Morgunblaðið - 01.12.2017, Qupperneq 72
Það að blása á sér hárið snýst ekki um að hoppa upp úr bað-
karinu, láta renna úr því, þurrka hárið vel með handklæði, snúa
höfðinu á hvolf og þurrka. Nei, til þess að fá fallega áferð og góða
lyftingu í hárið þarftu að hafa nokkur góð ráð í huga.
Þú þarft að eiga góðan hárblásara. Boss Gold frá HH Simonsen býr
yfir sérstaktri ionic-tækni sem afrafmagnar hárið og svo er hann fljótur að
vinna sitt verk.
Þú þarft að eiga góðan hárbursta. Til dæmis Wet Brush Gold, sem er mest seldi
flækjubursti í Bandaríkjunum.
Þú þarft að eiga hitavörn. Heat Protection frá label.m mýkir hárflögurnar og ver
hárið fyrir öllum kraftmiklum hártækjum.
Það er gott að eiga Blow out spray frá label.m sem ver hárið, þenur það út svo
það verður kraftmeira og þykkara. Oft
er þetta sprey kallað hlýðnispreyið
því það fær hárið til að hlýða.
Þegar þú ert búin/n að blása hárið með
heitu og hárið er orðið þurrt og með góðum lyftingi er
nauðsynlegt að blása aðeins yfir það með köldum blástri. Með
því endist blásturinn betur og hárið verður meira glansandi.
Lærðu að blása
á þér hárið í eitt
skipti fyrir öll
Katrín hertogaynja af Cambridge er
alltaf með vel blásið hár með góðum
lyftingi. Hún er líka með oftast með
léttar krullur í endana. Þegar búið er
að blása hárið er auðvelt að fara að-
eins yfir endana með krullujárni.
Rod 7-krullujárnið
frá HH Simonsen
gerir stórar og gam-
aldags krullur líkt
og Katrín er gjarnan
með. Járnin frá HH
Simonsen fást á
hárgreiðslustofum
um land allt.
AFP
Lagoon Spa til að hressa upp á húðina, auk þess
sem henni finnst ísmolabað sérlega gott fyrir
andlitið. Þá forðast hún einnig kemískar vörur
með fjöldanum öllum af flóknum innihalds-
efnum.
„Ég vil helst nota náttúrulegar vörur
með sem fæstum innihaldsefnum og vörur
án parabena,“ bætir Ágústa við. En hvern-
ig skyldi hún taka sig til ef tíminn er af
skornum skammti?
„Það er lítið mál. Hárið í hnút og stutta
fjögurra atriða andlitsförðunin sem tekur
aðeins fimm mínútur. Og svo tekur enga
stund að henda sér föt,“ segir hún. En
skyldi Ágústa eiga skothelt „bjútíráð“?
„Reykingar, áfengi, sykur og svefn-
leysi er nokkuð örugg leið til að draga
fram tiltölulega verri ásýnd í speglinum.
Besta bjútíráðið finnst mér því númer
eitt að reykja ekki og neyta áfengis og
sykurs alla jafna í hófi. Fá að minnsta
kosti átta tíma svefn, æfa
af krafti og svitna vel svo
maður hreinlega geislar
af hreysti og ferskleika.“
Reykingar, áfengi og sykur
stuðla að verri ásýnd
Ágústa Johnson er þekkt fyrir að lifa heilsusamlegum lífsstíl, enda hreyst-
in uppmáluð. Hún lætur húðina svo sannarlega ekki sitja á hakanum og
þykir gott að skella andlitinu í ísmolabað. Þá leggur hún, eins og alþjóð
veit, mikla áherslu á hreyfingu og hollt mataræði.
Ellen Ragnarsdóttir | ellen@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ágústa notar helst
náttúrulegar vörur
án parabena.
É g hreinsa húðina samviskusamlega áhverju kvöldi, með Blue Lagoon Foam-ing Cleanser og set framan í mig Cau-dalie-næturkrem. Klikka ekki á þvíundir neinum kringumstæðum. Ámorgnana skola ég húðina með vatni
áður en ég set á mig dagkrem og farða, segir Ágústa
þegar hún er beðin að lýsa húðumhirðu sinni. En
skyldi hún eiga sér eftirlætishúðvörur?
„Blue Lagoon-vörurnar eru í algjöru uppáhaldi, kís-
illinn og þörungarnir sem eru svo einstakir gera svo
mikið fyrir húðina og örva kollagenframleiðsluna sem
veitir nú ekki af fyrir konur á mínum aldri. Mér finnst
maskarnir og fótakremið einnig í algjörum sérflokki,“
segir Ágústa og bætir við að hún hafi alltaf reynt að
hafa lítið fyrir því að setja upp andlitið. Nokkra fasta-
gesti má þó ávallt finna í snyrtibuddunni hennar.
„Ég er með fjórar til fimm standard förðunargræjur
í snyrtibuddunni. L‘oreal Telescopic maskara, sem er
sá eini sem hentar mínum augnhárum og Bare Mine-
rals Complexion Rescue sem er léttur farði. Þá á ég
alltaf Mac Soir-varalitablýant auk þess sem mér finnst
Blue Lagoon-varasalvinn ómissandi. Gott olíulaust sól-
arpúður er svo skemmtilegra með, ef ég nenni.“
Ágústa skellir sér reglulega í andlitsbað í Blue
Vörurnar frá Blue Lagoon
og Bare Minerals eru í
uppáhaldi hjá Ágústu.
72 Jólablað Morgunblaðsins
www.heklaislandi.is - S: 6993366
Íslensk hönnun
falleg gjöf fyrir þá sem þér þykir vænst um