Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 26
„Mér finnst jólin mjög
notalegur tími og flest í
kringum jólin. Mér
finnst samt gjafirnar oft
komnar út í vitleysu og
fólk of mikið að stressa
sig á því.“
hvað nýtt en svo eru
það alltaf vissar
kökur og réttir sem
maður gerir aftur og
aftur.“
Hvernig desertar og
kökur eru í uppáhaldi
hjá þér?
„Ég er alltaf hrifin af
franskri súkkulaðiköku og
reyni að breyta henni með því
að hafa mismunandi krem ofan á,
kúlukrem s.s. rjómakúlur og rjómi
brætt saman hefur alltaf verið vin-
sælt. Svo er ég mjög hrifin af osta-
kökum og að setja í falleg glös. Þeg-
ar það eru stærri veislur set ég
ostaköku í lítil plaststaup. Það er
bæði fallegt á borði og þægilegt að
geta hent svo glösunum.“
Hvað getur þú sagt um þessa eftir-
rétti sem þú töfrar fram hér?
„Ég er farin að nota Oreo-kökur
meira og meira í bakstur. Mig lang-
aði til að gera einfalt jólanammi sem
börn væru hrifin af. Í fyrstu áttu
kúlurnar að vera einhverskonar
trufflur sem mér finnst alltaf svo
góðar en mig langaði að prófa eitt-
hvað nýtt. Oreo-mintukúlurnar
komu mjög vel út og allir rosalega
hrifnir af þeim. Og ekki verra hversu
einfaldar og fljótlegar þær eru.
Hinn desertinn er ostakaka sem
ég setti í glös. Ég hef smakkað svip-
aða köku með skyri í en langaði að
breyta henni aðeins. Svo er hún svo
jólaleg með Lu-kexinu og rauðri
sósu. Svo getur maður sett hana í
eitt stórt form eða í glös og skreytt
eins og maður vill.“
Hvaða hráefni er í uppáhaldi?
„Súkkulaði er nánast í öllu sem ég
geri svo já, það er uppáhald.“
Hefur einhvern tímann eitthvað
mistekist í bakstrinum hjá þér?
„Já, það hefur sko komið fyrir oft-
ar en einu sinni. Núna seinast var
það þegar ég var að drífa mig að
gera afmælisköku fyrir karlinn
minn. Ég fékk svo góða Oreo-
karamelluköku hjá systur minni. Ég
var að drífa mig aðeins of mikið
þannig að karamellan varð alltof lin
og hún flæddi út um allt, hann fékk
bara karamelluköku frá Bak-
arameistaranum í staðinn.“
Hvað einkennir góða deserta?
„Desertar með súkkulaði, kara-
mellu eða rjóma geta varla klikkað.
Svo verða þeir líka að vera fallegir.“
Hvað ætlar þú að borða á
jólunum?
„Ég held í hefðina og verð hjá for-
eldrum mínum í hamborgarhrygg. Í
forrétt er sjávarréttahlaup sem er
mjög ljúffengt og í eftirrétt er
heimagerður ís og súkkulaðikaka
sem tilheyrir jólunum.“
Hvað finnst þér best við jólin?
„Ég hlakka alltaf til að borða góð-
an mat og vera með fjölskyldunni.“
Uppáhaldsjólalagið?
„So Merry Christmas með Celine
Dion er alltaf fallegt og Þú komst
með jólin til mín með Björgvini Hall-
dórs og Svölu.“
Oreo-mintukúlur
14 Oreo-kexkökur (1 pakki)
100 g rjómaostur
100 g hvítt súkkulaði
Bismark-mintubrjóstsykur
Setjið Oreo-kexkökurnar í mat-
vinnsluvél og hrærið svo rjómaost-
inum saman við. Búið til litlar kúlur.
Bræðið hvíta súkkulaðið yfir
vatnsbaði og hjúpið kúlurnar. Myljið
Bismark-brjóstsykur og stráið yfir.
Kirsuberjaostakaka
500 ml rjómi
60 g flórsykur
100 g rjómaostur
Lu-kexpakki
80 g smjör
Vanillustöng
Kirsuberjasulta
Hindber
Þeytið rjómann.
Hrærið saman flórsykur, rjóma-
ost og vanillu í annarri skál.
Blandið þessu öllu saman í eina
skál.
Setjið Lu-kexið í matvinnsluvél og
bræðið smjör saman við.
Setjið til Lu-kexið í botninn og
ostakökublönduna yfir. Setjið þunnt
lag af kirsuberjasultunni yfir og svo
aftur smá ostakökublöndu.
Skreytið með hindberjum.
Geymið í kæli í að minnsta kosti 1
klst. Gott er að gera kökuna degi áð-
ur en hún er borin fram og geyma í
ísskáp yfir nótt.
26 Jólablað Morgunblaðsins
Súkkulaði er í
miklu uppáhaldi
hjá Guðlaugu
Dagmar.
Guðlaug Dagmar
er mikill sælkeri
og hefur gaman
að því að búa til
deserta og kökur.
❄
Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15
Fallegir Aðventukransar
U