Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Qupperneq 32
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
32 TMM 2016 · 2
Hvenær vildirðu verða rithöfundur?
Þegar ég skrifaði aðra ljóðabókina bærðist með mér sú hugsun að ég ætti
ef til vill að leggja inn skilaboð í þennan belg: bókmenntirnar, og hóf þá
starfsemina með 90 sýnum. Fyrstu ljóðabækurnar bara komu en með þriðju
bókinni hafði átt sér stað meðvituð ákvörðun.
Hefur eitthvað eitt tímabil mótað þig meira en önnur?
Veit ekki en ég er frekar seinþroska og eftir fertugt finnst mér ég hafi
fengið betri fjarvídd, sennilega er það algengt hjá fólki, og þó, veit það ekki.
Ég vona að í ellinni komi enn betra perspektíf, þegar maður verði laus undan
öllum hormónadómi brjótist úr púpunni fiðrildi. Auðvitað hægfara, gleymið
og gigtveikt en fiðrildi samt. Ég hef lesið mikið af bókum eftir gamalt frjálst
fólk og held að ellin sé annað stökk sem sumir eiga í vændum.
Myndirðu geta lýst í fáum orðum hvernig fyrsti eini og hálfi áratugur þess-
arar aldar birtist þér?
Í ný-frjálshyggjunni varð siðrof sem við erum að súpa seyðið af út um
allan heim. Efnahagskreppan er líka menningar- og tilvistarkreppa. Eftir
aldamót ríkti manískt ástand hjá betur megandi ríkjum með gengdarlausri
rányrkju á náttúru og fátæku fólki í fjarlægum álfum. Næmt fólk í þessum
oflætisríkjum var farið að skynja alræðisástand þar sem stjórnmálamenn
voru í taumi peningaafla og skuldugur lýðurinn í neysluvímu átti að klappa
í takt við hækkandi hlutabréfaverð og fyrir kostunaraðilum. Sá sem talaði
niður hlutabréfin fékk ekki framgang, hafði takmarkaðan vettvang eða
nýtti hann ekki vegna félagspressunnar. Eftir bankahrunið er enn reynt að
viðhalda þessu siðlausa hagkerfi. Hrunið hefur þó gegnumlýst svikavefinn
svo hann hefur tapað trúverðugleika. Eldri kynslóð er hagsmunabundin en
unga fólkið mótmælir hátt á torgum en það er valdalaust. Ótti minn er sá
að loddarar með fagurgala á vör muni stela uppreisninni, nýta sér reiðina.
Muni búa til óvin úr nágranna okkar til að sameinast gegn svo að upp rísi
óspilltur heimur. Walter Benjamin sagði einhvern tímann að á bak við upp-
gang fasisma væri alltaf mislukkuð uppreisn.
Við þráum farveg vonar og skynsemi og ég er það sólskinsfífl að skynja
nokkur slík teikn á lofti.
En fíkn hinna fáu sem eiga flest virðist aukast, þau vilja meira, það sjást fá
tákn um að þau langi til að skila eignum eða gefa, draga úr og hætta auð-
söfnun, þau virðast þyrsta í fleiri eignir, í fleiri vasa, ná til sínum nýjum
jörðum. Og við sjáum það gerast í beinni útsendingu: jörðinni er kippt
undan fólki. Þessi fíkn er ekki viðurkenndur sjúkdómur eins og aðrar
fíknir sem eyða gæfunni og þó er auðsöfnunarfíknin að eyðileggja jörðina,
eða hvað?
Já, það er svo margt sem passar ekki inn í þetta hagvaxtarmódel sem