Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 116
Margrét Sigfúsdóttir, skólastýra Hússtjórnarskólans í Reykjavík, er með ráð
undir rifi hverju. Hún mælir með því að fólk byrji tímanlega að huga að jóla-
hreingerningunni í stað þess að eyða aðventunni í stress og streitu. En hvernig
ætti fólk, sem vill eiga streitufría aðventu, að haga þrifunum?
Ellen Ragnarsdóttir | ellen@mbl.is
F yrst og fremst að byrja tímanlega. Það ertil dæmis mjög algengt að fólk taki niðurgardínur og þrífi glugga fyrir jólin. Þettamá gera í lok nóvember,“ segir Margrét,sem mælir með því að rúður séu þrifnar
með edikblönduðu vatni og örtrefjaklút. „Og fólk
verður bara að passa að þurrka vel með þurri ört-
refjatusku á eftir svo það komi ekki neinir taumar.
Þegar þetta er tilbúið er stór hluti búinn.“
Margrét mælir einnig með því að strjúka af ryk-
föllnum gólflistum ekki seinna en viku fyrir jól. „Og
ef þú ert með uppistandandi kristal eða einhverja
skrautmuni þværðu þá og hefur glansandi. Svo er
mjög gott, viku eða 10 dögum fyrir jól, að bera mubl-
ubón eða húsgagnaáburð á póleruð húsgögn. Þetta er
ekki það sama og tekkolía, en fólk þekkir oft ekki
muninn á þessu tvennu. Húsgagnaáburður inniheldur
vax og er til að bera á lakkaða muni. Ef tekkolía er
hins vegar borin á lakkaða muni verður allt skýjað og
ómögulegt. Fólk verður síðan að passa að þurrka
mjög vel af með þurri tusku á eftir, hvort sem er yfir
póleruð húsgögn eða tekk. Þegar búið er að þessu er
síðan hægt að þurrka létt yfir fyrir aðfangadag. Þá er
þetta tilbúið. Allt tekur þetta tíma og því betra að
gera þetta tímanlega. Þá verður maður ekki ómögu-
legur og þreyttur á síðustu stundu.“
Margrét segir máluð húsgögn í tísku um þessar
mundir, en þrifum á þeim er öðruvísi háttað en á
tekkmunum eða stíflökkuðum mublum.
„Margar ungar stúlkur í netheimum eru að leið-
beina fólki að nota edikblandað vatn á allt, og sumar
nota líka spritt, sem er endemis þvæla. Maður þarf
ekki að nota spritt nema til að sótthreinsa, en það
getur líka leyst upp málningu þótt það sé blandað
með vatni. Best er að vinda tusku upp úr mildu sápu-
vatni, þurrka yfir og þurrka svo með þurrum klút á
eftir. Örtrefjaklútar geta verið of grófir á svona fleti
en gott er að nota bleiuklúta. Þeir hafa dugað vel
hingað til og eru mjög góðir,“ bætir Margrét við.
Gott að byrja tímanlega
Margrét segir að gott sé að hefja jólahreingern-
inguna um mánaðamót nóvember-desember. Þá sé
hægt að þrífa eldhús og baðherbergi vel og vandlega,
og þrífa svo létt þegar nær dregur jólum.
„Þá getur maður skúrað út í öll hornin. Svo er gott
að taka niður eldhúsgardínur, þvo utan af öllum skáp-
um og gera eldhúsið fínt og huggulegt. Gott er að
þrífa bakaraofninn vel og vandlega og þvo bæði gler í
eldhúsinu og gardínurnar. Sumir setja líka upp jóla-
gardínur. Það er svo skemmtilegt að geta síðan bara
bakað og haft það huggulegt í hreinu eldhúsi fyrir
jólin,“ segir Margrét.
„Fyrir jólin þarf náttúrlega að skipta á rúmum,
en ekki endilega á Þorláksmessu eða aðfangadag.
Gott er að viðra rúmföt og sængur, henda þeim bara
út á svalir eða á grind og leyfa þeim að viðrast þar í
hörkugaddi. Þá kemur svo góð lykt af þeim. Síðan
er gott að ryksuga dýnuna vel, en það skiptir máli
að gera þetta tímalega fyrir jólin. Það má ekki
skemma jólaboðin og jólahátíðina með því að vera
svo úrvinda að maður standi ekki í lappirnar,“ segir
Margrét, sem trúir því að maður eigi frekar að
njóta jólanna en að drepa sig á stressi.
„Jólin koma þótt það sé ekki allt í röð og reglu,
þótt það sé nú skemmtilegra. Fólk getur auðveld-
lega lent í því að það nær ekki að klára, en þá á það
gera það þannig að það njóti þess. Þá bara fer mað-
ur með kattaþvotti yfir allt saman. Jólatréð verður
komið upp, pakkar undir því og það sér enginn
hvort það hafi verið skúrað út í hornin eða ekki.“
Graflaxinn tilbúinn í september
Margrét lumar ekki einungis á góðum þrifaráðum,
því hún kann líka ýmislegt fyrir sér í eldhúsinu.
Hún segir að þar sé hægt að spara mikinn tíma með
góðum undirbúningi.
„Maður getur til dæmis verið búinn að búa til ís-
inn löngu fyrir jól og graflax þess vegna í sept-
ember og geyma svo í frosti. Það er svo þægilegt.
Ég geri hann alltaf tímanlega og tek hann síðan út
þremur klukkutímum áður en ég ætla að skera
hann. Þá er aðeins frost í honum og svo þægilegt að
skera hann þunnt. Þeir sem ætla að vera með brún-
aðar kartöflur, en vilja ekki forsoðnar, geta soðið
þær og afhýtt um morguninn. Svo brúnað þær
skömmu áður en matur er borinn á borð. Einnig má
sjóða rauðkálið einum til tveimur dögum fyrir jól og
hita síðan upp. Það er ekkert að því,“ segir Margrét
að lokum.
Margrét segir að jólin
komi hvort sem búið sé
að gera hreint eða ekki.
„Jólin koma þótt það sé
ekki allt í röð og reglu“
116 Jólablað Morgunblaðsins
Litla Jólabúðin
Laugaveg 8, Rvk. S: 552 2412
Jólin byrja
hjá okkur
mikið úrval af fallegri gjafavöru
Komdu í heimsókn
Opið alla daga til jóla
GJAFABRÉF Í
TEIKNINGU,
MÁLUN,
KERAMIK.
EITTHVAÐ
FYRIR ÞINN
EÐA ÞÍNA?
HRINGBRAUT 121, 101 REYKJAVÍK - WWW.MIR.IS - S.551-1990
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS