Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 2
10
Eignuðust barn
á aðfangadag
102
2 Jólablað Morgunblaðsins
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Ellen Ragnarsdóttir ellen@mbl.is Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is Lilja Ósk Sig-
urðardóttir lilja.osk.sigurdardottir@gmail.com Marta María Jónasdóttir martamaria@mbl.is, Auglýsingar Katrín Theodórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
J ólin eru býsna magnaður og ævintýralegur tími. Flest-ir eru fullir eftirvæntingar og leggja mikinn metnað íað hafa jólin sem flottust og best. Og mömmur þessalands (og auðvitað stöku pabbar) leggja sig fram við aðtöfra fram heilan heim sem er fullur af ævintýrum,glimmeri og sykurhúðuðu stuði og þess gætt vel að lífs-
blómið sé vökvað. Þótt glassúrinn velli af jólahlaðborði lífsins þá
getur þessi tími líka verið snúinn.
Jólaklisjan er náttúrlega þannig að allir séu glaðir og kátir, nóg
sé til af öllu, ekkert skorti og allir fari saddir og sælir í háttinn á
aðfangadag. Það er því miður ekki þannig allsstaðar.
Þótt jólin eigi að vera gleðihátíð mikil geta jólin verið hræðilega
erfið. Það á ekki bara við um þá sem eiga við erfiðleika að stríða í
lífinu heldur líka hjá þeim sem virðast vera með allt á hreinu.
Jólin eru til dæmis alveg sérkafli hjá skilnaðarbörnum og for-
eldrum þeirra. Auðvitað eru til milljón útgáfur af jólum skilnaðar-
barna en algengt er á Íslandi að foreldrar skiptist á að hafa börn-
in hjá sér um jól og áramót. Það er að segja, ef börnin eru hjá
móður á jólum eru þau hjá föður um áramót og öfugt. Svona rúll-
ar þetta hjá flestum ár eftir ár þangað til börnin verða það stálp-
uð að þau halda sín eigin jól.
Ég hélt til dæmis að ég sem skilnaðarbarn sjálf gæti nú ekki
klikkað á neinu þegar ég gekk sjálf í gegnum skilnað. Ég hélt ég
hefði lært svo mikið af hjónaskilnaði foreldra minna að ég væri
útlærð í faginu. En því miður er lífið ekki alveg svo einfalt. Við
þurfum nefnilega að ganga sjálf í gegnum erfiðleika til að vaxa og
þroskast. Við þroskumst ekki af erfiðleikum annarra og við lær-
um heldur ekki af þeim. Ef við gerðum það þá væru engin vanda-
mál í heiminum.
Fyrstu jólin eftir minn skilnað voru börnin hjá mér og gat ég
hjúfrað mig í foreldrahúsum með ungana mína og látið hugsa um
okkur. Svo komu áramót og þá fór tvöfaldi fjársjóðurinn minn til
pabba síns. Það var furðulegt að upplifa sanna áramótastemningu
með þeim sem manni þykir vænt um en vera á sama tíma svo
rosalega dapur því það vantar svo mikið þegar börnin eru ekki
nálægt.
Þessi fyrstu skilnaðaráramót fór ég því heim snemma og var
þessi sorglega týpa sem hékk á facebook á nýársnótt þangað til
ég sofnaði í sófanum með tölvuna í fanginu. Það sem kom mér á
óvart var hvað það voru margir online eins og ekkert væri eðli-
legra. En kannski voru fleiri í áramótablús einir heima hjá sér.
Hver veit?
Ári síðar ætlaði ég aldeilis að passa upp á að ég yrði ekki blúsuð
og var að heiman um jólin. Ég var náttúrlega búin að gera ráð
fyrir að ég yrði svo heilluð af gerviveröld Las Vegas að ég myndi
finna minna fyrir söknuði. Allt gekk vel fyrstu dagana en á Þor-
láksmessu helltist söknuðurinn yfir. Ég reyndi að hugga mig í
merkjavörumolli þar sem ég klappaði Louis Vuitton og Chanel
töskum, en allt kom fyrir ekki. Blúsinn varð bara ennþá meiri.
Það er nefnilega engin merkjavara eða lúxus sem getur bætt upp
söknuðinn eftir því sem er manni kærast. Og þegar fólk saknar af
öllu hjarta eru ekki til neinar töfralausnir. Fólk þarf bara að drus-
last í gegnum það og gangast við eigin eymd.
Það sem kom mér á óvart var að það hafði enginn minnst á það
við mig að jólin gætu orðið furðuleg við skilnað og þau hættu ekki
að vera furðuleg þótt tíminn liði. Þetta er svona svipað eins og
með fæðingar. Það hafði aldrei neinn minnst á það við mig hvað
gæti raunverulega gerst þegar kona er að reyna að koma barni í
heiminn. Getur verið að það sé vegna þess að upplifanir fólks séu
svo misjafnar og það sem er lítið mál fyrir einn sé stórmál fyrir
annan? Eða er það vegna þess að ef við værum betur upplýst þá
myndum við kannski ekki treysta okkur í þá vegferð sem lífið
býður upp á?
Ef fólk er innstillt inn á að eiga gott líf og
reyna að gera betur þá lærir það af lífinu og
tekur ákvarðanir úr frá því. Ég veit til
dæmis að það þýðir ekkert að dæla ein-
göngu dýrum gjöfum í börnin sín til þess
að þau eigi gott líf og séu raunverulega
hamingjusöm. Fólk þarf fyrst og fremst
að vera til staðar fyrir þau og tala við
þau. Gefa börnunum sínum tíma og
leyfa sér stundum að hangsa. Það
verður enginn verri manneskja af
því.
Jól skiln-
aðarbarna
Marta María
Jónasdóttir
❄
Edda Björgvinsdóttir
upplifði það einu
sinni að maturinn var
ekki tilbúinn fyrr en á
miðnætt.
8
Jólaföt fyrir
praktískar
mömmur
68
85
Jólaþorp í Breiðholtinu
14
Snickers-kaffiís
sem gleður
50
Svona pússar
þú stellið!
101
Hvaða jólalög
kveikja í þér?
115
Slaka og
njóta
40
Bestu og flottustu
jólagjafirnar
Rjúpan betri ef
maður hefur
veitt hana sjálfur
42
Alþingishátíðarstellið bara
dregið fram á tyllidögum
94
Sigga Heimis
leggur á
jólaborðið