Morgunblaðið - 01.12.2017, Page 113

Morgunblaðið - 01.12.2017, Page 113
Jólablað Morgunblaðsins 113 www.gjofsemgefur.is PIPA R\TBW A • SÍA • 133567 J ólin skipta mig alltafmáli og með árunum nýtég þeirra meir og meir,sérstaklega eftir að églosaði mig undan þvísem „ætti“ að gera á jól- unum,“ segir Margrét spurð um jólin. Margrét elskar að sofa í hvítum damaskrúmfötum og segir að það sé afar notalegt að skríða upp í tandurhreint rúm á aðfangadag. „Best við jólin er að ég sef alltaf í hvítum straujuðum damaskrúm- fötum með milliverki. Lyktin af þeim á aðfangadag er ómissandi sem og rjúpnalyktin. Best er auð- vitað að næra samskipti og sam- veru með fólkinu sem ég elska.“ Þegar Margrét er spurð út í sín eftirminnilegustu jól nefnir hún jólin þegar synir hennar voru litl- ir. „Jólin sem ég hef dvalið erlendis standa upp úr. Í Mexíkó var ég á siglingu allan aðfangadag í stað þess að stússast í eldhúsinu, spænsk jól eru frekar dauf fram að þrettándanum og ég gat ekki skilið að fólk horfði á fótbolta á að- fangadagskvöldi. Líklegast eru þó eftirminnilegustu jólin þegar strákarnir mínir voru litlir, spenntir og glaðir á jólunum. Það var dásamlegt að vera í því hlut- verki að gefa í skóinn og búa til góða stemningu með þeim.“ Aðspurð hvort hún hafi einhvern tímann upplifað skrýtin jól nefnir hún jólin í Mexíkó. „Það er skrýtið að vera í Mexíkó á jólunum því hitinn og birtan passa ekki við að það séu jól.“ Margrét treður ekki í sig kræs- ingum á aðventunni. Hún fastar og segir að það skýri hugsunina og geri henni gott. „Undanfarin ár hef ég tekið jóla- og páskaföstu. Þá tek ég þrjár vikur á hreinu fæði – borða engan sykur, engan unninn mat og engan mjólkurmat. Tvær máltíðir á dag eru fljótandi og sú um miðj- an daginn er ríkuleg. Það gerir mér gott og eykur meðvitund mína um holla lifnaðarhætti. Einnig fer ég alltaf á í það minnsta tvenna tónleika og reyni eftir mætti að búa til samverustundir með vin- um,“ segir hún. Um jólin eldar hún rjúpur ef hún kemst yfir þær og býr til heimagerðan ís. Eftir föstuna kann hún náttúrlega mun betur að njóta þeirra kræsinga sem jólin hafa upp á að bjóða. Þegar Margrét er spurð út í jólagjafainnkaup segir hún þau verða æ einfaldari með hverju árinu. Hún kýs að gefa frekar samveru en eitthvað áþreifanlegt. „Jólagjafir verða auðleystari með hverju árinu sem líður. Þær gjafir sem ég gef er gaman að velja og æ oftar vel ég að gefa samveru eða tíma – það sem ég á minnst af.“ Sendir þú jólakort? „Nei, það hef ég ekki gert lengi lengi þó að alltaf sendi ég kannski þrjú stykki.“ Hvað kemur þér í jólaskap? „Veðrið, myrkrið, tónlistin, skreytingarnar, samverustund- irnar – allt hjálpast þetta að.“ Hvað langar þig í í jólagjöf? „Þessa dagana er ég full af alls- nægtatilfinningu og verð að segja að mig langar ekki neitt annað en að vera flutt inn í nýju íbúðina mína á jólunum.“ Upplifir þú mikið jólastress? „Nei, ekki eftir að strákarnir mínir urðu fullorðnir. Nú vel ég mun betur hvernig ég ver tíma mínum.“ Flestir njóta þess að vera í fríi en Margrét er sjaldnast í fríi um jólin því hún er með marga skipti- nema á sínum snærum og þeir þurfa yfirleitt á henni að halda um jólin. „Eitt af því sem gerir jólin mín skemmtileg er að fylgjast með skiptinemum Mundo í Frakklandi, Bandaríkjunum og á Spáni. Ég elska starfið mitt og það er ein- mitt um jólaleytið sem skiptinem- arnir fara að blómstra fyrir al- vöru. Þá eru þeir komnir svo langt að bjarga sér á tungumálinu, eiga vini og eru komnir yfir helsta menningarsjokkið. Engu að síður eru jólin skiptinemunum erfið því eftir allt saman þá eru jólin tími sem við viljum verja með þeim sem við elskum mest. Því er hluti af mínum jólum að vera með skiptinemana mína á línunni og hvetja þá áfram.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Margrét Jónsdóttir Njarðvík, eigandi ferðaskrifstofunnar Mundo, hefur haldið allskonar jól í gegnum tíð- ina. Ólíkt mörgum öðrum tekur hún sig taki á aðventunni og fastar. Hún segir að það skili miklum ár- angri, hugsunin verði skýrari og henni líði miklu betur í alla staði. Marta María | martamaria@mbl.is Fastar á aðventunni „Undanfarin ár hef ég tekið jóla- og páskaföstu. Þá tek ég þrjár vikur á hreinu fæði – borða engan sykur, eng- an unninn mat og engan mjólkurmat.“ ❄
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.