Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 68
D ragtir eru áberandi í jólatískunni.Það er ekki verra fyrir uppteknarmömmur og jafnvel ömmur að klæð-ast þægilegum fötum á jólunum.Þegar verið er að gera og græja ernefnilega ekki verra að fötin séu svo-
lítið meðfærileg. Þessi dragt kemur frá Mos Mosh og er
eins og himnasending fyrir uppteknu
mömmurnar. Um er að ræða svartan
jakka með stroffi á ermunum
og svolítið jogginglegar
buxur við sem eru með
bandi í mittið og stroffi
að neðan. Íþróttalegar
buxur með rönd í hlið-
inni hafa þótt ansi móð-
ins síðustu mánuði.
Hér er um að ræða ein-
falda útgáfu af þeim
tískustraum. Það sem
er sniðugt við þessi
jólaföt er að eftir há-
tíðahöldin má nota
buxurnar við lekkera
kasmír-peysu og
jakkann við einhver
allt önnur föt. Því
erum við komin með
mjög praktísk og
smart jólaföt. Dragt-
in fæst Hjá Hrafn-
hildi.
Jólaföt
praktísku
mömmunnar
Reynir að vera alltaf í
nýjum sokkum á jólunum
S porty eða uppdressað; það er allt leyfilegt oggaman að blanda saman stílum. Metal-tónar eruallaf skemmtilegir fyrir hátíðirnar ásamt sterk-um litum. Ljósblár, bleikur, flöskugrænn, appels-ínugulur og rauður eru einnig áberandi,“ segirStefán. En hvað er að hans mati klassískt og
gengur ár eftir ár?
„Litli svarti kjóllinn er alltaf vinsæll fyrir jól, en persónu-
legur stíll fer aldrei úr tísku og ættu allir að fylgja hjartanu
frekar en trendum.“
Stefán mælir þó með því að þeir sem eru ögn djarfari prufi að
blanda saman ólíkum mynstrum og litum í jóladressinu.
„Jól og áramót eru upplagður tími til að prufa sig áfram því
þá taka flestir myndir af þér.“
Þegar Stefán er spurður hvort hann trúi á jólaköttinn og fjár-
festi því alltaf í nýju dressi fyrir jólin segir hann svo ekki vera.
Hann sé ekki heldur búinn að ákveða hverju hann klæðist í ár.
„Ég trúi ekki bókstaflega á jólaköttinn en ég reyni þó að
vera í nýjum sokkum um jól. Ég er ekki búinn að ákveða í
hverju ég ætla að vera en ég verð allavega í mjög þægilegum
fötum.“
En hvert skyldi eftirminnilegasta jóladressið vera?
„Ég hef ekki átt jóladress síðan ég var barn, en þá saumaði
mamma oftast á mig föt og það þykir mér vænt um,“ segir Stef-
án.
Aðspurður hvort hann hafi einhvern tímann gerst sekur um
tískuslys á jólunum segist hann hreint ekki trúa á tískuslys. En
hvað með ljótar jólapeysur og kósí náttföt, er slíkur klæðnaður
boðlegur á jólunum að mati Stefáns?
„Að sjálfsögðu er það boðlegt ef jólaskapið fylgir með og þér
líður vel.“
Stefán Svan er með puttann á púlsinum
þegar tíska er annars vegar, en hann rekur
verslunina Stefánsbúð/p3 sem nýlega flutti
á Ingólfsstræti. Þar geta fagurkerar fengið
fallega hönnunarvöru ásamt notaðri
merkjavöru. Stefán segir að allt sé leyfilegt
fyrir þessi jól og metal-tónar séu alltaf
skemmtilegir fyrir hátíðirnar.
Ellen Ragnarsdóttir | ellen@mbl.is
Allar konur ættu
að eiga einn lít-
inn, svartan kjól.
Þessi er frá
Elizabeth and
James og kostar
44.000 krónur á
Net-A-Porter.
Morgunblaðið / Hari
68 Jólablað Morgunblaðsins
Buxurnar kosta
20.980 kr. og fást
Hjá Hrafnhildi.
Skyrtan kost-
ar 17.980 kr.
og fæst Hjá
Hrafnhildi.
Jakkinn kostar
27.980 kr. og fæst
Hjá Hrafnhildi.
Lakkskór með slaufu
frá Zara. 6.990 kr.
Lakkskór frá Zara.
4.990 kr.
Jólatilboðsverð
kr. 129.002,-
Vitamix Pro 750 á sér
engann jafningja.
Nýtt útlit og nýir
valmöguleikar.
5 prógrömm og
hraðastillir sjá til þess
að blandan verður
ávallt fullkomin og
fersk!
Galdurinn við
ferskt hráefni
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Metal-tónar koma jafnan
sterkir inn fyrir hátíðirnar.
Balmain-kjóll á 446.000
krónur er þó líklega of
stór biti fyrir flesta. Fæst
á Net-A-Porter.
Stefán Svan er
alltaf í glænýjum
sokkum á jól-
unum.