Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 92
J ana Rut flutti í bæinn frá Akureyri fyrirþremur árum til þess að hefja stílistanám íReykjavík Fashion Academy sem síðar leiddihana út í fjarnám við að skipuleggja brúð-kaup og skreyta. „Árið 2015 langaði mig að læra eitthvað
nýtt og þar sem ég er mjög skipulögð, smámunasöm og
finnst gaman að föndra fór ég að leita að námi. Þá hnaut
ég um Qc Event School sem er í Kanada og kennir allt
mögulegt. Það vildi svo heppilega til að þeir kenna allt í
fjarnámi. Ég fann þar nám sem mér leist
vel á; International Event and
Wedding Planner. Í miðju námi
tók ég eftir því að þetta nám
var allt um skipulagningu en
ekki skreytingar þannig að
ég ákvað að bæta við Inter-
national Event Decor pro-
fessional í sama skóla. Þar
lærði ég allt um skreyting-
ar og uppröðun á sal svo
eitthvað sé nefnt. Event and
Wedding planner kláraði ég í
október 2016 og Event Decor í
nóvember 2016,“ segir Jana Rut.
Eftir að hún kláraði námið hefur
hún skreytt fyrir nokkur brúð-
kaup, afmæli og skírnarveislur og
tekið að sér að sauma föt fyrir 14
tískusýningar. Jana Rut hefur un-
un af því að gera fallegt í kringum
sig.
Jana Rut notaði mikinn jólasnjó
þegar hún skreytti jólaborðið í ár.
„Mér finnst snjór mjög jólalegur og fallegur og ákvað
að nota hann mikið í þessa skreytingu. Heima hjá for-
eldrum mínum hefur alltaf verið lítið jólaland á gamla
skenknum þeirra. Mér finnst það alltaf jafn skemmtilegt
og ákvað núna að búa til nokkur lítil jólalönd og setja á
jólaborðið. Ég ákvað að nota krukkur undir löndin því
mér finnst mjög gaman að nota hversdagshluti í skreyt-
ingar,“ segir hún.
Jana Rut braut servíetturnar saman á spennandi
hátt.
„Þetta brot fann ég á Pinterest og það heitir The
diplomat fold á ensku. Ég bætti svo sjálf við jólakúlun-
um, mér finnst þær gefa brotinu smá jólastemningu.“
Jana Rut notaði á borðið diska sem keyptir voru í búð
við Laugaveg en hnífapörin fengu foreldrar hennar í
brúðkaupsgjöf. Það sama má segja um glösin.
Hún hefur alltaf verið mikið jólabarn og hlakkar alltaf
Jana Rut
notaði
krukkur á
jólaborðið
og bjó til litlar
jólasögur í
hverri krukku.
Jólasnjórinn
skapar
stemningu
Jana Rut Magnúsdóttir er sniðug og
skapandi. Hún skreytti jólaborð fyrir Jóla-
blaðið og kennir hér smekkleg sérvíettubrot.
Marta María | martamaria@mbl.is
mikið til að byrja að skreyta húsið, baka smákökur og
auðvitað smakka deigið. Aðspurð hvað komi henni í jóla-
skap nefnir hún snjóinn.
„Ég er að norðan þannig að ég hef vanalega verið
komin í jólaskap í október eða nóvember þegar snjórinn
kemur. Hann kemur aðeins seinna hér á höfuðborg-
arsvæðinu þannig að síðan ég flutti suður hef ég byrjað
aðeins fyrr á jólalögum en vant er, samt bara í nóvem-
ber. Skreytingar koma mér líka alltaf í jólaskap; að sjá
öll ljósin í öllum litunum lýsa upp bæinn.“
Hvað myndir þú aldrei gera á jólunum?
„Fara til útlanda án þess að taka með mér hangi-
kjöt og hamborgarhrygg.“
Jana Rut kann að meta hefðbundinn jólamat
eins og hangikjöt, jafning og kartöflur.
„Á aðfangadag er oftast grafið lambakjöt
í forrétt, hamborgarhryggur, brúnaðar
kartöflur, sósa og meðlæti og eftirrétt-
urinn er oftast frómas.“
Þegar Jana Rut er beðin að rifja upp
eftirminnilegustu jólin nefnir hún
jólin þegar hún var 17 ára.
„Þá fórum við fjölskyldan
suður um jólin. Við fengum
stórt hús lánað hjá frænku
minni og gistum þar öll fjöl-
skyldan og þá er ég að tala
um alla fjölskylduna; amma
og afi, börn þeirra og barna-
börn. Við eyddum jólunum í að
púsla, borða og horfa á nokkrar
jólamyndir. Ég man eftir að vakna
alltaf þegar það var kallað „matur“ – ég
gerði ekki mikið þau jól annað en að vera með fjölskyld-
unni enda var mjög gaman.“
Hvernig verða jólin hjá þér í ár?
„Ég vinn í verslun þannig að ég er búin með megnið af
jólagjöfunum og skreytingum í byrjun desember. Við
skreytum jólatréð alltaf um 20. desember. Eftir vinnu á
Þorláksmessu fer ég til foreldra minna og bróður og við
hlustum á Þorláksmessutónleikana hans Bubba. Á
aðfangadag tökum við allt mjög rólega; mamma eldar og
ég skreyti matarborðið og hjálpa henni svo með matinn.
Maturinn er alltaf kominn á borð klukkan 18.00 og allir
sestir. Við erum líka með þá hefð að horfa á Die Hard
um jólin – það er alltaf valið eitt gott kvöld í þá mynd,
enda mjög góð jólamynd.“
Hvað er best við jólin?
„Það er allt svo fallegt í kringum okkur, ljós um allt,
vonandi allt hvítt í kring og það eru allir svo glaðir og
fjölskyldurnar hittast og hafa gaman.“
Stellið er frá
foreldrum
Jönu Rutar.
Morgunblaðið/Hari
Jana Rut Magnúsdóttir
lærði að skipuleggja
brúðkaup og viðburði í
skóla í Kanada.
92 Jólablað Morgunblaðsins
Jólagjöfin fæst hjá okkur!
Sími: 553-3450 · www.spilavinir.is
Suðurlandsbraut 48 · Bláu húsunum í Skeifunni