Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 120
„Ræktun kryddjurta er háð góðri birtu,
hæfilegri vökvun og áburðargjöf. Í skamm-
deginu og snemma á vorin er þörf fyrir rækt-
unarljós til að plönturnar þrífist. Oftar en ekki
fylgja eldhúsræktendur ekki eftir plöntunum
með því að umpotta þeim í stærri potta, sem
er nauðsynlegt því ræturnar vaxa líka og
þurfa sitt pláss. Margir eru fullviljugir að
vökva kryddið og aðaldánarorsök er yfirleitt
að þeim er drekkt í vatni. En besta ráðið við
að fylgjast með vökvuninni er að lyfta pott-
inum þegar moldin efst í pottinum þornar og
V insælustu námskeiðin míneru ræktun nytjajurta, hefkennt ræktun mat- ogkryddjurta í nærri áratug.Síðustu ár einnig ræktunætra blómplantna en það
vita ekki allir að það er hægt að borða heil-
mikið af sumarblómum og fjölærum garð-
plöntum. Námskeiðin eru á Selfossi og svo er
ég með eitt og eitt námskeið á höfuðborg-
arsvæðinu. Í kennslugarðinum mínum á Sel-
fossi er ég með upphækkaðan krydd-
jurtakassa og stóran hrauk þar sem allt sem í
honum vex er ætt og ég skottast þangað út frá
vori fram á vetur og sæki mér matjurtir,
krydd og blóm í pottrétti eða salatið,“ segir
Auður.
Aðspurð hvort svona námskeið séu fyrir þá
sem eiga allt segir hún svo vera.
„Þetta er tilvalin gjöf fyrir pör, vinahópa og
einstaklinga. Dásamleg gjöf fyrir afa og
ömmu, mömmu og pabba og frænkur og
frændur og unga fólkið sem er að rækta
krydd, tómata og chilipipar í stofuglugga.
Ég fæ einstaklinga, hópa og heilu fjöl-
skyldurnar á námskeið til mín og
saman upplifa allir eitthvað nýtt
því ég leik á tilfinningasviðin,
bragð, sjón og hláturtaugina.
Nemendurnir koma fyrst í
heitt te og fá smábita með-
an ég miðla upplýsingum
um undraheim æta garðs-
ins míns, matjurtanna eða
kryddsins sem við getum
ræktað hér á Íslandi. Síðan
förum við út í gróðurhús í
verklega hlutann og sáum
fræjum, skiptum plöntum, tök-
um græðlinga og hver og einn hef-
ur með sér heim fullt af plöntum til
að annast og rækta áfram. Á krydd-
jurtanámskeiðinu hafa nemendur með sér
nokkur yrki af piparmyntu, graslauk og sal-
víu- og rósmaríngræðlingum í potti með plast-
poka yfir og potta með fræjum af hinum og
þessum kryddjurtum,“ segir Auður sem vill að
nemendurnir læri að rækta á verklegan hátt
frekar en að horfa eingöngu á myndir um
hvernig eigi að gera hlutina.
„Í lokin er svo leikið við bragðlaukana inni
við. Ég býð upp á mjúka osta sem nemarnir
dýfa í kryddskálar með þurrkuðu eða fersku
kryddi og eða kryddolíum. Þeir spreyta sig á
því að geta sér til um hvaða kryddi þeir eru að
bragða á, finna muninn á þurrkuðu og fersku
kryddi. Ég kenni þeim að rækta og að nýta
sér uppskeruna, búa til kryddolíur, verka
krydd til þurrkunar og í súputeninga sem ég
frysti með mismunandi kryddjurtum.“
Kryddnámskeiðið er þriggja tíma langt, og
það er líka námskeiðið um ætu garðplöntunar
en matjurtanámskeiðið er lengra, fimm tímar.
Öll námskeiðin eru ítarleg og þeim fylgja fínar
glósur sem nýtast nemunum þegar heim er
komið. Auður tekur hámark 10 manns á nám-
skeiðin á Selfossi. „Þegar það eru ekki fleiri í
hóp kynnist fólk og samræður verða oft fjör-
ugar í lok námskeiðsins. Ekkert endilega um
það sem fjallað er um á því. Nemarnir slaka á
og njóta samverunnar og gleyma sér. Ég laga
bara meira te og nýt þess að verða með þakk-
látu og glöðu fólki.“
Hvers vegna gengur fólki svona erfiðlega að
rækta kryddjurtir heima hjá sér?
ef potturinn er léttur þarf að vökva.“
Geta allir lært að rækta kryddjurtir?
„Já það geta allir lært að rækta bæði krydd
og aðrar jurtir sem hafa þolinmæði til að lesa
sér til og/eða prófa sig áfram. Það eru nokkur
grundvallaratriði sem þarf að hafa í huga.
Eins og með allt annað: Sumir baka alltaf
vondar kökur og það er oftar en ekki vegna
þess að þeir fara ekki eftir uppskrift, það
sama á við um ræktun. Ef þú sinnir ekki þörf-
um plöntunnar þá bara drepst hún.“
Hvað gefur kryddjurtarækt þér?
„Lífsgæði, betri mat og óvæntar uppá-
komur. Ég er með ótal tegundir af kryddi í
sýningargarðinum mínum á Selfossi og er allt-
af að prófa eitthvað nýtt. Mér finnst dásamlegt
að geta skotist út á táslunum frá vori og fram
eftir hausti og skorið mér ferskt krydd beint í
pottinn eða í salatið. Elska að krydda matinn
og skreyta með fjólum, túlípönum og rósablöð-
um. Finnst dásamlegt að uppgötva nýtt bragð
og prófa mig áfram með það í matseld.“
Hvað með þig, ertu mikið jólabarn?
„Ó já, ég er svo mikil samkvæmistútta að
jólin eru himnasending. Ég er líka svo forvitin
að ég er skæð með að káfa á pökkunum og hef
verið frá því ég var barn. Ég og bróðir minn
skiptumst á að standa á verði meðan við snert-
um alla jólapakkana í æsku. Ættingjar mínir
og vinir keppast við að snúa á mig með því að
pakka gjöfunum í kassa og með alls konar
aukahlutum til að villa um fyrir mér. En ég er
ansi lunkin við að geta upp á hvað er í pökk-
unum. Kannski er þetta svolítið barnalegt en
jólin eru sá tími sem maður á að hlúa að
barninu í sér.“
Hvað borðar þú um jólin?
„Í æsku var lambahryggur á aðfangadag í
Frumskógum í Hveragerði þar sem ég ólst upp
og mér finnst lamakjöt alltaf dásamlegt. En á
aðfangadag í dag þá prófum við Pallinn minn
alls konar og gefum okkur tíma í að elda og
njóta. Villibráð, hnetusteik, svínasteikur og
nautakjöt og ein jólin dýrindis fiskur í hátíð-
arbúningi. Svo svindla ég á öllu heilbrigðinu
um jólin og á borðum er fullt af gúmmelaði. Ég
er af rjómatertukynslóðinni og það eru ekki jól
nema það séu borin á borð peruterta og rjúk-
andi ekta súkkulaðidrykkur. Sólhildur, yngsta
systir mín, leggur til perutertuna sem hún
bakar eftir uppskrift frá móður minni, frú
Geirlaugu. Ég elska að fá til mín mitt fólk og
hitta ættingja, spila og éta á mig gat. Það eru
jólin.“
Áttu einhverja dúndurjólauppskrift?
„Ég bý til frekar skakkar og skældar kökur,
því ég hef tilhneigingu til að breyta upp-
skriftum. En piparkökuuppskriftin hennar
mömmu klikkar aldrei, ég fer nákvæmlega eft-
ir henni enda engin þörf á breytingum. Þau
eru ótal piparkökuhúsin sem ég hef búið til
fyrir jól, líklega er það smiðurinn í mér sem
laðar þau fram. Ég hef búið til piparkökuhús
sem var eftirmynd af æskuheimili mínu og alls
konar og fer aldrei einföldustu leiðina. Ég er
aldrei ein við piparkökubaksturinn, laða að
mér krakka, bæði mín börn og annarra, því ég
elska samverustundina og sköpunina sem
stússinu fylgir. Svo er drukkið ekta súkkulaði
og borðað bakkelsi við kertaljós meðan húsið
og piparkökufígúrurnar bakast.“
Piparkökur frú Geirlaugar
150 g sykur
250 g síróp
1 tsk. engifer
1 tsk. kanill
¼ tsk. pipar
¼ tsk. negull
1⁄3 tsk. kardimomur
2 tsk. matarsódi
1 egg
150 g smjörlíki
500-600 g hveiti.
Sykur, síróp og krydd er soðið saman. Mat-
arsóda blandað út í og hrært í þar til þétt ljós
froða myndast, hellt yfir smjörlíki í skál og
hrært í þar til það er bráðnað.
Hveitið er sett á borð og kryddi og krydd-
blöndunni hnoðað saman við ásamt egginu.
Geymt í ísskáp yfir nótt. Flatt þunnt út og
mótað í kökuhús eða myndir eða bara venju-
legar kringlóttar smákökur.
Sett á smurða plötu eða á bökunarpappír.
Pensla má kökurnar með vatni rétt áður en
þær eru bakaðar því þá fá þær á sig slétta
áferð.
Bakað við 175 gráðu hita í 10 til 12 mínútur.
„Ég er svo mikil samkvæmistútta
að jólin eru himnasending“
Hvern dreymir ekki um að rækta
kryddjurtir með góðum árangri? Er
það hægt yfir háveturinn? Auður
Ottesen, eigandi tímaritsins Sum-
arhússins og garðsins, lumar á
jólagjöf fyrir þá sem eiga allt; nefni-
lega námskeið í kryddjurtarækt.
Marta María | martamaria@mbl.is
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Hún segir að allir geti lært að rækta kryddjurtir.
Auður er
mikil
stemnings-
kona og
elskar jólin.
Kryddnámskeiðið er þriggja
tíma langt, og það er líka
námskeiðið um ætu garð-
plöntunar en matjurtanámskeiðið er
lengra, fimmt tímar
❄
120 Jólablað Morgunblaðsins