Breiðfirðingur - 01.05.2018, Síða 124
BREIÐFIRÐINGUR124
Hrísá. Ofan í Hrísá, skammt austur eða suðaustur af bænum, mun vera lítils
háttar gasuppstreymi við vestra landið að sögn Hermanns og Þorgils Þorgilssona
að Hrísum.
Korrabringur. Í Korrabringum innst í Álftadal er fjöldi ölkeldna (a.m.k. 10).
Þær spretta flestar upp í hallamýri utan sú austasta sem kemur upp í klöpp í
austurbakka kvíslarinnar sem liggur austan við Korra. Töluverðar útfellingar eru
við þá ölkeldu bæði kalkútfellingar og einnig rauðleitar járnútfellingar. Rennsli
er nokkuð úr sumum þessara ölkeldna. Hitinn í þeirri stærstu var 8°C 1935 eða
1936 8°C í lok ágúst 1973, í maí 1977 5–6°C og í nóvember 5°C. Rennsli hefur
mælst í þeirri stærstu 0,21 l/s.
Kjósdalur. Að sögn Jóhanns Þorgilssonar sem er frá Bug, er volgra í svonefnd
um Kjósadal. Hún er í mynni dalsins vestan við Mosfell. Frekari upplýsingar eru
ekki fyrir hendi.
Ölkeldubotnar. Inni á Fróðárdal ofan við svonefnt Draugagil heita Ölkeldu
botnar. Þar er að finna fjölda ölkeldna, sem flestar eru litlar. Í drögum Draugagils
er áberandi borg, Ölkelduborg og í djúpum gilskorningi bak við hana eru nokkr
ar ölkeldur. Sú sem er mest áberandi sprettur út úr vegg sem er um einn metri á
hæð og klæddur kalkhrúðri og önnur myndar nokkuð stóran poll sem töluvert
rennsli er úr. Mikið er af rauðum járnútfellingum. Hitastig í pollinum var í maí
1977 8°C en í nóvember um 0°C enda fullur af krapi. Í gildrögunum vestur af
borginni eru nokkrar ölkeldur en flestar litlar, og rennsli er lítið, en þær sjást
langan veg að vegna rauðra útfellinga.
Nýlenda. „Hjá Nýlendu, vestan við Tunguá, utan við Búlandshöfða, hefur
ölkelda fundizt í fjörunni“ stendur í Árbók Ferðafélags Íslands árið 1932. Hún
er nú týnd.
Eyrarsveit
Grundarfjörður. Rétt fyrir ofan kirkjuna í Grundarfirði er lítil ölkelda við brekku
rótina undir Hellnafelli. Hiti mældist í lok ágúst 1973 8°C , í maí 1977 5,0°C.
Eiði. Í fúamýri sunnan við bæinn að Eiði er lítil ölkelda. Hún er 30–40 cm í
þvermál og innan við metri á dýpt. Bólustreymi er nokkurt og hiti í maí 1977
mældist 2,0°C en aðeins 0,6°C í nóvember.
Bár. Við svonefnd Bárvötn er talin vera ölkelda. Þar er alldjúp skál, 4 m í
þvermál og allt að 2 m á dýpt, en ekkert er þar loftbólustreymi.
Berserkseyri. Í skeri, Laugarskeri sem aðeins kemur upp á stærstu stórstraums