Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Blaðsíða 91

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Blaðsíða 91
E k k e r t t e k u r b ó k i n n i f r a m TMM 2010 · 1 91 Endrum og eins. En enn og aftur – við birtum bara verk fyrir eigin verðleika. Það eitt sér vekur ekki áhuga á ritsmíð að hún sé eftir geimfara eða meltingafærasérfræðing eða heimsfrægan matreiðslumeistara. Þessi áhugi á einvörðungu rétt á sér sé efnið fjarskavel skrifað. Þetta snýst um skrifin. Bara um skrifin. Frægt nafn á kápunni getur orðið til að selja blaðið. Það sem menn lesa í tímaritinu nærir hins vegar lesendur okkar, höfundana og menninguna. Er efninu í Paris Review breytt til muna eftir að þið fáið það í hendur? Ef breytinga er þörf er því breytt. Við þröngvum ekki breytingum upp á höfundana. Við leggjum til breytingar með það í huga að styrkja verkið. Höfundurnir eiga þess kost að velja og hafna þegar þessar breyt­ ingar eru bornar upp. Séum við ekki á sama máli þá nær það ekki lengra, finnist okkur sannarlega að sagan missi marks komi ekki til umtals­ verða breytinga og höfundurinn kærir sig ekki um þessar breytingar. Margar sögur eru svo góðar að þær þurfa fárra breytinga við. Líkast til taka höfundaviðtölin mestum breytingum. Besta ritsmíðin sem þú hefur gefið út? Þetta er asnaleg spurning. Það er vita gagnslaust fyrir mig að hugsa á þessum nótum. Jafnvel þótt ég hefði skýrt svar í kollinum, væri bjána­ legt af mér að segja það upphátt. Versta sagan sem þér hefur borist? Sem betur fer er ég búinn að gleyma henni. Ekki verið að bjóða manni Hvar eru allir íslensku höfundarnir? Á Íslandi, vænti ég. Við höfum ekki gefið út marga en heldur ekki hafnað mörgum. Við höfum bara ekki heyrt mikið frá þeim. Ég er viss um að við gerum það núna. Staða smásögunnar í Bandaríkjunum? Smásagan bandaríska er eins og smásagan um víða veröld: Form sem á kraft sinn að miklu leyti undir tímaritum. Einatt þegar mikið er um vönduð tímarit, sem mikið ber á í menningarlífinu, semja menn góðar smásögur. Gullár smásagnanna – nítjánda öldin í Frakklandi og Rúss­ landi, öndverð tuttugasta öldin í Evrópu og miðbik aldarinnar sem leið í Bandaríkjunum – hafa einatt verið komin undir sterkum blaðamark­
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.