Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Blaðsíða 54
54 TMM 2016 · 2
Þórunn Jarla Valdimarsdóttir
Umskurður hugarfarsins
Ég flaug hingað suður til Gíneu Conakry á dansnámskeið sem heiðurshjónin
Mamady Sano og Sandra Erlingsdóttir standa árlega fyrir. Við njótum hér
aðstoðar trymbla og kennara úr Les Merveilles ballettinum. Við afródítur
hingað flognar höfum mislengi stundað afrískan dans í bakhúsi sem kennt
er við kram á horni Skólavörðustígs og Bergstaðastrætis, dans og leiksmiðju.
Það hefur í fjörutíu ár kennt ýmsa kroppmennt sem tónlist laðar fram
fremur en mæling íþróttanna.
Afríkudans Kramhússins á kvenkyns áhangendur í tugatali, en fáar þeirra
eiga fé og heimangengt svo við erum bara fimm í þessari ferð. Eini íslenski
karlinn sem hefur haft vit á að sækja afríska búkmenntun í Kramhús á
síðari árum er Samúel Samúelsson, básúnuleikari og hljómsveitarstjóri. Hér
í Gíneu dansa karlar og konur jafnt, sem við sáum á sýningu Les Merveilles
ballettsins í gærkvöldi. Almenn dansmenning heima er vanþróuð, eins og
ýmislegt fleira sem við erum of heimablind til að sjá. Allsnægtar-bumbur
eru við völd og veik bök af því að klessa hrygginn sífellt saman sitjandi og
standandi beinn, í stað þess sitja á hækjum sér að teygja rófuna og dilla rassi.
Við flugum niður Vesturströnd Afríku, yfir Marokkó, Máritaníu, Senegal
og Gambíu. Dökk hönd hóstamanns rennur upp á flugstólinn aftan við mig.
Önnur dökkbrún hönd teygir sig upp flugstólinn framan við mig. Ebólu-
land, Þórunn, móðurland Ebólunnar. Búið er að hræða mig dauða með
ræpusögum frá Afríku. Sigrún barnaskólasystir fékk eyðni í Gíneu í svona
afródansferð. Í sjúkratjaldi fékk hún skítuga sprautu, sagði hún í sjónvarpinu
og ég dáðist að henni að stíga fram með eyðni sína.
Gínea Conakry
Landið ber nafn Gíneuflóa. Þegar Portúgalar sigldu fyrstir fölskinna hingað
um miðja 15. öld nefndu þeir íbúana Gíneusa, til aðgreiningar frá Márum
og Berbum norðar á vesturströnd Afríku. Nafnið rann fljótt í munni Portú-
gala af fólkinu á landið. Sagt er að fyrstu Portúgalarnir sem réru í land hafi
bent á konur á ströndinni eitt spurningarmerki í framan og þær hafi bent
fingri á bringu og svarað Gíní sem þýðir kona. Gínea er land kvennanna.
Kórrétt því konur hér eru sérlega fagrar og sterkar, miðað við karlpeninginn,