Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Blaðsíða 119
Á d r e p u r
TMM 2010 · 1 119
myndast einnig í lífverum við lágan hita, til dæmis í sjó, og þrýsting sem er ef
til vill aðeins ein loftþyngd! Og þetta á ekki aðeins við um seguljárnstein, held
ur mun fleiri steindir sem vaxa í lífverum og við það verða steindir lífrænar,
lifandi fyrirbæri, samkvæmt formúlunni – en eru jafn steindauðar og áður.
Þannig vex seguljárnsteinn í skráptönnum í nökkvum í öllum heimsins höfum,
en hematit eða járnglans sem er jafnharður, í skráptönnum olnbogaskelja. Og
ekki nóg með það heldur vex seguljárnsteinn í gerlum, amöbum, fuglum og
fiskum og tengist ratvísi þeirra.
Þegar við veltum fyrir okkur þessum staðreyndum um samspil lífs og Jarðar
er eins og tómarúm myndist. Eitthvað vantar upp á skilning og þekkingu og
óvissan, hvatinn að nýrri leit, tekur við. En er það ekki samspil jarðarefna og
lífs sem öllu máli skiptir? Varða stóru vandamál nútímans ekki heildir, einmitt
það reyna að skilja hvernig kerfi Jarðar virka á hlýnandi Jörðu, við hrun líf
verutegunda og vistkerfa? Við höfum sundrað fræðigreinum og misst sjónar á
stóra samhenginu, sjáum ekki skóginn fyrir trjánum.
Okkur bráðvantar almenna og sérhæfða uppeldisstofnun sem stendur vörð
um þekkingu á sviði náttúruvísinda og umhverfismála! Engin fræði eru mik
ilvægari nú á tímum fyrir Íslendinga nema þau sem halda utan um íslenska
tungu.
Í landi þar sem lýðræðishugmyndin hefur verið í miklum metum, menntun
talin á hástigi hjá þjóð sem lengi hefur gumað af gjörvileika sínum – þar til allt
hrundi – er tímabært að endurmeta menntunina frá grunni. Stenst endalaust
sjálfshól um menntun okkar og eigið ágæti? spyr þessi Þingeyingur.
Í íslenskum háskólum er til dæmis boðið upp á nám í hagfræði, viðskipta
fræði, almennri verkfræði og að sjálfsögðu í stjórnmálafræði án þess að þessi
fræði séu tengd undirstöðunni, hagkerfi náttúrunnar og náttúruferlum. Hag
fræðingur þarf að mati yfirvalda enga undirstöðumenntun í náttúrufræðum
þótt aðalviðfangsefni hans sé höfuðstóll náttúrunnar – og enn síður fær verk
fræðingur grunnmenntun í vistfræði þótt starfssvið hans varði ingrip í ferli
náttúrunnar. Rök hníga að því að þetta fáránlega fálæti gagnvart náttúrunni,
bæði hér á landi og í hagkerfum heimsins, hafi ekki aðeins orsakað efnahags
hrun á heimsvísu heldur sé það einnig hvatinn að hlýnun á Jörðinni, mengun
og dvínandi gæðum Jarðar. Myndum við treysta hjartaskurðlækni sem hefði
enga undirstöðu í líffærafræði en væri afar flinkur að beita hnífi og bródera?
Við þurfum nýja uppeldisstofnun
Gegnum tíðina hefur þjóðin valið sér fjölmarga þingmenn sem hafa verið ólæs
ir á náttúruarf landsins, einkum þann sem felst í vistkerfum, byggist á vistkerf
um, á samspili vatns, lands elds og ísa, loftslags og lífvera þess. Við skulum
forðast að kyrja sorgarsálma hér í dag, en sárin og menjar þeirra eru sýnilegar
og ósýnilegar um allar auðlindir lands og sjávar.
Þessu verður að breyta. Allir Íslendingar, komnir til vits og ára, eiga að geta
rætt um náttúru landsins af viti og lágmarksvirðingu og hafi þeir skilning á