Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Page 121

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Page 121
Á d r e p u r TMM 2010 · 1 121 bara ef ég væri ekki svona hræddur og vanmáttugur … Og þannig erum við sem þjóð, lítil, hrædd og vanmáttug – og samt getum við unnið stórvirki ef við vöndum okkur við það sem við kunnum og gerum best. Íslandssafn verður aðeins byggt af listfengi og frumleika, af eldmóði, fórnfýsi, með sögulegum náttúruminjum, af þekkingu náttúrufræðinga, visku þeirra og umfram allt samtakamætti þeirra og þjóðarinnar. Frumdrættir að hönnun Íslandssafns hafa þegar verið dregnir, en eftir er að útfæra þá. Náttúra Íslands hefur lengi varðveitt frumgögnin sem eru að formi og efni til ævaforn. Í náttúrusögusafni ber að nýta sér hráefni og listfengi nátt­ úrunnar – óþarfi að „finna upp“ hjólið og kúluna, enn einu sinni, og íslenskur skókassa­arkitektúr hentar ekki. Arkitektinn, frumkvöðullinn og hugsuður­ inn Buckminister Fuller fann ekki upp kúluhúsið eins og oft er fullyrt. Hann vissi að ígulker höfðu byggt það löngu fyrr, en hann endurhannaði það sem mannabústað. Þannig vinna þroskaðir og frjóir arkitektar og heppilegasta formið fyrir Íslandssafn er geislótt í anda íglulkera, krossfiska og sæsóla – svo og ýmissa plantna sem fram kemur í blómskipunum þeirra. Byggingarform þar sem ígulkerið myndar kápuna en sæsól innra skipulag safnsins með fær­ anlegum veggjum og stórri opinni miðju þar sem hjartsláttur landsins dunar í vistkerfum Íslands eða Móður Jarðar, eða á öðrum stundum aðrar áherslur – það er sígilt form sem hægt er að aðlaga flestum þörfum, líkt og leikhús með færanlegu sviði. Armar krossfisks eða sæsólar liggja allir inn að miðju. Í einum armi má túlka eldsmiðjuna undir og í landinu, eldvirknina, jarðhitann, bergmyndanir, úthafshrygg og jarðsögu; annar armur gæti fjallað um sögu Jarðar og tilurð Íslands; enn annar kynni að sýna sögu lífs á Jörðu, þróun lífvera og jarðarkerfa og samspil þeirra á milli; einn armur ætti sannarlega að vera á valdi vatnsins og hlutdeild þess í lífheimi og jarðmyndunum, og um jökla og samspil þeirra við umhverfið; og enn einn ætti sannarlega að vera um sjóinn, grunnsævið, landgrunnið, hafstrauma, veðurfar og lífríki. Þá vantar einn arm fyrir síbreyti­ leg viðfangsefni svo sem sjálfbæran landbúnað og náttúrukapítalisma og annan fyrir listsýningar, myndlist. Sjö arma sæsól! Og utan um þessa mynd á að vera lystigarður náttúrunnar, jafnvel garður sem kenndur væri við Ymi eða Ými, þar sem allar bergtegundir Íslands eiga volduga fulltrúa í björgum sem túlka jarðsögu landsins frá austri til vesturs að ógleymdum úthafshryggnum. Innan um og saman við eru svo íslenskar blóm­ plöntur, fléttur og mosar. Þetta gæti verið frumlegasti og forvitnilegasti lysti­ garður á Jörðu nátengdur heimsmynd mannsins frá fornu fari. Ég vil geta leitt barnið mitt eða barnabarn um lystigarð náttúrunnar og inn í einn arm krossfisksins, farið um víðáttur tíma og rúms, skoðað brotabrot af lífheimi Jarðar svo og farleiðir fugla og hvala, fræðst um súrefnisbyltinguna á Jörðinni í árdaga ljóstillífunar, skyggnst inn í tertíertímabilið, skynjað hreyf­ ingar jarðskorpu og fleka, upplifað dásemdir veraldar og þessa dýrmæta lands. Við eigum þetta eina líf og eina land. Og risaverkefnið Íslandssafn er ögurverk­ efni fyrir þjóð sem hefur misst fótanna; það er verkefni til að endurreisa sjálfs­
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.