Jökull


Jökull - 01.01.2014, Page 98

Jökull - 01.01.2014, Page 98
Bryndís Brandsdóttir og Finnur Pálsson þeim voru ekki greind í Bárðarbungukjarnanum. Nítj- ándu aldar öskulög í kjarnanum eru frá 1823V, 1838G, 1854G, 1883G, 1887V og 1892G (V=Vatnajökull, G=Grímsvötn, S.S., 1978). Tröllagígagosið sem hófst 30. júní 1862, sást vel úr Skaftafells-, Rangárvalla- og Árnessýslum en minna af Norðurlandi vegna þrálátra norðanátta. Aska, ef einhver var, hefur því borist til suðurs frá gosstöðvun- um. Sigurður Þórarinsson (1972) og Ólafur Jónsson (1945) rekja frásagnir dagblaða af eldgosinu í Trölla- gígum á árunum 1862–1864. Menn urðu varir við eldana fram á haustið 1862 og af og til um veturinn. Sumarið 1863 varð eldgoss oft vart og um miðjan júlí var himinn mjög rauður og mistur mikið bæði fyrir sunnan og norðan land, án öskufalls (Ólafur Jónsson 1945). Þann 2. ágúst varð enn vart við mikið eldmist- ur sunnanlands, svo að sólar naut ekki allan daginn, vindur var aust-norð-austan, og féll aska á efstu bæj- um í Mýrdal og innstu bæjum í Fljótshlíð, og öskuryk sást á Eyjafjallajökli (Ó.J., 1945). Ólafur Jónsson (1945) telur að eldvörpin liggi á milli Rjúpnabrekku- jökuls og Kistufells í framhaldi af gígaröðunum á Dyngjuhálsinum og vitnar þar til lýsingar Sigurðar Gunnarssonar á brunahraunshryggjum á því svæði sumarið 1871. Sigurður Þórarinsson (1972) telur að gosið í Tröllagígum hafi staðið með hléum frá 1862 til 1864. Hartley og Thordarson (2013) telja að syðri hluti Holuhrauns hafi runnið samtímis Tröllahrauni. Slitrótt gígaröð Tröllagíga er samtals um 20 km löng og nær norður á móts við Hamarinn. Framhald gígaraðarinnar liggur um vesturjaðar Köldukvíslar- jökuls og yfir á Dyngjuháls. Lýsingar Sigurðar Gunn- arssonar um breytingar á norðurkinn Vatnajökuls á milli áranna 1852 og 1871 og „brunahraunshryggj- um upp úr gaddinum hingað og þangað mikilfengleg- ir, er sýndu glöggt að þar höfðu hraunflóðin steypst ofan“ bendir til þess að samhliða gosinu í Tröllagíg- um hafi gosið í vestanverðum Dyngjujökli og hraun runnið þaðan niður á Dyngjuháls. Því að þótt ætla megi að bráðnun hlýindasumarið 1871 (Frjéttir frá Ís- landi) hafi leitt í ljós áður óséð hraun undan Bárðar- bungu er illmögulegt að skilja lýsinguna öðruvísi en svo að brunahraunshryggirnir upp úr jöklinum séu úr nýmynduðu hrauni sem ekki sér til í dag (4. mynd), þrátt fyrir að jöklar hafi rýrnað til muna frá 1871. Vel er líklegt að kvikugangar hafi leitað til norðurs og suð- vesturs frá Bárðarbungu í Tröllagígagosinu, sem sam- anstóð af nokkrum goshrinum. Samhliða gæti gosið 1867 einnig hafa tengst Dyngjuhálsi. Grímsvötn 1867 Norðanfari 6. árg., 32–33 tbl., 10. sept. 1867, bls. 65. „Aðfaranótt hins 31. f. m. [ágúst] sást í Bárðardal, Fnjóskadal, Eyjafirði og Skagafirði, eins og vottur þess að eldur mundi uppi suður í fjöllum, og ept- ir stefnunni hjeðan í Vatnajökli, Tungnafellsjökli eða Dyngjufjöllum, því reykjarmökk, glæringar og sem loga lagði á lopt upp, sem smátt og smátt skaut upp, sem úr logandi kolagröf. Deginum áður fannst hjer víða nyrðra um morguninn megn náma- eða brenni- steínsfýlulykt. Ekkí höfum vjer enn heyrt þess getið, að jörð hafi við þetta tekið neinum litaskiptum, og heldur ekki að málnytupeningur hafi gelzt.“ Í Norðanfara 6. árg., 34–35 tbl., 25. sept. 1867 bls. 69 segir í bréfi úr S-Múlasýslu frá 3. sept.: „Nú er verið að tala um að eldur sje uppi í einhverjum jökli, og í gær kom hjer undarleg móða yfir sveitir.“ Norðanfari 6. árg., 36–37 tbl., 9. okt. 1867, bls. 71. „ELDGOSIÐ. Nú höfum vjer fengið sannar fregnir um að eldgosið sem getið er í blaðinu hjer að fram- an, hafi verið upp úr svonefndum Skaptárjökli, sem er einn hluti af suðurhlíðinni á Vatnajökli. Eldgos- ið byrjaði 27. ágúst, en hinn 28.–29. var loginn svo mikill, að í heiðskýru veðri, sem þá var, gætti engr- ar sólarbirtu. Jafnframt loganum kom upp úr jökl- inum svo mikið vatnsflóð, að tók yfir allan Skeiðar- ársand, sem er hjer um 7 mílur á breidd. Flóð þetta var svo stórkostlegt, að út leit fyrir að um það hefði mátt sigla haffæru skipi. Vatnsflóðið eyðilagði mest- an hluta engjanna í vesturparti Öræfasveitar; einnig hafði það tekið brot af hafskipi, sem árum saman hafði legið þar á sandinum niður við flæðarmál og talsvert af rekaviði er það flutti fram á sjó. Eldgosið hafði sprengt upp jökulinn, svo að stykkin úr honum fluttust á flóðinu langar leiðir eptir sandinum og sumt út á sjó er láu þar strandlengis við fjöruna sem hafís. Eld- og vatnsflóð þetta varaði í 13 daga.“ Talið hefur verið að gosið hafi á þremur stöð- um (þrír aðgreindir mekkir sáust úr Reykjavík) og að nyrsti mökkurinn hafi verið í Grímsvötnum. Öskufall var lítið. Átta mið eru til á gosstöðvarnar (S.Þ., 1974). 98 JÖKULL No. 64, 2014
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.