Saga - 2010, Page 145
lagði upp í sína ferð.57 J. Ross Browne birti myndskreyttar greinar
í Harpers Magazine 1863 og gaf svo út The Land of Thor 1867.58 Pliny
Miles gaf út Nordurfari: Rambles in Iceland árið 1854.59 Útgefnar
ferðalýsingar af Íslandi frá síðari hluta 19. aldar eru eitthvað um
eitthundrað og þrjátíu talsins nú rúmum 100 árum eftir að Gross -
man lýsti skrif æðinu um Ísland, og geta flestir verið þakklátir fyrir
það því hvert nýtt framlag til skilnings á fortíð og ímynd þjóðar-
innar er af hinu góða. Það má því snúa ummælum Grossmans við
og sjá þar annan flöt: Úr því að skrifæði rann almennt á karla og
konur sem ferð uðust um landið í tugatali, þá er hugsanlegt að fyrir
hverja ferða bók sem gefin var út leynist enn önnur í skjalasafni eða
hillu í einkasafni.60
Um vist handritsins af ferðabók S.S. Howlands hjá Boyer er ekk-
ert vitað og eastman-safnið hefur ekki skrár sem segja til um hvort
einhver hafi litið á handritið á áratugunum sem liðu á milli þess að
það kom þangað 1950, var ljósmyndað 1980 og tekið fram haustið
2009. Heita má nokkuð öruggt að fáum dytti í hug að leggja leið sína
í ljósmyndasafn í Rochester að leita að ferðabókum frá Íslandi.
Leitin í Boston University var frekar almenn leit í ýmsum skrám að
efni tengdu Íslandi á 19. öld. Það að skrá ljósmyndasafns skyldi
nefna Íslandsferð á 19. öld vakti athygli og varð til þess að örfilman
var sótt í kjallarageymslu — og þá varð tilvist handritsins ljós. ekki
er gott að ímynda sér hvernig handritið hefði átt að koma í ljós án
þess að hnotið væri um filmuna. Handritaskrá eastman-safnsins er
ekki stafræn og því ekki aðgengileg utan safnsins sjálfs. Þar fyrir
utan er orðið „Iceland“ ekki leitarbært í skránni. Sá sem leitað hefði
að efni sem varðar Ísland hefði því þurft að hafa vitneskju um
Howland og ferð hans til Íslands, en þótt hans sé getið í íslenskum
dagblöðum er nafn hans að öðru leyti óþekkt í þessu samhengi.
ferðabók s.s . howlands frá íslandi 1873 145
57 Howland vitnar óbeint til Pliny Miles þegar hann skrifar að þeir Beekman séu
„annar og þriðji Bandaríkjamaðurinn upp á tind Heklu, konungs fjallanna í
norðri” (22.7.) („… we still had the honor, such as it was, of having been the
second and third Americans to have stood on the summit of old Hekla, the
king of the mountains in the North Land“).
58 J. Ross Browne, „A Californian in Iceland“, Harpers Magazine XXVI: 152–154
(1863) bls. 145–162, 289–311 og 448–467 og J. Ross Browne, The Land of Thor
(New york: Harper, 1867).
59 Pliny Miles, Norðurfari or Rambles in Iceland (London: Longman, Brown, Green
1854).
60 Undirbúningur að útgáfu ferðabókar Howlands er hafinn.
Saga vor 2010 — NOTA (9.5.)_Saga haust 2004 - NOTA 11.5.2010 12:53 Page 145