Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Page 119

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Page 119
Á d r e p u r TMM 2010 · 1 119 myndast einnig í lífverum við lágan hita, til dæmis í sjó, og þrýsting sem er ef til vill aðeins ein loftþyngd! Og þetta á ekki aðeins við um seguljárnstein, held­ ur mun fleiri steindir sem vaxa í lífverum og við það verða steindir lífrænar, lifandi fyrirbæri, samkvæmt formúlunni – en eru jafn steindauðar og áður. Þannig vex seguljárnsteinn í skráptönnum í nökkvum í öllum heimsins höfum, en hematit eða járnglans sem er jafnharður, í skráptönnum olnbogaskelja. Og ekki nóg með það heldur vex seguljárnsteinn í gerlum, amöbum, fuglum og fiskum og tengist ratvísi þeirra. Þegar við veltum fyrir okkur þessum staðreyndum um samspil lífs og Jarðar er eins og tómarúm myndist. Eitthvað vantar upp á skilning og þekkingu og óvissan, hvatinn að nýrri leit, tekur við. En er það ekki samspil jarðarefna og lífs sem öllu máli skiptir? Varða stóru vandamál nútímans ekki heildir, einmitt það reyna að skilja hvernig kerfi Jarðar virka á hlýnandi Jörðu, við hrun líf­ verutegunda og vistkerfa? Við höfum sundrað fræðigreinum og misst sjónar á stóra samhenginu, sjáum ekki skóginn fyrir trjánum. Okkur bráðvantar almenna og sérhæfða uppeldisstofnun sem stendur vörð um þekkingu á sviði náttúruvísinda og umhverfismála! Engin fræði eru mik­ ilvægari nú á tímum fyrir Íslendinga nema þau sem halda utan um íslenska tungu. Í landi þar sem lýðræðishugmyndin hefur verið í miklum metum, menntun talin á hástigi hjá þjóð sem lengi hefur gumað af gjörvileika sínum – þar til allt hrundi – er tímabært að endurmeta menntunina frá grunni. Stenst endalaust sjálfshól um menntun okkar og eigið ágæti? spyr þessi Þingeyingur. Í íslenskum háskólum er til dæmis boðið upp á nám í hagfræði, viðskipta­ fræði, almennri verkfræði og að sjálfsögðu í stjórnmálafræði án þess að þessi fræði séu tengd undirstöðunni, hagkerfi náttúrunnar og náttúruferlum. Hag­ fræðingur þarf að mati yfirvalda enga undirstöðumenntun í náttúrufræðum þótt aðalviðfangsefni hans sé höfuðstóll náttúrunnar – og enn síður fær verk­ fræðingur grunnmenntun í vistfræði þótt starfssvið hans varði ingrip í ferli náttúrunnar. Rök hníga að því að þetta fáránlega fálæti gagnvart náttúrunni, bæði hér á landi og í hagkerfum heimsins, hafi ekki aðeins orsakað efnahags­ hrun á heimsvísu heldur sé það einnig hvatinn að hlýnun á Jörðinni, mengun og dvínandi gæðum Jarðar. Myndum við treysta hjartaskurðlækni sem hefði enga undirstöðu í líffærafræði en væri afar flinkur að beita hnífi og bródera? Við þurfum nýja uppeldisstofnun Gegnum tíðina hefur þjóðin valið sér fjölmarga þingmenn sem hafa verið ólæs­ ir á náttúruarf landsins, einkum þann sem felst í vistkerfum, byggist á vistkerf­ um, á samspili vatns, lands elds og ísa, loftslags og lífvera þess. Við skulum forðast að kyrja sorgarsálma hér í dag, en sárin og menjar þeirra eru sýnilegar og ósýnilegar um allar auðlindir lands og sjávar. Þessu verður að breyta. Allir Íslendingar, komnir til vits og ára, eiga að geta rætt um náttúru landsins af viti og lágmarksvirðingu og hafi þeir skilning á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.