Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 113
Jólablað Morgunblaðsins 113
www.gjofsemgefur.is
PIPA
R\TBW
A
•
SÍA
•
133567
J ólin skipta mig alltafmáli og með árunum nýtég þeirra meir og meir,sérstaklega eftir að églosaði mig undan þvísem „ætti“ að gera á jól-
unum,“ segir Margrét spurð um
jólin.
Margrét elskar að sofa í hvítum
damaskrúmfötum og segir að það
sé afar notalegt að skríða upp í
tandurhreint rúm á aðfangadag.
„Best við jólin er að ég sef alltaf
í hvítum straujuðum damaskrúm-
fötum með milliverki. Lyktin af
þeim á aðfangadag er ómissandi
sem og rjúpnalyktin. Best er auð-
vitað að næra samskipti og sam-
veru með fólkinu sem ég elska.“
Þegar Margrét er spurð út í sín
eftirminnilegustu jól nefnir hún
jólin þegar synir hennar voru litl-
ir.
„Jólin sem ég hef dvalið erlendis
standa upp úr. Í Mexíkó var ég á
siglingu allan aðfangadag í stað
þess að stússast í eldhúsinu,
spænsk jól eru frekar dauf fram
að þrettándanum og ég gat ekki
skilið að fólk horfði á fótbolta á að-
fangadagskvöldi. Líklegast eru þó
eftirminnilegustu jólin þegar
strákarnir mínir voru litlir,
spenntir og glaðir á jólunum. Það
var dásamlegt að vera í því hlut-
verki að gefa í skóinn og búa til
góða stemningu með þeim.“
Aðspurð hvort hún hafi einhvern
tímann upplifað skrýtin jól nefnir
hún jólin í Mexíkó.
„Það er skrýtið að vera í Mexíkó
á jólunum því hitinn og birtan
passa ekki við að það séu jól.“
Margrét treður ekki í sig kræs-
ingum á aðventunni. Hún fastar og
segir að það skýri hugsunina og
geri henni gott.
„Undanfarin ár hef ég tekið
jóla- og páskaföstu. Þá tek ég
þrjár vikur á hreinu fæði – borða
engan sykur, engan unninn mat og
engan mjólkurmat. Tvær máltíðir
á dag eru fljótandi og sú um miðj-
an daginn er ríkuleg. Það gerir
mér gott og eykur meðvitund mína
um holla lifnaðarhætti. Einnig fer
ég alltaf á í það minnsta tvenna
tónleika og reyni eftir mætti að
búa til samverustundir með vin-
um,“ segir hún.
Um jólin eldar hún rjúpur ef
hún kemst yfir þær og býr til
heimagerðan ís. Eftir föstuna
kann hún náttúrlega mun betur að
njóta þeirra kræsinga sem jólin
hafa upp á að bjóða.
Þegar Margrét er spurð út í
jólagjafainnkaup segir hún þau
verða æ einfaldari með hverju
árinu. Hún kýs að gefa frekar
samveru en eitthvað áþreifanlegt.
„Jólagjafir verða auðleystari
með hverju árinu sem líður. Þær
gjafir sem ég gef er gaman að
velja og æ oftar vel ég að gefa
samveru eða tíma – það sem ég á
minnst af.“
Sendir þú jólakort?
„Nei, það hef ég ekki gert lengi
lengi þó að alltaf sendi ég kannski
þrjú stykki.“
Hvað kemur þér í jólaskap?
„Veðrið, myrkrið, tónlistin,
skreytingarnar, samverustund-
irnar – allt hjálpast þetta að.“
Hvað langar þig í í jólagjöf?
„Þessa dagana er ég full af alls-
nægtatilfinningu og verð að segja
að mig langar ekki neitt annað en
að vera flutt inn í nýju íbúðina
mína á jólunum.“
Upplifir þú mikið jólastress?
„Nei, ekki eftir að strákarnir
mínir urðu fullorðnir. Nú vel ég
mun betur hvernig ég ver tíma
mínum.“
Flestir njóta þess að vera í fríi
en Margrét er sjaldnast í fríi um
jólin því hún er með marga skipti-
nema á sínum snærum og þeir
þurfa yfirleitt á henni að halda um
jólin.
„Eitt af því sem gerir jólin mín
skemmtileg er að fylgjast með
skiptinemum Mundo í Frakklandi,
Bandaríkjunum og á Spáni. Ég
elska starfið mitt og það er ein-
mitt um jólaleytið sem skiptinem-
arnir fara að blómstra fyrir al-
vöru. Þá eru þeir komnir svo langt
að bjarga sér á tungumálinu, eiga
vini og eru komnir yfir helsta
menningarsjokkið. Engu að síður
eru jólin skiptinemunum erfið því
eftir allt saman þá eru jólin tími
sem við viljum verja með þeim
sem við elskum mest. Því er hluti
af mínum jólum að vera með
skiptinemana mína á línunni og
hvetja þá áfram.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Margrét Jónsdóttir Njarðvík, eigandi ferðaskrifstofunnar Mundo, hefur haldið allskonar jól í gegnum tíð-
ina. Ólíkt mörgum öðrum tekur hún sig taki á aðventunni og fastar. Hún segir að það skili miklum ár-
angri, hugsunin verði skýrari og henni líði miklu betur í alla staði.
Marta María | martamaria@mbl.is
Fastar á aðventunni
„Undanfarin ár hef
ég tekið jóla- og
páskaföstu. Þá tek
ég þrjár vikur á hreinu fæði
– borða engan sykur, eng-
an unninn mat og engan
mjólkurmat.“
❄