Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 95
xx
Jólablað Morgunblaðsins 95
Laugavegi 103, við Hlemm | 105 Reykjavík | Sími 551 5814 | www.th.is
Sendum frítt
Skoðaðu úrvalið á www.th.is
Jólagjafir
Íþróttartaska
34.900 kr.
ADAX ullartrefill
8.900 kr.
Dömuhanskar
Herrahanskar
7.900-
14.500 kr.
14.500 kr.
ADAX
handtaska
34.900 kr.
ADAX ferðaveski
8.900 kr.
ADAX tölvutaska
29.900 kr.
ADAX hliðartaska
26.100 kr.
jólatré skreyti ég með listmunum. Á
því er safn muna sem ég hef safnað í
áratugi. Uppistaðan í þessu, fyrir ut-
an íslenskt handverk, er danskt
handgert jólaskraut, handmálað jóla-
skraut frá Kasmír og þegar ég var í
New York á dögunum og ætlaði ekki
að kaupa nokkurn skapaðan hlut
bættust við þrjár handmálaðar jóla-
kúlur frá Úsbekistan. Þetta er svo
meiriháttar flott og handmálað að ég
stóðst ekki freistinguna,“ segir hann.
Pabbi var aldrei heima
Ármann þurfti snemma að axla
ábyrgð á jólahaldinu. En eitt af hans
hlutverkum á heimilinu var að
skreyta jólatréð á Þorláksmessu eins
og var til siðs á þeim árum.
„Faðir minn var yfirmaður á Póst-
húsinu í Reykjavík. Á þeim árum
þegar ég var að alast upp var unnin
tvöföld vinna í desember til þess að
koma jólapóstinum til skila fyrir jólin.
Hann gat því ekki tekið þátt í jóla-
undirbúningnum sem lagðist alfarið á
móður mína. Á 10. ári byrjaði ég að
létta undir og skreytti jólatréð sem
ég hef gert allar götur síðan og hef
mikla ánægju af því.“
Þegar Ármann er spurður út í stíl-
inn segist hann heillast af fallegu lát-
leysi. Hann er ekki hrifinn af
ofskrauti því þá missi heimilið marks.
Hann er heldur ekki hrifinn af því að
nota of mikla liti því það verði svo
yfirþyrmandi.
„Ég vil hafa jafnvægi á öllu slíku
ekki síður en í lífinu sjálfu,“ segir
hann.
Ármann er flinkur að leggja á borð
og hann vill hafa jólaborðið klassískt.
„Þetta er líklega sérstæðasta jóla-
borð á Íslandi. Ljós jóladúkur 34 ára
gamall, handofinn með mynstri, úr
írsku líni sem hætt er að framleiða
vegna kostnaðar. Á borðstofuborðinu
eru tveir tveggja arma enskir silfur-
kertastjakar og á því miðju djásn
með 3 staukum fyrir blómaskreyt-
ingu. Þetta eru silfurmunir frá dög-
um Viktoríu drottningar frá um 1850.
Silfurborðbúnaðurinn er með gamal-
grónu ensku mynstri, „Reed and
Ribbbon“. Ég stundaði nám í The
London School of Economics og á
námsárunum bjó ég í Baker Street og
fékk áhuga á antik og fornmunum
sem nóg er af í Lundúnum,“ segir
hann.
Talið berst að matarstellinu, sem
er sögufrægt.
„Þetta er Alþingishátíðarstellið frá
1930 en það var sérstaklega hannað
fyrir ríkisstjórnina þegar haldið var
upp á 1000 ára afmæli Alþingis. Stell-
ið er framleitt af einni þekktustu
postulínsverksmiðju í Dresden í
Þýskalandi sem sprengd var upp í
síðari heimsstyrjöldinni. Á hverjum
hlut stendur með rúnaletri í ljósblárri
umgjörð „Alþingi Íslands 930-1930“.
Ég er líklega með stærsta safn sem
til er. Alþingishátíðarstellið er dekk-
að upp þegar mikið liggur við,“ segir
„Þetta er Alþingishátíðarstellið frá 1930 en það
var sérstaklega hannað fyrir ríkisstjórnina þegar
haldið var upp á 1000 ára afmæli Alþingis.“ ❄
Kertastjakarnir setja
svip sinn á jólaborðið
og passa vel við stellið.
❄ SJÁ SÍÐU 96
Alþingishátíðarstellið
er sögufrægt. Ármann
keypti það fyrir mikla
peninga árið 1984.
Jólaskrautið
nýtur sín vel
á spegla-
borðinu.