Breiðfirðingur - 01.05.2018, Blaðsíða 68

Breiðfirðingur - 01.05.2018, Blaðsíða 68
BREIÐFIRÐINGUR68 Eyjar í mynni Hvammsfjarðar Nokkrar eyjar í mynni Hvammsfjarðar tengjast huldubyggðum og er fyrst að nefna Purkey, þar sem Ólafur gamli Sveinsson bjó og áður var nefndur. Þar bjó huldukona í hólnum milli bæjar og fjóss og vandaði stundum um við fólk að hafa ekki háreysti í frammi. Í Stórakastala sást smali úti með fé sitt. Í Brokey reyndi Hans Becker lögmaður þrásinnis að hlaða vörðu á hól einum þrátt fyrir aðvaranir huldumanns og fékk af því vanheilsu, sem dró hann til dauða. Í Hrappsey er Álfhóll og gamall maður sá hann oft uppljómaðan með gleðskap á gamlárskvöld. Purkeyjar­Ólafur sagði einnig að huldufólk í Arney hefði fengið léðan hrút til að lemba ærnar sínar, en skilað honum á sumardaginn fyrsta. Í Bíldsey bjuggu um tíma foreldrar Sigurðar Breiðfjörðs skálds, Eiríkur og Ingibjörg. Ungur tígulegur huldumaður sóttist eftir ástum Ingibjargar, meðan Eiríkur var við róðra undir Jökli og tókst með herkjum að forða henni frá þeirri ásókn. Huldubátar sáust á siglingu frá Fagurey og aðrir í heyflutningum skammt frá Purkey og jafnvel við hvalskurð undan Hraunsfirði. (JÁ VI, 3­33; BS III, 116; JÞ, 16, 130; Gráskinna I, 52.) Skarðsströnd Af Skarðsströnd eru komnar vísurnar um Skónálar­Bjarna, sem lýsir klæðaburði og líkamsbyggingu fagurrar huldustúlku. Á Ballará sá drengur líka fallega huldu­ stelpu snemma á 20. öld, en herfileg huldukona reyndi um 1700 að komast uppí hjá Bjarna Péturssyni á Skarði. Sú átti að losna úr álögum við að hvíla hjá mennsk um manni. Í Búðardal á Skarðströnd fannst sálmakver frá álfum og þar reyndi huldumaður að nema unga stúlku brott. Þar birtist ungum sláttumönnum líka huldustúlka, sem kvaðst heita Landdís. Tvisvar gerði huldufólkið þar bónda þann greiða að kveikja vita í myrkri til að vísa honum leið af hafi. (JÁ I, 29, 58, 78, 123; VI, 10, 32; JÞ, 45; MG, 242.) Í Rúgeyjum undan Skarðströnd þurfti ekki að hafa graðung handa kúnum því þær fengu við huldunauti þar í eyjunum. Það var afgjald huldufólksins fyrir grasið á bústað þess í Miðey sem heitir Kirkja og menn máttu ekki slá. Í Akureyjum er Álfhóll og þar heyrðu menn þetta kveðið við barn: Ali mírin / dansi flírin / bimbsí lárinn, dansar / og stígur sonarkorn. (JÁ I, 39; III, 7; JÞ, 171; BS III, 27.) Saurbær Nokkurnveginn sömu þulu segir Ólafur í Purkey hafa verið kveðna úr kletti á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152

x

Breiðfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.