Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 110
V ið höfum lengiverið að gæla viðþað að prufa eitt-hvað nýtt um jól-in, jafnvel ferðastog vera tvö yfir
hátíðirnar. Fjölskylduna mína lang-
aði að koma til Barcelona um jólin
og vera með okkur og mér og kær-
astanum mínum fannst það frábær
hugmynd og góður millivegur,“
segir Marta, sem hingað til hefur
alltaf haldið jólin heima á klak-
anum.
„Við höfum aldrei haldið jólin
annars staðar en á Íslandi og ein-
ungis einu sinn saman. Þetta verða
því spennandi, skemmtileg og öðru-
vísi jól fjarri gömlu hefðunum.“
Marta segir að hátíðlegt sé um
að litast í Barcelona í desember og
mikil jólastemning. Það hafi því
ekki verið erfið ákvörðun að halda
upp á jólin þar ytra.
„Barcelona er alveg ótrúlega
jólaleg yfir hátíðirnar og það var í
raun tilfinningin sem ég fékk í des-
ember í fyrra sem fékk mig til að
vilja prufa að eyða jólunum hérna.
Allar göturnar í miðbænum eru
mismunandi skreyttar með alls
konar ljósum og seríum. Það er alls
staðar verið að grilla hnetur, jóla-
markaðir hér og þar og almennt
mikil jólastemning. Það getur verið
kalt í desember en það er ekkert
sem hlý kápa og trefill geta ekki
bjargað. Kuldinn er hins
vegar jólalegur og satt
best að segja tengi ég
betur við jólin í smá
kulda.“
En hvernig skyldu
heimamenn halda jólin,
eru þeir jafn jólaóðir og
Íslendingar?
„Jólahefðirnar í Katalóníu
eru töluvert frábrugðnar því
sem við eigum að venjast. Eins
furðulegt og fólkinu hér finnst að
það séu 13 stríðnir jólasveinar á Ís-
landi, þá finnst mér þeirra hefð enn
furðulegri. Hinn 8. desember stilla
þau upp trjádrumbi með áteiknuðu
andliti í stofunni, sem þau hugsa
um. Þau leggja teppi yfir hann til
að halda á honum hita og gefa hon-
um nammi að borða. Þessi trjá-
drumbur kúkar svo jólagjöfunum á
aðfangadagskvöld eða jóladags-
morgun þegar krakkarnir berja
hann með priki. Þetta er kallað
„caga tíó“ og svo er annað áhuga-
vert jólaskraut, svokallaður „cag-
aner“ sem eru hinar ýmsu fígúrur
að kúka. Hinn 6. janúar eru vitring-
arnir þrír svo kvaddir og í hefð-
bundnu jólahaldi voru stærri gjaf-
irnar gefnar þá,“ segir Marta og
bætir við að jólakrásirnar séu einn-
ig töluvert frábrugðnar þeim sem
Íslendingar eiga að venjast.
„Á aðfangadagskvöldi og í hádegi
jóladags er til dæmis algengt að
bjóða upp á nokkurs konar pasta-
og kjötsúpu, eða „sopa de galets“,
ofnbakaðan kjúkling „catalan style“
sem nefnist „rostit amb pinyons og
núggat þykir mjög týpískur eft-
irréttur. Hinn 26. desember eru svo
allir afgangar nýttir í fyllingu fyrir
canneloni, svona svipað og margir
Íslendingar gera með tartalettur.
Yfir hátíðirnar drekka Katalónar
einnig mikið af cava sem er spánskt
freyðivín.“
Marta segir að jólin í ár muni
klárlega litast af því að vera haldin
erlendis og að ekki verði haldið fast
í allar gömlu, íslensku hefðirnar.
„Planið er að hafa jólabröns
heima á aðfangadag og fara síðan á
góðan veitingastað um kvöldið.
Þessi jól verða því frábrugðin fyrri
jólum, þar sem maður finnur ilminn
af rjúpunni og villibráðinni sem
yrði á boðstólum. Svo verður þessi
heilagi tími þar sem pakkarnir und-
ir trénu eru opnaðir einnig öðruvísi.
Þrátt fyrir það erum við ótrúlega
spennt og ef til vill munu ein-
hverjar nýjar hefðir bætast við þær
gömlu,“ segir Marta.
„Það er vonandi að eftir þessi jól
geti ég mælt með því fyrir alla að
prufa að brjótast aðeins frá hefð-
unum og reyna eitthvað nýtt um
jólin. Auðvitað óska ég svo öllum
landsmönnum góðra, gæfuríkra og
hvítra jóla.“
Trjádrumbur sem kúkar
jólagjöfum skrýtin hefð
Marta Rún Ársælsdóttir og sambýlismaður hennar, Arnór Eyvar
Ólafsson, fluttust til Barcelona þegar honum bauðst gott starf þar ytra.
Marta hafði þá skráð sig í fjarnám í miðlun og almannatengslum við
Háskólann á Bifröst, en auk þess að stunda nám skrifar Marta fyrir
vefsíðuna Femme.is. Skötuhjúin munu halda sín fyrstu jól í Barcelona í
ár, og ætlar fjölskylda Mörtu að dvelja hjá þeim yfir hátíðirnar.
Ellen Ragnarsdóttir | ellen@mbl.is
Stytturnar
má fá í ýms-
um útfærsl-
um. Hér má
sjá Donald
Trump
hægja sér.
Það er fátt
jólalegra en
trjádrumbur
sem kúkar
jólagjöfum.
Margir heima-
menn kjósa
að skreyta með
fígúrum sem
eru að hafa
hægðir.
Getty Images
Marta og fjöl-
skylda hennar
ætla að halda upp
á jólin í Barcelona.
110 Jólablað Morgunblaðsins