Morgunblaðið - 01.12.2017, Page 96
Ármann og bætir við: „Fyrsti eigand-
inn var Magnús dósent (guðfræð-
ingur) Jónsson, landsþekktur maður
á sinni tíð, sem var í stjórn Alþingis-
hátíðarinnar. Annar eigandi var Sig-
urður Bjarnason frá Vigur, forseti Al-
þingis, ritstjóri Morgunblaðsins og
síðar sendiherra og eiginkona hans,
Ólöf Pálsdóttir myndhöggvari. Þau
voru mikið vinafólk mitt.“ Stellið
kaupir Ármann af hjónunum fyrir
góð mánaðarlaun forstjóra árið 1984.
Um þessar mundir sýna þekkt erlend
söfn Alþingishátíðarstellinu mikinn
áhuga. Það er stutt í árið 2030 þegar
Alþingi Íslands, það elsta í heiminum,
heldur upp á 1100 ára afmælið,“ segir
hann og heldur áfram:
„Þetta er líklega þjóðlegasta jóla-
borðið á Íslandi,“ segir hann.
En stellið er ekki bara merkilegt
því á jólaborðinu eru kristalsglös frá
þeim tíma sem Ármann rak Hjört
Nielsen.
„Kristallinn á jólaborðinu er frá
Waterford. Glösin voru send mér
upphaflega sem sýnishorn en voru
svo rándýr að ég lagði ekki í að flytja
Ármann kann að meta
handgert jólaskraut.
Ármann fékk það
verkefni þegar hann
var á 10. ári að skreyta
jólatréð heima hjá sér.
Handgerða jólatréð
í allri sinni dýrð.
96 Jólablað Morgunblaðsins
Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin
Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur
íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning,
hver og einn eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma
s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is