Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 50
50 Jólablað Morgunblaðsins
Hver er ekki sjúkur í salthnetur, ritzkex og allt það! Hægt er að fara nokkrar leiðir með þessa
köku. Það er vissulega hægt að setja deigið í tvö hefðbundin kökuform en það má líka setja
hana í skúffu, skera í bita og frysta líkt og fólk gerir með sörurnar. Hún er ferlega góð með ís-
tertu ef þú ætlar að gera alveg sérdeilis vel við þig yfir jólin.
Botn
8 eggjahvítur
8 dl púðursykur
1 msk. lyftiduft
1 tsk. vanilludropar
5 dl salthnetur
40 ritzkex
Stífþeytið saman eggjahvítur og sykur. Þegar blandan er orðin létt og áferðarfalleg er lyfti-
dufti, vanilludropum, salthnetum og ritzkexi bætt út í og þeytt þar til deigið er orðin fallegt.
Setjið deigið í tvö bökunarform með bökunarpappír. Bakið botnana í 20 mínútur við 180
gráður.
Krem
8 eggjarauður
150 g flórsykur
100 g smjör
200 g suðusúkkulaði
Setjið súkkulaði og smjör í pott og bræðið saman. Þeytið eggjarauðurnar vel og vandlega og
bætið flórsykrinum út í. Þegar súkkulaðibráðin er tilbúin og búin að kólna örlítið er henni bætt
út í eggja- og flórsykurshræruna.
Baby Ruth-terta
Baby Ruth terta á
tveimur hæðum er
eitthvað fyrir þá sem
elska súkkulaði og
salthnetur.
Bananabrauð er kannski ekki spennandi eftirréttur á aðfangadag en það er engu að síð-
ur mjög gott sem morgunmatur um jólin eða sem bakkelsi þegar verið er að undirbúa
jólin. Það er fátt notalegra en að fá smá bananabrauð á meðan jólagjafalistar eru útbún-
ir, jólagjöfum er pakkað inn eða jólakortin skrifuð. Þegar bananabrauðið er komið með
karamelluglassúr yfir sig allt verða stundirnar einhvern veginn ennþá betri.
Bananbrauð
3 bollar hveiti
1 tsk. kanill
1 tsk. lyftiduft
¾ tsk. salt
1½ bolli kókosolía
2 bollar púðursykur
3 stór egg
1 bolli valhnetur
4 vel þroskaðir bananar
Byrjið á því að þeyta egg, kókosolíu og sykur saman. Svo er þurrefnum bætt út í einu
af öðru og í lokin bönunum og valhnetum.
Þetta bananabrauð var sett í eldfast mót með bökunarpappír en það má líka setja það
í hefðbundin brauðform.
Bakið við 180 gráður í 45 mínútur.
Karamellukrem
4 kúfaðar msk af smjöri
150 g púðursykur
4 kúfaðar msk. rjómi
Allt sett saman á pönnu og brætt saman. Þegar karamellan er tilbúin og ban-
anabrauðið eiginlega klárt er henni hellt yfir og leyft að bakast með brauðinu síðustu
fimm mínúturnar.
Bananabrauð með karamellu
Bananabrauð með
karamellu er mögu-
lega með því betra
sem hægt er að setja
inn fyrir varirnar.
Ef þér finnst snickers-súkkulaði gott áttu eftir að
elska þennan ís. Þú getur líka notað dumle-karamellur
í staðinn nú eða bara twix eða eitthvað slíkt.
Snickers-kaffiís
6 eggjarauður
100 g púðursykur
2 stór snickers
6 dl þeyttur rjómi
2-4 tsk. kaffiduft, fer eftir hvort þú vilt hafa mikið
eða lítið kaffibragð
Byrjaðu á að þeyta rjómann og setja hann til hliðar.
Þá eru eggjarauður hrærðar ásamt púðursykri; þeytið
þar til blandan verður létt og ljós. Þá er snickers-
súkkulaðið skorið smátt og bætt út í ásamt kaffidufti
og þeytt vel saman. Í lokin er rjómanum blandað var-
lega saman við.
Þegar ísinn er tilbúinn er best að setja hann í box
með loki svo það komi ekki frostnálar í hann. Það tekur
ísinn um það bil átta tíma að frjósa almennilega.
Snickers-kaffiís
Snickers-kaffiís.
Þarf að segja
eitthvað meira?
Smart jólaföt, fyrir smart konur
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52