Breiðfirðingur - 01.05.2018, Qupperneq 95
BREIÐFIRÐINGUR 95
mánuðina þar á undan. Í þriðju og síðustu gegnumbrotsorrustunni, sem kennd er
við FleursCourcelette, voru Kanadamenn fremstir í flokki og margir Íslendingar
þar á meðal. Orrustan við FleursCourcelette markaði ákveðin tímamót
í landhernaði og hefur komist í sögubækur fyrir það að þar voru skriðdrekar
notaðir í fyrsta skipti.
Þann 15. september 1916, klukkan 20 mínútur yfir 6 um morguninn, réðst
2. kanadíski hersafnaðurinn (2 Division) fram meðfram veginum á milli Albert
og Bapaume í Frakklandi og var það hluti af stórárás bresku herjanna sem kennd
hefur verið við bæina Fleurs og Courcelette. 6. og 4. herfylkin réðust fram í
átt að Courcelette, studd af þremur skriðdrekum og var það í fyrsta sinni sem
þetta nýja vígtól skriðdrekinn tók þátt í orrustu. 28. herfylkið (28th battalion)
sem taldist hluti af 6. stórfylki (6th Brigade „The iron sixth“) sótti fram lengst
til vinstri, sunnan við Albert/Bapaumeveginn, með 27. herfylkið á hægri hönd
og með 5. Kanadíska riddaraliðið (5th Canadian Mounted Rifles) til varnar á
vinstri hönd. 28. fylki var fyrirskipað að ráðast á og hertaka hluta af svonefndri
„Sugar trench“ skotgröf og hafði til þess tvo skriðdreka, en sá hinn þriðji af
skriðdrekunum studdi 27. fylkið. Skriðdrekarnir tveir, sem höfðu dulnefnin
„Champagne“ og „Cognac“, héldu fram meðfram Bapaumeveginum þar til þeir
festu sig í nágrenni við „sugar trench“ skotgröfina. Þriðja skriðdrekanum, sem
fylgdi 27. fylki og bar dulnefnið „Cordon rouge“, gekk betur. Hann komst alla
leið að sykurverksmiðjunni sem skotgrafirnar tóku nafn sitt af en sneri síðan
við og hreinsaði upp skotbyrgi Þjóðverja meðfram veginum. Það tók 28. og
27. herdeildirnar ekki nema 15 mínútur að brjótast í gegnum víglínuna og var
aðgerðin talin hafa heppnast í alla staði.
Eftir daginn lágu í valnum ýmist fallnir eða særðir 302 hermenn úr 28. herfylki,
11 liðsforingjar og 291 óbreyttur hermaður. Einn hinna óbreyttu hermanna sem
særðist þennan dag var Hallgrímur Valgeir Sigurðsson. Í áhlaupinu á „Sugar
Trench“ skotgrafirnar lenti 28. fylkið í hvað mestri mótspyrnu, með gríðarlegu
sprengjuregni og vélbyssuskothríð. Samkvæmt skýrslum Kanadíska hersins lenti
Hallgrímur að öllum líkindum í höggbylgju frá stórri sprengju, sem olli því að
hann kastaðist í loft upp og slasaðist í baki og á hálsi. Þá er hann einnig greindur
með „sprengju sjokk“, sem var ansi víðtæk greining yfir ýmis andleg áföll sem
fylgdu álaginu á vígvellinum.
Flutningar særðra af vígvellinum voru geipivel skipulagðir og einungis þremur
dögum síðar er Hallgrímur kominn á sjúkrahús í Liverpool á Englandi. Frá