Jökull - 01.01.2014, Blaðsíða 147
Society report
JÖKLARANNSÓKNAFÉLAG ÍSLANDS
Skýrsla formanns á aðalfundi 25. febrúar 2014
Árið 2013 voru töluverð umsvif hjá félaginu. Unnið
var að breytingum og endurbótum bæði í Jökulheim-
um og á Grímsfjalli, rannsóknastarf var með nokkr-
um blóma með vorferð, mælingum á Mýrdalsjökli og
sporðamælingum, Jökull kom út að venju og félags-
líf að öðru leyti með þokkalegasta móti. Árið var
laust við umtalsverð umbrot í jöklum. Breytingar urðu
í samstarfi við Landsvirkjun vegna vorferða og haf-
ið var samstarf við Neyðarlínuna um rekstur nýrrar
og öflugrar rafstöðvar og bætt fjarskipti á Grímsfjalli.
Rekstur félagsins er sem fyrr í járnum en á það er að
horfa að fjárhagurinn er traustur, nokkur varasjóður er
til, skuldir engar auk þess sem verulegar framkvæmd-
ir voru kostaðar af tekjum og styrkjum ársins.
Aðalfundur fór fram í Öskju 24. febrúar. Tómas
Jóhannesson var fundarstjóri og Finnur Pálsson fund-
arritari. Verkaskipting stjórnar var ákveðin á fyrsta
fundi eftir aðalfund, í byrjun mars, auk þess dregið
var um röð varamanna. Að venju voru mánaðarlegir
stjórnarfundir en fundahlé yfir sumarið.
Stjórn JÖRFÍ 2013
Magnús Tumi Guðmundsson, formaður
Magnús Hallgrímsson, varaformaður
Valgerður Jóhannsdóttir, gjaldkeri
Þorsteinn Þorsteinsson, ritari
Árni Páll Árnason, meðstjórnandi.
Varastjórn:
Hallgrímur Þorvaldsson, Hálfdán Ágústsson, Þóra
Karlsdóttir og Vilhjálmur S. Kjartansson.
Nefndir JÖRFÍ:
Rannsóknanefnd: Magnús Tumi Guðmundsson
(formaður), Alexander Jarosch, Björn Oddsson, Bryn-
dís Brandsdóttir, Eyjólfur Magnússon, Finnur Páls-
son, Guðfinna Aðalgeirsdóttir, Hálfdán Ágústsson,
Hrafnhildur Hannesdóttir, Magnús Hallgrímsson,
Oddur Sigurðsson, Steinunn S. Jakobsdóttir, Tóm-
as Jóhannesson og Þorsteinn Þorsteinsson.
Bílanefnd: Árni Páll Árnason (formaður), Eiríkur
Lárusson, Garðar Briem, Sigurður Vignisson og Hall-
grímur Þorvaldsson.
Skálanefnd: Ragnar Þór Jörgensen (formaður), Gunn-
ar Antonsson (varaformaður) Aðalsteinn Svavars-
son, Alexander Ingimarsson, Ástvaldur Guðmunds-
son, Grétar Þorvaldsson, Guðbjörn Þórðarson, Leifur
Þorvaldsson, Snæbjörn Sveinsson, Stefán Bjarnason,
Sverrir Hilmarsson, Vilhjálmur S. Kjartansson og Þor-
steinn Kristvinsson.
Ferðanefnd: Sjöfn Sigsteinsdóttir (formaður), Árni
Páll Árnason, Hlynur Skagfjörð og Magnús Tumi
Guðmundsson.
Ritstjórar Jökuls: Bryndís Brandsdóttir, Þorsteinn
Þorsteinsson, Gréta Björk Kristjánsdóttir og Snæv-
arr Guðmundsson.
Ritnefnd Jökuls: Christopher J. Caseldine, Fiona
S. Tweed, Gifford H. Miller, Haraldur Sigurðsson,
Helgi Björnsson, Karen L.Knudsen, Karl Grönvold,
Kristján Sæmundsson, Robert S. Detrick, Tómas Jó-
hannesson og William H. Menke.
Skemmtinefnd: Anna Líndal, Ágúst Þór Gunnlaugs-
son, Baldur Bergsson og Guðfinna Aðalgeirsdóttir.
Valnefnd: Jón E. Ísdal, Stefán Bjarnason og Oddur
Sigurðsson.
Fulltrúi í SAMÚT: Björn Oddsson, Árni Páll Árnason
til vara.
GJÖRFÍ-nefnd: Þóra Karlsdóttir (formaður), Ástvald-
ur Guðmundsson og Jósef Hólmjárn.
JÖKULL No. 64, 2014 147