Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 36
M ér finnst bara gott að breyta til.Mér fannst leiðinlegt að jólin værualltaf eins. Ég vildi hafa tilbreyt-ingu en fjölskylda mín, eins ogflestar aðr-ar, er vana-
föst og vildi hafa þetta allt eins.
Barnabörnin vildu bara borða hjá
ömmu og ég vildi gefa þeim tæki-
færi til að mynda sínar eigin jóla-
hefðir. Og ég gerði það með því að
stinga af,“ segir Nanna aðspurð
hvort hún hafi hreinlega verið orðin
hundleið á jólunum.
„Í fyrra fór ég til Trieste og Fen-
eyja, og þar áður var ég á Möltu og
Madeira. Ég er ekki búin að upplýsa
hvert ég fer í ár, ég geri það ekki fyrr
en ég er farin út. Þá læt ég fólk giska
á hvar ég er,“ bætir Nanna við. „Ég
fer alltaf út að borða á aðfangadags-
kvöld, og þegar ég kem á staðinn sem
ég gisti á spila ég lagið „O helga natt“
með Jussi Björling og held jól í fimm
mínútur. Svo er ég bara búin.“
Nanna segir að jólastressið sem
landlægt er á Íslandi hafi átt sinn þátt í
því að hún ákvað að breyta til, en henni þykir fólk gera of
mikið úr jólunum.
„Þau byrja allt of snemma og fólk leggur of mikla
áherslu á þau. Það snýst allt um jólin og ef eitthvað er
ekki eins og það var í fyrra þá er allt ónýtt. Mér leiðist
slíkt mikið. En hinsvegar fannst mér jólin alltaf mjög
skemmtileg, og finnst það enn í raun og veru,“ segir
Nanna og bætir við að það megi þó ekki taka þannig að
henni hafi liðið illa um jólin. En hvernig brást fjöl-
skyldan við tíðindunum?
„Alveg ljómandi vel. Eins og ég segi, þau sakna mín
ekkert,“ segir Nanna og skellir upp úr. „Sonur minn
sagðist hafa komist að því að ég væri ekki ómissandi
þegar hann uppgötvaði að hann gat soðið sitt eigið jóla-
hangikjöt.“
Nú er blaðamaður heldur betur búinn að koma sér í
bobba, enda stoðar lítið að spyrja Nönnu hefðbundinna
jólaspurninga eins og hvort hún haldi fast í einhverjar
jólahefðir, eða hvort hún
skreyti mikið á aðventunni.
Hún kannast vel við það,
enda hefur hún áður komið
fjölmiðlafólki í opna
skjöldu með viðhorfum sín-
um til jólanna.
„Fólk er alltaf spurt
hvort það sé jólabörn og
allir segja já. Ég man að
ég var einu sinni spurð að
því í útvarpsviðtali í
beinni útsendingu hvort
ég væri ekki jólabarn og
ég sagði nei. Þetta kom
útvarpskonunni svo á
óvart að hún vissi ekki
hvað átti að segja,“ segir
Nanna og kímir. Hún
segist jafnframt vera
löngu hætt að skreyta
heima hjá sér. En hvað
borðar hún á jólunum?
„Þegar ég var stödd í Trieste í fyrra borðaði ég til
dæmis á hipstera-veitingastað og fékk sebrakjöt, villi-
svín og kengúru. Það hefur ekki verið hefðbundinn jóla-
matur á þessum stöðum sem ég hef farið á hingað til. Ég
veit að margir eru mjög bundnir af hefðum, hjá mér hef-
ur það þó aldrei verið þannig. Það er bara um að gera að
láta ímyndunaraflið ráða,“ segir Nanna hress að lokum.
Stingur
af til
útlanda
fyrir jólin
Matgæðingurinn Nanna Rögnvaldar er
lítið jólabarn, en hún er hreinlega hætt að
halda jól. Í stað þess að standa sveitt yfir
pottum á aðfangadag hefur Nanna því
brugðið á það ráð að flýja og dvelja í út-
löndum yfir hátíðirnar.
Ellen Ragnarsdóttir | ellen@mbl.is
Nanna er ekki
mikið jólabarn, og
kýs að ferðast
suður á bóginn
yfir hátíðirnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ég man að ég var einu sinni spurð
að því í útvarpsviðtali í beinni út-
sendingu hvort ég væri ekki jóla-
barn og ég sagði nei. Þetta kom útvarps-
konunni svo á óvart að hún vissi ekki hvað
átti að segja.
❄
Nanna sendi ný
verið frá sér bók
ina
Pottur, panna og
Nanna.
36 Jólablað Morgunblaðsins
kollurinn/margir litir
Ljós íslenskrar náttúru/Eldgos
sjá nánar á fuzzy.is
Hvað er fegurra en Ísland í margbreytilegri birtu.
Hver glerkúpull
hefur fyrirmynd
úr íslenskri náttúru.
Tímalaus íslensk hönnun eftir Sigurð Má Helgason
fuzzy rúmast í litlum kassa
❄ SJÁ SÍÐU 38