Breiðfirðingur - 01.05.2018, Side 81
BREIÐFIRÐINGUR 81
frá Ljárskógum hefur því örugglega þekkt til þessa nágranna síns og dáðst að
honum. Jóhannes var lengi farkennari fyrir vestan, fór á milli bæja og kenndi
börnum. Kenndi kannski ekki Jóni en hafði áhrif á hann, þekktasta skáldið úr
nemendahópi Jóhannesar úr Kötlum vestra var Steinn Steinarr.
Í einni möppunni eru alls konar lausavísur og uppköst að kvæðum en þar er
líka lítið ljóðakver, Syrpan mín, með nokkr um vísum eftir Jón. Mest yrkir hann
um tíðarfar, landslag og fallegar stúlkur, en þarna glittir í gagnrýni á þingmann
Dalamanna, þá Sigurð Eggerz sem var þingmaður Dalamanna 1927–1930; efnið
í þessari möppu er frá því fyrir 1930. Eitt handskrifaða kverið heitir Gneistar og
sagt eftir Lindkvist úr Laufdölum, ársett 1927. Þarna eru mörg ljóð, sum nærri
fullburða, önnur nokkuð bernsk eins og eðlilegt er. Höfundurinn bara 13 ára!
Í einni möppunni er bunki af fullortum ljóðum; greinilegt er að Jón hefur haft
gaman af því að skrifa, hafði líka listafallega rithönd.
Átakanleg er kveðja Jóns til konunnar sinnar Ninnu og sonarins Dengsa 19.
mars 1944. Dengsi, Hilmar, er þá tveggja ára. Kvæðið heitir Rökkurljóð og endar
svona:
„Þið eigið minn huga,
mitt hjarta, mitt blóð,
mín heitustu atlot
mín kærustu ljóð.“
Þetta handrit er vélritað, annars allt handskrifað.
Þarna eru nokkrar þýðingar við þekkt lög, Der björkarna susar og My old Ken
tucky home. Í einni möppunni finn ég kerskniljóð til skólabræða í Menntaskól
anum á Akureyri. Að ekki sé minnst á vegavinnuvísur frá 1940; þar er ekki alltaf
siglt undir fána alvörunnar. Þarna rekst ég á minningarljóð um Jón eftir Ingólf
Jónsson Guðnasonar frá Prestbakka; forkunnarfalleg og vel ort.
Þykkast skjala í þessum fyrri kassa sem ég fletti er þó bók sem ber á titilsíðu
yfirskriftina Gamlar syndir. Þar eru 84 ljóð eftir Jón; mörg þeirra komu seinna í
ljóðabókum hans.
Erindi og skrifaðar ræður eru í þessu skemmtilega safni. Allt skrifað með þess
ari ljómandi fallegu rithönd. Erindin eru frá samkomum í Ólafsdal, á Staðarfelli,
Hvammi, Sólvangi í Búðardal og víðar. Þau eru frá árunum 1937 til 1942 þegar
vá mikil steðjaði að heimsbyggðinni. Þau lýsa vel viðhorfum þessa unga mennta