Breiðfirðingur - 01.05.2018, Page 73

Breiðfirðingur - 01.05.2018, Page 73
BREIÐFIRÐINGUR 73 Landsbókasafninu, en ég hef ekki lagt í að reyna að brjótast í gegnum þau til að freista þess að finna einhverja samsvörun við Tungustapa. Hálfum mánuði áður hafði Jón hinsvegar skrifað (Úr forum I, 70): En verst er, að hér er eigi um auðugan garð að gresja. Þó hefi ég von um að fá lítið eitt, en minnst af hinu forn­historiska, því það er dautt, og hafa menntamenn mest drepið það. Örðugleikinn er líka mikill, eins og dr. Maurer var þegar búinn að reyna, að alþýða, og það hinir greindustu, þora eigi að segja traditionis, sem lygilegar eru, því alþýða er hætt að þekkja sannan skáldskap. Af þessu fást ekki sögurnar, þó einhver kunni þær, nema máske hjá bjánum, sem þá kunna ekki að segja þær. Við vitum því miður ekki, hvort Jón Þorleifsson ætlaði að láta söguna Tungustapa í sagnasafn Jóns Árnasonar, eða hvort hún var ekki annað en einskonar stílæfing eða tilraun fyrir hann sjálfan í þá átt, hvernig listræn álfasaga gæti litið út, ef hún væri ekki sögð af bjánum. Það er nefnilega Jón Árnason, sem velur hana úr eftirlátnum handritum nafna síns sem þjóðsögu, og síðan hefur hún jafnan verið eitt helsta stolt þessarar bókmenntagreinar á Íslandi. (Úr forum I, 69­70, 74­75). Eftir að sagan Tungustapi birtist á prenti árið 1862, hefur staðurinn að sjálfsögðu orðið mun þekktari og hugarflug manna farið á kreik. Þannig segir Sumarliði Guðmundsson póstur frá því árið 1901, að hestar sæki í töðugresi á hillum í stapanum á haustum, en hrapi stundum fram af þeim, þegar svellar að, og telji menn það hefnd huldufólksins fyrir beitarstuldinn. Önnur munnmæli gætu hinsvegar verið nokkurnveginn jafngömul og saga Jóns Þorleifssonar. Guðlaugur Kristjánsson fæddist árið 1869 og ólst upp hjá Sesselju Sigmundsdóttur í Rauðbarðaholti í Hvammsveit. Í ævisögu sinni árið 1945 segir Guðlaugur, að fyrstu búskaparár sín hafi Sesselja verið í Sælingsdal, og þar hefði svarthryggjótt kýr, sem hún átti, skyndilega orðið mikill kostagripur, en hafði áður ekki verið nema meðalkýr. Eitt sumarið hasði hún ekki gefið nema hálfa nyt, eins og hún væri sífellt nýmjólkuð í annað málið. Um haustið dreymir Sesselju huldukonu úr Tungustapa, sem segist hafa nytkað kú hennar, og nú skuli hún launa henni með því, að öll afkvæmi kýrinnar skuli verða mjög nythá. Og eftir þetta átti Sesselja jafnan miklu kúaláni að fagna. ( Dagur er liðinn, 22). Samkvæmt sóknarmannatölum bjuggu Sesselja og Samúel maður hennar reyndar aðeins eitt ár í Sælingsdal, 1857­58, svo að þeim ber ekki nákvæmlega saman við frásögn Guðlaugs, en sé rétt með farið, hefur þetta átt sér stað um
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.