Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Page 29

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Page 29
A ð l í m a v e r ö l d i n a s a m a n TMM 2016 · 2 29 ég hafi verið frekar prúð, meðfærileg. Sennilega hef ég verið vanvirk svo ég hef stundum þurft að benda á með látum að ég væri til. Hvort fannst þér skemmtilegra að vera barn eða unglingur? Þetta hefur bara skánað með hverju árinu. Mér þótti oft erfitt að vera barn, þetta fullkomna valdaleysi átti ekki við mig. Allt hefur bara skánað með hverju árinu. Varstu trúuð? Ertu trúuð? Já, ég er trúuð, en mér nægir sköpunarsaga vísindanna, hún er nógu mystísk fyrir mig. Allt er náttúrulegt en alveg þrælmagnað. Við vitum að allt sem var og allt sem er og allt sem verður blundaði inni í þessu glóandi fræi, í þessari örðu sem hafði engan radíus og þar sprakk út þetta ævintýri. En auðvitað getur þessi sköpunarsaga ekki frekar en aðrar sköpunarsögur svarað því hvaða saga var á bakvið þessa örðu eða spurningunni sem öll börn spyrja: Hvaðan kem ég? Um daginn spurði barnabarn mitt, eftir að einhver hafði sagt henni að Guð hefði búið allt til: En amma hver bjó þá til Guð? Ertu félagsvera, einfari? Ég hef nú verið frekar á einfaranótunum – og samt ekki – ég á góða vini en ég er enginn félagssprauta. Þegar ég var lítil fannst mér voðalega gott að labba ein og tala við sjálfa mig, ég lengdi meðvitað heimleiðina úr skólanum til að njóta einverunnar. En ætli ég sé ekki bara meðaleinfari og meðalfélags- vera – allt meðal – en þú? Líka meðal. Þegar ég var lítil og hafði eytt deginum með fjölskyldunni eða vinum fannst mér alltaf að ég ætti eftir að vera ein með sjálfri mér. Varstu pabbastelpa, mömmustelpa? Viltu segja mér eitthvað meira um fjöl- skylduna þína? Ég var háð þeim báðum og þau sinntu sitthvoru hlutverkinu í lífi mínu. Mamma var nær okkur, hún var heima. Pabbi vann úti, í stóra heiminum. Pabbi hafði afskaplega gott geð, honum fylgdi ró og festa, ekki strangleiki, hann var svo umburðarlyndur að það hálfa gat verið nóg – hann skartaði umburðarlyndri ró. Eftir að hann varð hjartveikur vildi Katrín föðursystir mín að ég færi með honum í ferðalög sem fylgdu starfi hans og ég ferðaðist mikið með honum um landið. Hlutverk mitt var að setja tóbak í pípuna og kveikja í. Hann kenndi mér nöfnin á hverri sprænu, þekkti landið eins og eigin lófa, sparkaði í þúfur og sagði mér nöfnin á jurtunum. Mamma var suðrænni, svört á brún og brá – ætli ég hafi ekki talað meira við mömmu um allt ómögulegt. Hún var gullsmiður, hafði listamannssál
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.