Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 46
46 Jólablað Morgunblaðsins
GERRY WEBER
jólalínan komin
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
Frábær verð!
(sömu og á hinum
Norðurlöndunum)
Þ að er ekki hægt aðhalda jól nema búatil nokkra vel valdadeserta og kökur.Helst nokkra svohægt sé að borða þá
alla saman og njóta í botn. Það skipt-
ir nefnilega mestu máli hvað borðað
er á milli nýárs og jóla, ekki milli jóla
og nýárs, og því er ekki úr vegi að
nýta þetta tækifæri vel og troða sig
út svo fólk hafi eitthvað að gera í
janúar annað en að grenja yfir vís-
areikningnum.
Þegar sætindi eru annars vegar er
alveg ómögulegt að borða eitthvað
semí gott, það sem við borðum þarf
að vera framúrskarandi lystugt og
veita okkur svo mikla unun að önnur
eins fullnægja hafi aldrei nokkurn
tímann átt sér stað.
Til að jólahátíðin sé fullkomnuð er
tilvalið að búa til ístertu. Hér ætlum
við að sýna ykkur hvernig það er
gert á einfaldan hátt, án þess að
nokkur verði gráhærður eða missi
vitið við baksturinn. Ónei; hvaða
manneskja sem er getur gert þetta,
svo framarlega sem hún hefur örlít-
inn áhuga á að gera vel.
Ef þér finnst leiðinlegt að matbúa
en þarft nauðsynlega að búa til eft-
irrétt fyrir jólin – því ef þú gerir það
ekki gerir það enginn annar – þá
væri sniðugt að hlusta á hljóðbók
meðan á bakstrinum stendur nú eða
bara hringja í vin. Það að hringja í
vin á meðan húsverk eru masteruð
hefur komið ótrúlegasta fólki í gegn-
um óendanlegt óhreinatau og ósort-
eraðar sokkahrúgur. Skítugustu gólf
hafa verið skúruð svo framarlega
sem við höfum einhvern til að tala
við. En ef þú ert þessi heimilislega
týpa þá höfum við engar áhyggjur.
Það að útbúa þessar tvær ístertur,
baka marenstoppa, eitt banana-
brauð með karamellu og útbúa ís
tekur sirka einn sunnudag. Það er að
segja ef þú nýtir daginn vel.
Sykurhúðuð
jólahátíð
Ef þú ert þessi sykursæta jólatýpa sem elskar að
borða eitthvað gott og hafa það reglulega
huggulegt eru uppskriftirnar í þessum sykur-
húðaða jólamatareiðsluþætti eitthvað fyrir þig.
Marta María | martamaria@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Marenstoppar eru ekki bara sjúk-
lega sætir og góðir. Þeir eru líka
fallegir á borði ef þú ert að fá fólk í
aðventuboð eða jafnvel jólaboð.
Hægt er að leika sér með mar-
enstoppa á margslunginn hátt. Það
er til dæmis hægt að lita þá í öllum
heimsins litum, setja á þá glimmer,
skreyta þá með augum og eyrum
nú eða blanda alls konar gúmmel-
aði við deigið þannig að þeir fá
öðruvísi bragð. Þekkt er að setja
lakkrísbita út í marensinn, súkku-
laðikúlur, kókósmjöl, snickers-
súkkulaði eða möndlur. Ég ákvað
að gera græna marenstoppa því
grænn er heitasti liturinn í dag og
þeir passa eitthvað svo vel við
græna marmarann og stellið. Þótt
þessir séu grænir má jú alltaf nota
einhverja aðra liti og mögulega
hafa marenstoppana þannig að þeir
passi við jólaskreytingarnar heima
hjá þér.
Grænir marenstoppar
2 eggjahvítur
200 g sykur
1 tsk. eplaedik
1 tsk. lyftiduft
grænn matarlitur, 1 tsk. til 1
msk., fer eftir hvað þið viljið
hafa þá dökka.
Eggjahvítur og sykur stífþeytt
saman. Þegar blandan er orðin stíf
og flott er eplaediki, lyftidufti og
matarlit bætt við.
Til að topparnir verði sem flott-
astir er gott að setja deigið í köku-
skreytingapoka. Ef þú notar slíka
úr plasti geturðu annaðhvort sett
stút á endann eða bara klippt sirka
1 cm gat. Stærðin á gatinu fer svo-
lítið eftir hvað þú ætlar að hafa
marenstoppana stóra. Þegar þú ert
búin/n að taka ákvörðun um þetta
er deiginu sprautað á bökunar-
pappír.
Stilltu ofninn á 150 gráður og
láttu toppana vera inni í 15 mín-
útur, lækkaðu svo hitann niður í
100 gráður og leyfðu toppunum að
vera í 15 mínútur í viðbót.
Grænir marenstoppar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Grænir marenstoppar eru ekki bara
flottir sem skraut á jólaborðið
heldur líka mjög gómsætir.