Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 32
32 Jólablað Morgunblaðsins
metisætur. Svo eru aðrir sem bara
borða fisk, á meðan sumir borða kjöt.
Ég er því farin að hafa matseðilinn
frekar fjölbreyttan. Ég er alltaf með
á boðstólum hnetusteik sem ég bý til
sjálf, en hún er líka í boði hér á veit-
ingastaðnum mínum Yogafood. Svo
er ég oftast með þrjú mismunandi
salöt, en ég bý til helling af þeim
þannig að það sé til nóg fyrir öll jólin.
Þau haldast svo vel því ég nota gott
kál og rótargrænmeti svo salatið
verður bara betra með degi hverjum.
Í forrétt er ég með lax, en með hon-
um er mjög góð heimatilbúin sósa.
Einnig er ég oft með fylltan kalkún,
en það er hefð frá móður minni. For-
eldrar mínir áttu heima í Bandaríkj-
unum þegar þau voru ung og komu
heim með uppskrift að fylltum kal-
kún sem við fengum alltaf á jólunum.
Þessa hefð tók ég yfir, en fyllingin er
æðisleg. Ég er því með sitt lítið af
hverju,“ segir Þorbjörg, en að henn-
ar mati er algerlega hægt að gera vel
við sig yfir hátíðirnar án þess að
stofna heilsunni í hættu.
„Desertinn sem ég býð upp á er
mjög hefðbundinn. Ég útbý ris a la
mande og kirsuberjasósu, en þetta er
allt saman sykur- og mjólkurlaust.
Maturinn hjá mér virðist þungur, en
þar sem það er svo mikið af góðu
grænmeti, enginn viðbættur sykur
og ekkert glúten í einu eða neinu fer
fólk frá borði satt og glatt. Yfirleitt
baka ég líka smákökur fyrir jólin.
Þær eru líka glúten- og sykurlausar
en samt alveg ótrúlega góðar. Ég veit
að þetta getur farið aðeins úr bönd-
unum hjá mörgum í desember. Mað-
ur borðar of mikið af öllu og það er
búið að gefa leyfi fyrir namminu,
konfektinu og kökunum. Ég gef
sjálfri mér líka leyfi fyrir ýmsu sem
ég geri ekki venjulega, en passa þó
að vanda val mitt því of mikið af því
slæma kostar of mikið,“ segir Þor-
björg og bætir við að það sé algerlega
hægt að borða góðan mat án þess að
stofna heilsu, maga og meltingu í
hættu. En skyldi hún luma á ein-
hverjum ráðum fyrir fólk sem vill síð-
ur fara yfir strikið í desember?
„Þetta er mjög einföld spurning,
en svarið gæti verið svolítið flókið.
Það er mjög auðvelt fyrir mig að
segja fólki að passa sig á sykrinum
og vanda sig í vali, en hvernig gerir
maður það? Hvernig finnur maður
þann ásetning og styrk hjá sér í þess-
um mánuði? Fyrst og fremst þarf
maður að taka ákvörðun um að fara
ekki fram úr sér. Til dæmis ef maður
ætlar að baka smákökur er hægt að
notast bara við helminginn af sykr-
inum sem er í uppskriftinni. Kannski
er hægt að sleppa viðbættum sykri
alveg. Eða jafnvel nota pálmasykur
til helminga við þann venjulega. Svo
má líka nota eitthvað af þessum nátt-
úrulegu sætuefnum, eins og xylitol
eða stevíu sem hægt er að fá með
ýmsum bragðtegundum. Svo myndi
ég athuga hvort það sé hægt að nota
spelt í staðinn fyrir hvítt hveiti. Ef
maður minnkar sykurmagnið um
helming, notar pálmasykur og spelt í
staðinn fyrir hvítt hveiti er maður
kominn þó nokkuð langt á veg. Svo
má auðvitað koma við í Yogafood hjá
mér og kaupa smákökur og láta mig
bara sjá um þetta,“ bætir Þorbjörg
við, glettin.
„Það þarf ekki að velja þetta hefð-
bundna. Það er allt í lagi að vera
djarfur og hugrakkur og bregða að-
eins út af vananum. Fara aðeins út
fyrir þægindarammann og prófa eitt-
hvað nýtt. Það gæti verið að það
kæmi skemmtilega á óvart.“
Getty Images
Sætkartöflumús er
ómissandi á jólum.
„Það er mjög
auðvelt fyrir mig að
segja fólki að
passa sig á sykrinum og
vanda sig í vali, en hvernig
gerir maður það?“
❄
UPPLIFÐU
TÖFRANDI
VERÖLD
TULIPOP
Gl
oo
my
Fred
Bubble
MissMaddy
Tulipop verslunin
Skólavörðustíg 43
101 Reykjavík
www.tulipop.is