Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Page 38
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
38 TMM 2016 · 2
sjónarhóli sérviskulegs og jarðbundins og ástríðufulls annálsritara og þarna
myndast einhver íronía því hann er ekki að tala um jarðbundna hluti: metn-
aður hans liggur í að fanga langanir og þrár. Bókin er líka samfélagsrýni því
ég var að verða vitlaus á þessari þenslu, þessari geggjun og hrunadansinum.
Nýjasta bókin þín er skáldsagan Tvöfalt gler sem fjallar um eldri dömu í
Reykjavík (2015).
Þú spurðir mig hvernig ég gæti lýst fullkominni hamingju og ég sagði eitt-
hvað um samhengi en sagan fjallar um einangrun og samhengisleysi og ég
skrifaði hana eftir hrun en hún kom út fyrst núna. Hermann Stefánsson sem
hafði haft veður af útgáfuraunum mínum bað um að fá að lesa og gá hvort
hún ætti erindi í tímaritröðina 1005. Ég stytti söguna dálítið fyrir þá útgáfu
og svo hnikaði ég til nokkrum orðum undir ritstjórn Hermanns en að öðru
leyti er hún óbreytt, hafði legið og beðið. Ég hefði getað valið sjónarhorn
barns því börn búa líka í einangruðu hólfi. Sagan kom til mín eins og ljóð,
þessi mynd birtist mér: mannvera bakvið gler, svo molnar glerið.
Ertu að skrifa nýja bók?
Ég hef verið að yrkja nokkur ljóð, annars er ég alltaf að þvæla mér í einhver
óskyld verkefni.
Þú hefur ekki sótt um starfslaun rithöfunda?
Jú, ég hef sótt tvisvar um laun og fengið en ég sæki ekki lengur um í
sjóðinn. Síðan ég hætti fyrir stuttu í launavinnu, lifum við Eggert á launum
hans og þau nægja okkur, við erum nefnilega nánast skuldlaus og ein í
kotinu. Hann er fastráðinn leikari. Við þurfum ekki mikið og í gegnum
tíðina höfum við stundum skipst á að vinna fyrir heimilinu, til dæmis þegar
Eggert var í Alþýðuleikhúsinu eða þegar ég var í námi. Það er nóg af fólki
sem þarf þessi laun.
***
Ertu hugrökk?
Á sumum sviðum. Ég er enginn heigull en allar hetjudáðir eru fjarri.
Ertu ævintýragjörn, nýjungagjörn?
Nei, ég ferðast til dæmis lítið, mér þykir gott að vera heima hjá mér. Ég fór
í gegnum bernskuna án þess að verða fyrir hnjaski – sýnir það ekki ágæt-
lega hvað ég er lítið ævintýragjörn? Ég hoppaði ekki niður af stillönsum og
þökum eins og félagar mínir, fór varlega, var skynsöm – en auðvitað hef ég
tekið þátt í lífinu, tók þátt í leikjum, reið út og ferðaðist þegar ég var ung, bara
búin að því svoldið. Ég bjó í kommúnum, þar fóru fram tilraunir með mann-
inn á hippaárunum, kjarnafjölskyldan var úrelt, eignarétti afneitað, kynlíf