Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 20
J ólin eru tími hefða, flestir vilja halda í gömlujólasiðina sem þeir upplifðu í æsku. Á fyrstuáratugum 20. aldar var almenn neysla fólksannars konar en við þekkjum í dag og efna-hagur fólks afar misjafn. Fátækt var land-læg fram yfir seinna stríð og vöruúrval tak-
markað. Jólahaldið endurspeglaði því efnahag og
aðstæður. Þeir sem minna höfðu milli handanna létu
sér nægja einfalda umgjörð, kerti og spil, meðan þeir
sem bjuggu við betri kjör gátu gert vel við sitt fólk,
keypt bæði fínan mat, gjafir og jóla-
skraut. En allir reyndu að halda há-
tíðleg jól, segir Gerður og bætir
við að skraut á alþýðuheim-
ilum hafi fyrst og fremst
verið handgert og fólk hafi
mikið skreytt með músa-
stigum og spýtujólatrjám.
„Kramarhús voru einn-
ig búin til og fyllt með
rúsínum, eða ekki. Flestir
keyptu kerti en heimagerð
kerti þekktust þó. Þeir sem
áttu aura gátu keypt jólatré og
glitrandi jólakúlur. Fram yfir 1950
var yfirleitt aðeins stofan skreytt
og það þá gert á Þorláksmessu.
Með tímanum varð jólaskraut á
heimilum landsmanna bæði fjöl-
breyttara og umfangsmeira. Ljósa-
skreytingar í glugga fara að sjást
um 1970, algengar voru pappírsstjörnur með ljósaperu
innan í og seinna komu svo aðventuljósin sem enn eru
vinsæl,“ bendir Gerður á, en hvað með dægradvöl og
skemmtun, hvernig var slíku háttað yfir hátíðirnar?
„Hér áður fyrr voru jólin mun heilagri hátíð en er í
dag, víða var bannað að spila á jóladag og margir ef-
laust hvíldinni fegnir. Jólin urðu snemma fjöl-
skylduhátíð, jólaboð hafa tíðkast lengi og svo jólaböll
og skemmtanir annan dag jóla og eins dagana milli jóla
og nýárs.“
Gerður segir einnig að Íslendingar hafi verið mun
hófstilltari í gjafakaupum heldur en þekkist í dag.
„Í gamla bændasamfélaginu voru jólin fyrst og
fremst haldin hátíðleg með betri mat og hvíld, enginn
átti að vinna á jóladag. Sérstakar jólagjafir tíðkuðust
varla, fólk fékk þó kerti og nýja flík fyrir jólin. Í þétt-
býlinu urðu áhrif frá útlöndum fljótlega augljósari. Þar
kepptust kaupmenn við að auglýsa tilvaldar og hent-
ugar jólagjafir af ýmsu tagi. Ungar stúlkur í Reykjavík
tóku sig til og bjuggu til jólagjafir handa fátækum
heimilum í bænum árið 1876 og héldu einnig jóla-
skemmtun fyrir börnin í bænum milli jóla og nýárs.
Þar fengu börnin gjafir og dansað var í kringum
jólatré. Jólabókin varð síðan algeng jólagjöf, sér-
staklega á skömmtunarárunum eftir síðari heimsstyrj-
öld. Sem fyrr fóru jólagjafirnar mikið eftir efnum fólks
og aðstæðum, en óhætt er að segja að það jólagjafaflóð
sem við þekkjum í dag var nánast óþekkt fyrirbæri
fyrir 1960.“
Þrátt fyrir að lítið hafi verið um gjafir í gamla
bændasamfélaginu fengu flestir nýja flík fyrir jólin til
að forðast jólaköttinn.
„Ný flík gat verið margt, prjónaðir sokkar
eða leppar í skóna, kannski ný svunta eða
treyja. Jóladress í okkar skilningi komu
seinna og yfirleitt átti fólk ekkert sérlega
mikið af fötum. Sérstök jólaföt urðu ekki
algeng fyrr en eftir 1960, nema kannski á
fínustu heimilum.“
Gerður segir einnig að mat-
urinn sem borðaður var á jól-
unum hafi verið fremur ólík-
ur því sem við eigum að
venjast í dag, þótt boðið
hafi verið upp á það besta
sem til var á heimilinu
hverju sinni.
„Matur á jólum var ætíð
það besta sem hægt var að
bjóða á hverjum tíma. Stundum
var soðið kindakjöt sett í askana,
sem var þá kærkomin tilbreyting frá súrmeti og graut.
Með batnandi efnahag, aukinni verslun og frystingu
matvæla breyttust siðir landsmanna. Um 1960 var
lambakjöt víða á borðum landsmanna um jólin, kóte-
lettur, læri eða hryggur. Þá urðu rjúpur einnig vinsæll
jólamatur. Meðlætið var brúnaðar kartöflur, grænar
baunir og rauðkál, og svo náttúrlega malt og appelsín.
Með fjölbreyttari matvælaframleiðslu varð fjölbreytnin
meiri, hamborgarhryggurinn varð vinsæll og meðlætið
fjölbreyttara.“
En hvaða hefðir höldum við enn í án þess hugs-
anlega að átta okkur á því að þær eru gamlar?
„Sá siður að fara til kirkju á aðfangadag er gamall
og var mjög ríkjandi langt fram eftir 20. öldinni og enn
í dag eru allar kirkjur landsins fullar út úr dyrum á að-
fangadagskvöld. Svo er náttúrlega laufabrauðsskurð-
urinn afar gamall og skemmtilegur siður sem enn er
ómissandi í jólaundirbúningi margra.“
Flestir vilja halda í
gömlu jólasiðina sem
þeir upplifðu í æsku
Gerður Eygló Róbertsdóttir, verkefnastjóri munavörslu Árbæjarsafns-
ins, segir jólahefðir Íslendinga tiltölulega lítið hafa breyst síðustu 100 ár,
þótt siðir og venjur hafi að sjálfsögðu þróast í takt við breytta tíma.
Ellen Ragnarsdóttir | ellen@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gerður Eygló,
verkefnastjóri
munavörslu
Árbæjarsafnsins.
Morgunblaðið/Hari
Jólatré hafa
tekið nokkrum
breytingum síð-
ustu áratugi.
Fallega dekkað
borð að gömlum
sið á Árbæjar-
safninu.
„Óhætt er að segja að það jóla-
gjafaflóð sem við þekkjum í dag var
nánast óþekkt fyrirbæri fyrir 1960.“❄
Lagtertur og
smákökur
þóttu ómiss-
andi á jólum
hér áður fyrr.
20 Jólablað Morgunblaðsins
Verið velkominí safnbúðÁrbæjarsafnsOpið daglega 13:00-17:00
w
w
w
.b
or
ga
rs
og
us
af
n.
is