20 mínútur.
Helltu þá sjóðandi vatni í pottinn, settu lok á
hann, lækkaðu hitann í 140°C og steiktu öndina
í um 1½ klst.
Taktu pottinn út og hækkaðu hitann aftur í
230°C. Helltu soðinu úr pottinum í sigti sem
haft er yfir skál. Settu pottinn með öndinni aft-
ur í ofninn, án loks, og steiktu í um 15 mínútur,
eða þar til hamurinn er fallega gullinbrúnn og
stökkur. Taktu öndina þá út og láttu hana bíða
á meðan sósan er búin til: Fleyttu mestalla fit-
una ofan af soðinu. Settu það í pott og hitaðu að
suðu. Þykktu það með sósujafnara eða hveiti-
jafningi, smakkaðu og bragðbættu eftir smekk.
Settu öndina á stórt fat og dreifðu meðlæti
(gjarna litríku) allt í kring. Meðlætið á mynd-
inni er heimagert rauðkál, heilar litlar perur
léttsoðnar í sítrónuvatni, heilar gráfíkjur, gufu-
soðið spergilkál, mandarínuhelmingar létt-
steiktir í smjöri, radísur, pekanhnetur og blá-
ber, skreytt með fersku lárviðarlaufi og
steinselju. Með þessu er svo upplagt að hafa
soðnar og smjörsteiktar kartöflur, auk sós-
unnar. Getty Images
Getty Images
Nanna segir að humar- eða
rækjuréttur gæti vel virkað sem
forréttur með öndinni.
Ís er alltaf góður
eftirréttur, og ekki
síður á jólunum.
Heilsteikt aliönd með perum og gráfíkjum
Það þarf ekki alltaf að bjóða
upp á hamborgarhrygg.
Nanna Rögnvaldar galdraði
fram girnilega hátíðarönd.
Heitt kakó með þeyttum rjóma er algerlega ómissandi drykkur á að-
ventunni. Flestir eru sælir og glaðir með hefðbundið súkkulaði í bolla,
en aðrir eru ögn djarfari og til í að leyfa bragðlaukunum að prufa eitt-
hvað nýtt.
Mjólkurkaffi með graskersbökubragði, eða „pumpkin spice latte“,
er vinsæll drykkur vestanhafs og þá sérstaklega í kringum hrekkja-
vöku og þakkargjörðarhátíðina. Íslendingar eru tiltölulega nýbúnir að
uppgötva drykkinn ljúffenga, en hann hefur verið að sækja í sig veðrið
á kaffihúsum landsins undanfarið. Auðveldlega má útfæra heitt hátíð-
arsúkkulaði með graskersbökubragði heima við, en drykkurinn ætti
að koma hvaða fúllynda trölla sem er í heljarinnar jólaskap.
Fyrir tvo
2 bollar nýmjólk (eða plöntumjólk fyrir þá sem neyta ekki dýra-
afurða)
2 msk. ósætt kakó (að sjálfsögðu má einnig nota súkkulaði)
1 msk. hlynsíróp (eða hunang)
1 tsk. graskersbökukrydd (ef erfiðlega gengur að finna tilbúið
krydd í verslunum má notast við heimatilbúna blöndu)
Öllum innihaldsefnum skellt í pott og hitað að suðu. Borið fram með
þeyttum rjóma og skreytt með svolítilli kryddblöndu eða súkku-
laðispæni. Þeir sem vilja gleðja sykurpúkann enn meir geta jafnvel
bætt sykurpúðum í drykkinn.
Heimatilbúin graskersbökublanda
3 msk. kanill, 2 tsk. engifer, 2 tsk. múskat, 1 ½ tsk. allrahanda,
1 ½ tsk. negull
Öllu blandað saman í litla skál eða hrist saman í krukku. Krydd-
blönduna má nota í ýmislegt annað, svo sem múffur og fleira. Getty Images
Heitt kakó með
graskersbökukeim
Bolli af rjúkandi
súkkulaði er ómiss-
andi á aðventunni.
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355
www.selena.is • Næg bílastæði
Selena undirfataverslun
Opið alla
daga til jóla
* Náttföt
* Náttkjólar
* Sloppar